Fréttablaðið - 01.02.2010, Side 6
6 1. febrúar 2010 MÁNUDAGUR
–fegurðin býr í bókum
Barónsstíg 27 | 511 0910 | crymogea@crymogea.is | www.crymogea.is
Nú fer fáanlegum eintökum fækkandi af þessum glæsilega grip.
Tryggðu þér eintak í tíma.
NJARÐARBRAUT 9 - REYK
JAN
ES
BÆ
FIS
KIS
LÓÐ
3 - REYKJAVÍK
HAÍTÍ, AP Tíu Bandaríkjamenn
reyndu að flytja 33 börn í rútu yfir
landamærin til Dóminíska lýðveld-
isins, en voru handteknir á föstu-
dagskvöld áður en hópurinn komst
úr landi.
Bandaríkjamennirnir segjast
hafa ætlað að flytja börnin á hótel í
Dóminíska lýðveldinu, sem verið sé
að breyta í munaðarleysingjahæli
fyrir hundrað börn frá Haítí.
Bandaríkjamennirnir voru hins
vegar ekki með tilskilda papp-
íra meðferðis. Stjórnvöld á Haítí
hafa lagt mikla áherslu á að fara
varlega í að leyfa ættleiðingar og
brottflutning á börnum af ótta við
að börn, sem hafa misst foreldra
sína eða misst samband við þá í
kjölfar jarðskjálftans, séu óvenju
auðveld bráð fyrir glæpamenn sem
reyna að selja börn til ættleiðingar
eða kynlífsþrælkunar. Bandaríkja-
mennirnir tíu eru baptistar og segj-
ast ekki hafa neitt illt í huga. Þeir
hafi ekki greitt fé fyrir börnin,
heldur fengu þau fyrir milligöngu
prests á Haítí.
Silsby, kona úr hópi hinna hand-
teknu Bandaríkjamanna, var spurð
hvort það hafi ekki verið vanhugsað
hjá þeim að reyna að flytja börnin
úr landi án réttra pappíra, einmitt
nú þegar varað er við hættunni á
mansali og smygli á börnum. Hún
sagðist ekki hafa fylgst með frétt-
um meðan hún hefur verið á Haítí:
„Við erum engan veginn þátttak-
endur í slíku. Það er einmitt slíkt
sem við erum að berjast gegn.“ - gb
Tíu Bandaríkjamenn handteknir á landamærum Haítí með 33 börn:
Segjast vilja hjálpa börnunum
Í FANGELSINU Blaðamenn fengu að
ræða við þrjár konur úr hópi hinna
handteknu Bandaríkjamanna.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Viltu að rannsóknarnefnd verði
látin kanna ákvörðun íslenskra
stjórnvalda um stuðning við
Írakstríðið?
Já 59,8%
Nei 40,2%
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Ertu ánægð/ánægður með
bronsstrákana okkar?
Segðu skoðun þína á vísir.is
PAKISTAN, AP Hakimullah Meh-
sud, leiðtogi talibanahreyfingar-
innar í Pakistan, er talinn hafa
látist af völdum áverka sem
hann hlaut í loftárás um miðjan
janúar.
Lát hans myndi teljast tölu-
verður sigur bæði fyrir stjórn-
völd í Pakistan, sem hafa bar-
ist af hörku gegn talibönum, og
fyrir bandarísk stjórnvöld, sem
kenna Mehsud meðal annars
um sprengjuárás á bandaríska
leyniþjónustumenn í Afganistan
nýverið.
Forveri hans lést einnig í loft-
árás í Pakistan fyrir tæplega
hálfu ári. - gb
Átök í Pakistan:
Leiðtogi tali-
bana fallinn
VIÐSKIPTI Páll Bendiktsson, talsmaður skila-
nefndar Landsbanka, segist ekki hissa á
háum kostnaði við skilanefnd bankans.
Fram kom í Fréttablaðinu á laugardag að
kostnaðurinn hafi numið 11,5 milljörð-
um króna í fyrra og var hann hærri en hjá
skilanefndum Glitnis og Kaupþings.
Páll segir það skýrast af meiri umsvif-
um skilanefndar erlendis og kaupa á sér-
fræðiþjónustu þar en hinna bankanna.
