Fréttablaðið - 01.02.2010, Qupperneq 2
2 1. febrúar 2010 MÁNUDAGUR
KÝPUR, AP Ban Ki-moon, fram-
kvæmdastjóri Sameinuðu þjóð-
anna, kom til Kýpur í gær í von
um að ná að blása lífi í glæð-
ur friðarvið-
ræðna, sem
miðað hefur
hægt undan-
farið.
„Ég er hing-
að kominn til
að sýna per-
sónulegan
stuðning minn
við viðræður
um endursam-
einingu landsins,“ sagði Ban við
komuna í gær.
Viðræður Grikkja og Tyrkja
um sameiningu hinna tveggja
aðskildu hluta eyjunnar hófust
fyrir nærri hálfu öðru ári, en
þær hafa litlum árangri skilað.
Tyrkland, eitt landa, viður-
kennir sjálfstæði hins tyrkneska
hluta eyjunnar. - gb
Fiskikóngurinn • Sogavegi 3 • sími 587 7755
Fiskikóngurinn • Sogavegi 3 • sími 587 7755
OPNUM KL 8.00 ALLA VIRKA DAGA
Nýr
Rauðmagi
Glæný Línuýsa
STJÓRNSÝSLA Unnið hefur verið að því undanfarn-
ar vikur að gera vef rannsóknarnefndar Alþing-
is viðbúinn miklu álagi sem búast má við að verði
á honum þegar skýrsla nefndarinnar um banka-
hrunið verður gerð opinber. Sérstakur viðbúnaður
tæknimanna verður fyrstu dagana eftir birtingu en
vefurinn verður gæddur þeim eiginleikum að hægt
verður að leita eftir efnisorðum, samkvæmt upplýs-
ingum Fréttablaðsins.
Eins og fram hefur komið í fjölmiðlum hefur
skýrslu nefndarinnar verið frestað og er nú búist
við því að hún verði birt í lok mánaðarins. Skýrsl-
an verður gríðarlega umfangsmikil og er talið að
hún geti jafnvel orðið tvö þúsund síður. Vart þarf
að taka það fram að mikil eftirvænting og spenna
ríkir í þjóðfélaginu eftir útgáfu skýrslunnar en
starfsmenn nefndarinnar hafa lýst því yfir að engin
nefnd hafi þurft að færa þjóðinni jafn svört tíðindi
og þessi.
Skýrslan verður einnig prentuð og má reikna
með að alþingismenn og fjölmiðlar fái hana. Páll
Hreinsson, formaður nefndarinnar, vildi ekki gefa
upp hvar hún yrði prentuð af öryggisástæðum. „Við
höfum verið spurð að því hverjir séu að prófarka-
lesa hana en það verður heldur ekki gefið upp,“
segir Páll í samtali við Fréttablaðið en skýrslan
verður aðgengileg á netinu um leið og hún kemur út
á prenti. - fgg
Rannsóknarnefnd Alþingis býst við miklu álagi þegar skýrslan verður kynnt:
Vefþjónn nefndarinnar við öllu búinn
STÓR NETÞJÓNN Undanfarnar vikur hefur vinna staðið yfir við
að undirbúa netþjón rannsóknarnefndar Alþingis vegna þess
mikla álags sem verður á honum þegar skýrslan verður loks
birt. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Ágústa, er þá ekki tími til
kominn að pakka saman og
fara heim?
„Nei, ætli það sé nú ekki næg vinna
eftir enn.“
Í frétt blaðsins með fyrirsögninni „Síðasta
vígi reykingafólks fellur“ á föstudag kom
fram að sjónvarpsmaðurinn Helgi Seljan
væri að „velta því fyrir sér að íhuga að
hætta að reykja“. Ágústa Tryggvadóttir
er starfsmaður Reyksímans sem veitir
áhugasömum aðstoð við að hætta að
reykja.
BANDARÍKIN Kínversk stjórnvöld
hafa brugðist illa við fréttum
af því að Bandaríkin ætli að
selja Taívönum vopnabúnað og
þyrlur, auk þess sem bæði her-
þotur og kafbátar gætu fylgt
með í pakkanum.
Jason Yuan, sendiherra Taív-
ans í Bandaríkjunum, skýrði frá
þessu í yfirlýsingu sem opinber
fréttastofa Taívans birti.
