Samtíðin - 01.12.1962, Blaðsíða 23
SAMTÍÐIN
15
„Varstu nokkurn tíma alvarlega ást-
fanginn á táningsárunum?“
„Ég varð ákaflega ástfanginn, þegar
ég var 17 ára. Stúlkan og ég áttum heima
i sama húsinu, og við vorum saman í tvö
ár. Ég var þá vöruhílstjóri og tók mér
fjarska nærri að vera án hennar, þangað
til vinnu væri lokið á kvöldin. Svo fór
hún að vera með öðrum piltum, af því
hvað ég var lítið heima, og einn góðan
veðurdag gifti hún sig. Þarna lét ég því
heldur en ekki i minni pokann.“
„Hvenær ætlarðu að kvænast?“
„Það vildi ég, að ég vissi það. Jú, þegar
ég hef liitt þá einu réttu. Það á að verða
kirkjubrúðkaup, og ég vil ekki kvænast
nema einu sinni. — En eins og sakir
standa, vil ég helzt vera einhleypur.“
„Nefndu 2—3 stúlkur, sem Elvis Pres-
ley er hrifinn af.“
„Æ-nei, það máttu ekki biðja mig um.
Ég hef áður lálið hafa mig til að nafn-
greina þær 10 stúlkur, sem mér fundust
þá fallegastar. Nú hef ég betur vit á þessu
en í þá daga. Það eru til svo margar að-
laðandi og yndislegar stúlkur, sem ég er
svo heppinn að hitta oft. Mér nægir eng-
an veginn að nefna 10. Ég vil hafa leyfi
til að halda áfram að líta í kringum mig,
-— og ég geri það!“
Leikhússtjórinn: „Og hvað segizt þér
vera búin að sgngja lengi í óperum?“
Söngkonan: „1 rúm fjörutíu ár.“
„Þá hljótið þér bara að hafa þekkt
„Madame Butterflg", meðan hún var
lirfa!"
Hanna: „Ég hef verið gift, síðan við
sáumst seinast.1
Sigga: „Veit ég vel, og ég þekkti mann-
inn þinn prgðilega, áður en lxann giftist
þér.“
„Það vildi ég, að ég hefði líka gert!“
Ólympíumótin eru einhver mesta há-
tíð skákmanna. Þangað koma sveitir
manna hvaðanæva að úr heiminum og
þreyta listir sínar i harðri keppni. Mót
þessi eru haldin annaðhvert ár. Hefur
þátttaka farið sívaxandi og voru 37 lönd
með í leikjunum að þessu sinni, fjórir
aðahnenn og tveir varamenn i hverri
sveit. Þarna keppa Bandarikjamenn og
Rússar, Austur-Þjóðverjar og Vestur-
Þjóðverjar, Indverjar og Mongólar hlið
við hlið í mesta hróðerni og láta á sann-
ast einkunnarorð alþjóðaskáksambands-
ins: „Gens una sumus“ — allir erum vér
sömu ættar. Þarna var og hópur frá Is-
landi undir forystu Friðriks Ólafssonar.
Tókst Friðriki að vinna flestar skákir
allra fyrsta horðs manna á mótinu.
Ekki birtir þátturinn neinar skákir Is-
lendinganna i þetta sinn, en hér kemur
ein skák eftir Fischer og önnur eftir Tal,
háðar tefldar á mótinu.
Fischer sýnir sóknaraðferðir gegn
Drekavörninni í Sikileyjarleik. Lok
skákarinnar eru snaggaraleg, andstæð-
ingur Fischers fórnar manni í þeirri
von að vinna drottningu fyrir. Fischer
sér ögn lengra: við 21. — exd3 væri svar-
ið 22. f6 og mátar.
Robert Fischer Purevsjan
Bandaríkin
1. e4 c5
2. Rf3 d6
3. d4 cxd4
4. Rxd4 Rf6
5. Rc3 g6
Mongólía
6. Be3 Bg7
7. f3 Rc6
8. Dd2 0-0
9. Bc4 Rd7
10. 0-0-0 Rb6