„Erlendu kröfuhafarnir vilja að stór
alþjóðleg félög í fjármálastarfsemi taki
þátt í vinnu búsins. Mikil vinna erlendra sérfræð-
inga var lögð í uppskiptin á eignum milli
gamla og nýja Landsbankans. Þeirri vinnu
lauk undir lok síðasta árs og því má búast
við að erlendur sérfræðikostnaður lækki
verulega,“ segir Páll og bendir á mikil-
vægi þess að skoða skiptakostnað við stór
erlend þrotabú, svo sem Lehman Brothers,
sem sé mun hærri þótt búið þar sé minna.
„Þá sjá menn að kostnaður skilanefnd-
ar Landsbankans er mjög ásættanlegur,“
segir Páll og bendir á að kostnaðurinn hér
á landi sé sambærilegur við hinar skila-
nefndirnar. - jab
Kaup á erlendri sérfræðiþjónustu keyrði upp kostnað þrotabús Landsbankans:
Kostnaðurinn ásættanlegur
PÁLL BENEDIKTSSON
TANNVERND Fyrsti dagur árlegr-
ar tannverndarviku er í dag. Í ár
verður sjónum sérstaklega beint
að börnum. Ekki er vanþörf á því,
en rannsóknir sýna að tannheilsa
íslenskra barna er mun verri en
annarra barna á Norðurlöndum.
„Undanfarið höfum við horft
upp á að tannheilsu íslenskra
barna hrakar verulega og það er
sérstaklega sorglegt að á sama
tíma eru heimtur barna til tann-
lækna að skila sér mjög illa,“ segir
Helgi Hansson barnatannlæknir.
Hann segir helstu ástæðurnar sem
tannlæknar sjái fyrir því að endur-
greiðsluhlutfall ríkisins hafi jafnt
og þétt lækkað. Tannheilsa barna
hafi orðið illilega fyrir barðinu á
niðurskurðarhnífnum.
Helgi segir mikilvægt að for-
eldrar séu meðvitaðir um nauð-
syn þess að mæta með börn í
reglubundna skoðun til tannlækn-
is. „Það eru margir foreldrar sem
standa sig vel í þessu. Aftur á móti
eru þeir of margir sem draga það
og sleppa því jafnvel alveg og
lenda svo í vítahring síðar.“
Þá komi það tannlæknum á
óvart að foreldrar mæti jafnvel
ekki með börn sín í fría forvarna-
skoðun, sem öll börn á aldrinum
þriggja, sex og tólf ára eiga rétt
á. „Það kemur aftan að okkur að
heimtuhlutfallið gæti verið mun
betra í þeim tilfellum þegar skoð-
unin er frí.“
Helgi segir það tiltölulega ein-
falt verkefni að bæta tannheilsu
barna. Þau eigi að borða minni
sykur og bursta tennurnar kvölds
og morgna. „Ef við bara gætum
bætt þessi tvö atriði gætum við
bætt tannheilsu barna til muna.
Sérstaklega höfum við tannlækn-
ar verið að benda á þennan falda
sykur. Margir borða sætindi sex
daga vikunnar og nammi á nammi-
dögum. Það er nefnilega fleira sæt-
indi en nammi, til dæmis margir
drykkir, kökur og margar tegundir
af morgunkorni.“
Í tilefni af tannverndarvikunni
hefur Lýðheilsustöð gert lifandi
myndefni um umhirðu barnatanna,
fyrir foreldra og aðra aðstandend-
ur barna. Það má nálgast á vef
Lýðheilsustöðvar, á slóðinni http://
www.lydheilsustod.is/utgafa/lif-
andi-efni/tannvernd/. Efnið verð-
ur einnig gefið út á DVD-diski.
holmfridur@frettabladid.is
Tannheilsu íslenskra
barna hrakar stöðugt
Tannheilsa íslenskra barna er afar slæm í samanburði við önnur börn á Norður-
löndum. Má meðal annars rekja það til stöðugt lækkandi endurgreiðsluhlutfalls
ríkisins. Árleg tannverndarvika hefst í dag. Sjónum sérstaklega beint að börnum.
BARN BURSTAR Tannlæknar hafa verulegar áhyggjur af því að tannheilsu íslenskra
barna hefur hrakað verulega á undanförnum árum.
KJÖRKASSINN