Kínversk stjórnvöld hafa
ekki viljað viðurkenna sjálf-
stæði Taív ans og líta á öll pólit-
ísk samskipti annarra ríkja við
Taív an, hvað þá hernaðarstuðn-
ing, sem grófa ögrun. - gb
Bandaríkin ergja Kínverja:
Selja Taívönum
vopn og þyrlur
BAN KI-MOON
Ban Ki-moon á Kýpur:
Reynir að efla
friðarviðræður
EFNAHAGSMÁL Starfsfólk banka og
fjármálafyrirtækja er álíka óvin-
sælt nú um stundir og hryðjuverka-
menn. Þetta hefur bandaríska stór-
blaðið Wall Street Journal eftir
Donald Moore, stjórnarformanni
bandaríska bankans Morgan Stan-
ley, á ársþingi Alþjóðaefnahags-
ráðsins í Alpabænum Davos í Sviss.
Þinginu lauk í gær.
Helsta umræðuefni þingsins
voru aðgerðir og leiðir til að keyra
heimshagkerfið upp úr kreppunni.
Erlendir fjölmiðlar eru á því að
almennt hafi lítill árangur náðst á
þinginu utan samstöðu um ný störf
og að viðskiptafrelsi væri lykill að
efnahagsbatanum.
Wall Street Journal segir forráða-
menn banka og fjármálafyrirtækja
hafa verið í varnarstöðu á þinginu
í ár í skugga hamfaranna og setið
undir hótunum ríkisstjórna og eft-
irlitsaðila um róttækar aðgerðir
gegn þeim, svo sem hertu eftirliti
og hækkunum á gjöldum. Hótan-
ir sem þessar hafa heyrst vestan-
hafs um nokkurra mánaða skeið en
hafa fengið byr undir báða vængi á
meginlandi Evrópu upp á síðkastið.
Á meðal þess er innleiðing „Glass-
Steagall“-laganna svokölluðu, sem
sett voru í Bandaríkjunum í kjölfar
kreppunnar miklu árið 1932. Þau
meina viðskiptabönkum að stunda
fjárfestingarbankastarfsemi. - jab
Bankar og fjármálafyrirtæki litnir sömu augum og hryðjuverkamenn í Davos:
Lítill árangur náðist í Alpabæ
EKKI ÉG! Peter Sands, forstjóri breska
bankans Standard Chartered, ræðir um
efnahagsbatann í Davos. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
NORÐURLÖND Dæmi eru um að
Íslendingum sem þiggja bætur
í Danmörku hafi verið skipað úr
landi.
„Dvalarleyfi þitt í Danmörku er
fallið niður og þú þarft þess vegna
að fara úr landi … Ef þú gerir það
ekki átt þú á hættu að vera vísað úr
landi og refsað fyrir ólöglega dvöl í
Danmörku“, segir í bréfi sem Íslend-
ingur í Danmörku fékk á síðasta ári.
Samkvæmt því bréfi sem sent var
frá danska Útlendingaeftirlitinu
hafði sveitarfélagið þar sem Íslend-
ingurinn var búsettur gert Útlend-
ingaeftirlitinu viðvart um að hann
þægi framfærslustyrk. Bent er á í
bréfinu að samkvæmt lögum megi
Íslendingar dvelja án dvalarleyf-
is í landinu en einnig á að ákvæði
í lögum um virkni á vinnumarkaði
geri það kleift að vísa þessum ein-
staklingi úr landi.
Í frétt á heimasíðu Norðurlanda-
ráðs og Norrænu ráðherranefndar-
innar, www.norden.org, kemur fram
að fjölmörgum norrænum ríkisborg-
urum sem ekki geta séð sér farborða
hafi verið vísað úr landi með dóms-
úrskurði. Aðallega sé um að ræða
brottvísanir frá Danmörku en einn-
ig frá Svíþjóð. Bent er á í fréttinni
að í norræna sáttmálanum frá 1994
standi að allir Norðurlandabúar eigi
rétt á að búa í öðru norrænu landi.
Enn fremur segir að mörg þeirra
mála sem upplýsingaþjónusta Nor-
rænu ráðherranefndarinnar, Hallo
Norden eða Halló Norðurlönd,
hafi skráð séu erfið dómsmál þar
sem túlkun á reglum virðist smám
saman hafa orðið þrengri.
