Samtíðin - 01.12.1962, Page 39

Samtíðin - 01.12.1962, Page 39
SAMTÍÐIN 31 ÞEIR,VITRU"T ÓÖCýOLt --------------- GYLFI Þ. GÍSLASON: „Ég tel aukningu og endurbætur á kennaranáminu, auk uýrra skilyrða fyrir kennara til að afla sér framhaldsmenntunar, eitt brýnasta verkefni, sem nú er þörf á að leysa í ís- lenzkum fræðslumálum.“ W. SOMERSET MAUGIIAM: „Ég hef aldrei sagzt vera annað en sá, sem segir frá. Ég er ekki mikið gefinn fyrir skáld- sagnahöfunda, sem prédika eða eru með heimspekilegar vang'aveltur. Ég álít nefni- lega, að skynsamlegast sé að eftirláta heimspekingunum heimspekina og félags- luálafrömuðunum félagslegu umbæturn- ar. Ég hef gaman af að skrifa smásögur, leikrit og skáldsögur, og alla tíð nema í seinni heimsstyrjöldinni, þegar ég skrifaði áróður, hef ég eingöngu skrifað mér til skemmtunar. Ég hef gaman af að skrifa. í meira en hálfa öld hef ég haft það fyrir vana að loka mig inni í herbergi á hverj- uni morgni og skrifa fram að morgun- verði. Þekkir þú söguna um gamlan Frakka, sem hafði eytt hverju kvöldi um 20 ára skeið hjá ástmeyju sinni? Einn af vinum hans spurði hann: „En hvei*s vegna í ósköpunum kvænistu henni ekki?“ Á- hyggjufullur svaraði hann: „Hvar ætti ég þá að vera á kvöldin?“ Ég líkist þessum gamla manni. Hvernig ætti ég að verja uiorgnunum, ef ég hætti að skrifa?“ WILLIAM JAMES: „Svörnustu óvinir hverrar bjóðar eru ekki erlendir fjendur, heldur landráðamenn hennar sjálfrar. Vegna þeirra þjóðníðinga þarfnast menn- iug þjóðarinnar sífelldra björgunarað- gerða.“ OLIVER GOLDSMITH: „Skemmtanalíf or óskemmtilegasta tilvera, sem hugsazt getur.“ fbjjar (uekur ^ Guðni Jónsson: Skyggnir II. hefti. Alpýðlegur fróðleikur og skemmtan. 174 bls., ób. kr. 92.00. Studia Centenalia. In honorem Benedikt S. Þór- arinsson. Edidit nepós Benedikt S. Benedikz. Minningarrit með greinum eftir 11 kunna ís- lenzka og erlenda fræðimenn i tilefni 100 ára árstiðar hans 6. nóv. 1961. 165 bls., ób. kr. 280.00. Elías Halldórsson: Þjóðsögur og sagnir. 217 bls. ób. kr. 75.00. Jón Thorarensen: Rauðskinna. XI—XII hefti. Æviþættir. 122 bls., ób. kr. 68.00. Indriði G. Þorsteinsson: Sjötíu og níu af stöðinni. Skáldsaga með myndum. 3. útgáfa. 148 bls., ób. kr. 190.00. Sveinn Víkingur: Lára miðill. Bókin segir frá dulhæfileikum og miðilsstarfi. 197 bls. íb. kr. 220.00. Jónas Þorbergsson: Lif að loknu þessu. Aldar- fjórðungs miðilsþjónusta Hafsteins Björns- sonar. 270 bls., íb. kr. 240.00. Cyril Scott: Fullnuminn. Bók um andleg mái og dulræna speki. Steinunn S. Briem þýddi. 274 bls., íb. kr. 260.00. Guðrún frá Lundi: Stýfðar fjaðrir II. bindi. Skáldsaga. 226 bls., íb. kr. 175.00. Vigfús Guðmundsson: Minningar Vigfúsar. Þroskaárin. Með myndum. 256 bls., íb. kr. 175.00. Salómon Heiðar: Söngvasafn. 30 sönglög. Ljós- prentað eftir handriti. 47 bls., ób. kr. 75.00. Martinus: Leiðsögn til lífshamingju. Fyrir- lestrar um andleg vísindi. Þorsteinn Hall- dórsson þýddi. 144 bls., íb. kr. 180.00. John Osborne: Bretland. Lönd og þjóðir. 3. bók. Lands- og þjóðlýsing í máli og mynd- um. (Litmyndir). Jón Eyþórsson þýddi. 174 bls., íb. kr. 250.00. Útvegum allar fáanlegar bækur. Kaupið bæk- urnar og ritföngin þar, sem úrvalið er mest. Sendum gegn póstkröfu um land allt. BÓKAVERZLIJIM ÍSAFOLDARPREtMTSMIÐJU H.F. Austurstræti 8. Reykjavík. Sími 1-45-27.

x

Samtíðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Samtíðin
https://timarit.is/publication/647

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.