Samtíðin - 01.11.1962, Blaðsíða 21
SAMTÍÐIN
17
refsa eða launa, eftir því sem bezt á við?
c) umhyggja fyrir þvi, að barnið sé i
góðum fötum og fái liollt viðurværi? d)
hæfileikar til að kenna börnunum góða
siði?
18. í hvað færið þið börnin, þegar þið
farið með ])au í skemmtigöngu: a) leik-
föt? b) spariföt? c) venjuleg liversdags-
föt?
19. Finnst ykkur aðrir foreldrar færa
börnin of snemma í sumarfötin: a) já?
b) nei?
20. Hve mörg börn teljið þér hæfilegt
að eiga: a) ekkert? b) eitt? c) tvö eða
þrjú? d) fj ögur eða fleiri?
Einkunnir fyrir svörin:
1. a) = 2, b) =1, c) — 3.
2. a) = 1, b) = 3.
3. a) == 1, b) = 1, c) =3, d) = 2.
4. a) =1, b) — 3, c) — 1.
5. a) =1, b) = 1, c) =3, d) = 3.
6. a) =3, b) =1.
7. a) = 1, b) = 3, c) = 3.
8. a) =1, b) =2, c) =3.
9. a) = 1, b) =3, c) = 1.
10. a) =1, b) =3, c) =2.
11. a) =1, b) =3, c) =1.
12. a) =1, b) =3.
13. a) =3, b) =1, c) =2.
14. a) = 2, b) =2, c) = 1, d) = 3.
15. a) =1, b) =3.
16. a) =1, b) =3.
17. a) =3, b) =3, c) =2, d) =1.
18. a) =3, b) =1, c) =3.
19. a) =1, b) =3.
20. a) = 1, b) =1, c) = 3, d) = 3.
Ef þið fáið lægri einkunn en 30, eigið
lbð mikið ólært. Reynið þá að eignast
fleiri börn og látið þau svo ala hvert
annað upp. '30—40 stig eru góð heildar-
einkunn. Það er erfitt að ala upp börn,
svo að vel fari, en ef til vill er sumum
bað huggun að sjá, að börn nágrannanna
eru ekki bótinu betur upp alin en börn
manns sjálfs. Ef þið fáið bærri heildar-
einkunn en 45 stig, mætlu margir óska
sér, að þið væruð foreldrar þeirra.
Sögur að norðan
I4ANNES PÉTURSSON hefur getið
sér gott orð fyrir kvæðabækur sínar.
Urðu víst margir fegnir því, að hann
fældist miklu síður ljóðslafi og rím en
obbinn af jafnöldrum Iians, sem er að
bera sig að yrkja. Ýmsir undruðust lika,
live lítt liann steytti á þeim skerjum, sem
oft verða fyrir byrjendum í kvæðagerð.
Nú hefur Hannes gerzl smásagnahöf-
undur og sent frá sér 12 sögur i bók, sem
ber lieilið, er stendur yfir þessum lín-
um (útgefandi Helgafell). Yfirleitt eru
sögur lians mjög vel gerðar.
Fyrsta sagan, Skyttan, er ekkert minna
en snilldarverk. Hún hefst á þriggja lína
ljóðrænu forspili, eins konar tónaregni,
og er raunar öll ídreypt ljóðrænu. Tak-
mörkunin er fullkomin, og lesandanum
gefur sýn í margar áttir, ekki sízt niður
í djúp eigin reynslu.
Næsta sagan gerist i þorpi, er mjög
lifandi og gæti vel stuðzt við sanna at-
burði eins og raunar flestar sagnanna.
Einna veikust er sagan Maður í tjalcli,
sem er fremur mynd en saga og varðar
lesandann ekki nægilega, samanborið
við tvær sögurnar næst á undan.
Hannes Pétursson á sér föðurlegan
liáðtón. sem hann beitir víða í þessum
sögum, ekki sízt i viðskiplum sínum við
barnakennarann, sem fer norður í von-
litla kvenmannsleit um há-síldartimann.
Sagan um hann nefnist Kvenfólk og
brennivín.
Sums staðar víkur skopið og ljóðræn-
an fyrir kröftugum óhugnaði, sem orkar
mest á lesandann í sögunni / djúpum