Alma Sigurðardóttir, verkefna-
stjóri Halló Norðurlönd á Íslandi,
segist hafa haft spurnir af Íslend-
ingum í Danmörku sem hafa fengið
bréf þar sem réttur þeirra til dvalar
er felldur niður vegna þess að þeir
þáðu bætur frá danska ríkinu. Hún
segir dönsk sveitarfélög hafa mikið
sjálfstæði og lög er varða Norður-
landabúa því túlkuð misjafnlega á
milli þeirra. Hún segir upplýsing-
ar um hversu margir þetta séu ekki
liggja fyrir.
Alma bendir á að þessar brott-
vísanir séu í mótsögn við reglur
er kveða á um að Íslendingar þurfi
ekki dvalarleyfi til að dvelja annars
staðar á Norðurlöndunum.
Enginn frá Norðurlöndunum
hefur verið sendur úr landi frá
Íslandi á grundvelli þess að vera á
framfæri félagslega kerfisins sam-
kvæmt upplýsingum Útlendinga-
stofnunar.
Norræna borgara- og neytenda-
nefndin hefur farið fram á það við
ríkisstjórnir norrænu ríkjanna að
fá nánari upplýsingar um þessi mál
og ætlar að fjalla um þau á fundi í
apríl. sigridur@frettabladid.is
Íslendingar á bótum
sendir til síns heima
Norrænum ríkisborgurum, sem búsettir eru á Norðurlöndum utan föðurlandsins,
er í auknum mæli vísað úr landi ef talið er að þeir geti ekki séð sér farborða. Leyfi
Íslendinga til dvalar í Danmörku hefur verið fellt niður með þessum rökum.
KAUPMANNAHÖFN Norrænum ríkisborgurum sem búsettir eru á Norðurlöndunum utan föðurlandsins er í auknum mæli vísað úr
landi, ef talið er að þeir geti ekki séð sér farborða. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
PERÚ Yfirvöld í Perú segja að 22
hafi týnt lífi í flóðum í kjölfar
mikillar rigningar í landinu und-
anfarna daga.
Tíu er saknað og rúmlega
40.000 íbúar hafa þurft að flýja
heimili sín og leita skjóls í neyð-
arskýlum. Ástandið er einna
verst í fjallahéraðinu Cuzco sem
liggur í Andesfjöllum.
Stjórnvöld í Perú hafa undan-
farna daga sent þyrlur til að flytja
fjölda ferðamanna frá Machu
Picchu, vinsælum ferðamanna-
stað sem lokaðist af í flóðum og
skriðuföllum um síðustu helgi. - kg
Yfirvöld í Perú:
Telja 22 hafa
látist í flóðum
HEILBRIGÐISMÁL Skurðstofu Heil-
brigðisstofnunar Suðurnesja
(HSS) verður lokað og hátt í tut-
tugu starfsmönnum sagt upp.
Þetta kom fram í fréttum Ríkis-
útvarpsins í gær.
Fram kemur að fólkinu hafi
verið sagt upp um helgina. Einn-
ig að eini félagsfræðingur stofn-
unarinnar hafi misst vinnuna.
Stofnunin þurfi að skera niður
um rúmar 86 milljónir króna til
að halda rekstrinum innan fjár-
laga þessa árs. Þessu til viðbót-
ar þurfi stofnunin að skera niður
þann halla upp á rúmar 26 millj-
ónir sem myndaðist á síðasta ári.
Um þrjú hundruð manns vinna
hjá stofnuninni. - kg
Heilbrigðisstofnun sker niður:
Hátt í tuttugu
manns sagt upp
MINNING Vegna fjölda áskorana
býður Fréttablaðið nú upp á birt-
ingu æviminninga á tímamótasíð-
um blaðsins. Þær fyrstu birtast í
dag á blaðsíðu 19.
Æviminningar eru greinar um
látna einstaklinga, sem að formi
til geta talist mitt á milli minn-
ingargreina og æviágripa. Með
hverri grein má birta eina ljós-
mynd sem þarf ekki að vera and-
litsmynd heldur getur með ein-
hverjum hætti talist einkennandi
fyrir hinn látna.
Upplýsingar um fyrirkomu-
lag og verðlagningu fást í síma
512 5490 og 512 5495 eða með því
að senda fyrirspurn á netfangið
timamot@frettabladid.is. - gb
Ný þjónusta Fréttablaðsins:
Hafin er birting
æviminninga
Skemmdi fimm bíla
Lögreglan í Reykjavík handtók í
fyrrinótt mann um tvítugt, sem grun-
aður var um að hafa brotist inn í og
skemmt fimm bíla á Hverfisgötu og
Smiðjustíg.
LÖGREGLUFRÉTTIR
SPURNING DAGSINS