Fréttablaðið - 01.02.2010, Page 8

Fréttablaðið - 01.02.2010, Page 8
8 1. febrúar 2010 MÁNUDAGUR SÍMI 440 1000 WWW.N1.IS Meira í leiðinni Þú færð lása fyrir felgurnar þínar hjá Hjólbarðaþjónustu N1 Læstu felgunum þínum! Bíldshöfða 2 Reykjavík Réttarhálsi 2 Reykjavík Fellsmúla 24 Reykjavík Ægisíðu 102 Reykjavík Langatanga 1a Mosfellsbæ Reykjavíkurvegi 56 Hafnarfirði Dalbraut 14 Akranesi Grænásbraut 552 Reykjanesbæ Verð frá 3.990 kr. Kötlusetur Rannsókna- og fræðasetur - Menningarmiðstöð Kynningarfundur um Kötlusetur verður haldinn miðvikudaginn 3. febrúar n.k. í félagsheimilinu Leikskálum í Vík og hefst kl. 20:00. Dagskrá: Sveinn Pálsson Setning Gísli Sverrir Árnason Kötlusetur – samantekt og tillögur Ragnhildur Sveinbjarnardóttir Geopark (Jarðminjagarður) Steingerður Hreinsdóttir Háskólafélag Suðurlands – Kötlusetur Umræður Allir eru velkomnir. BANDARÍKIN, AP Barack Obama Banda- ríkjaforseti ætlar að stórefla kjarn- orkuvinnslu vestra, að því er virðist meðal annars til þess að fá bæði rep- úblikana og hægrisinnaða demókrata til liðs við áform sín í orku- og lofts- lagsmálum. Í stefnuræðu sinni, sem Obama flutti í síðustu viku, sagðist hann ætla að draga úr atvinnuleysi meðal annars með því að stórauka vinnslu hreinna orkugjafa á borð við kjarnorku. Tuttugu prósent af raforku í Banda- ríkjunum eru nú fengin frá 104 kjarn- orkuverum í 31 af hinum 50 ríkjum Bandaríkjanna. Þessi tuttugu prósent eru hins vegar heil sjötíu prósent af þeirri hreinu orku, sem framleidd er í landinu – og er þá átt við orkugjafa sem ekki senda frá sér gróðurhúsa- lofttegundir sem valda hlýnun jarðar. Í kosningabaráttu sinni sagðist Obama styðja vinnslu kjarnorku, en þó með þeim fyrirvörum að erfitt sé að eiga við kjarnorkuúrgang auk þess sem ríkið þurfi að kosta miklu fé til þess stuðnings við byggingu kjarn- orkuvera. Þeir fyrirvarar eru enn fyrir hendi, en á þessu ári hyggst hann verja millj- örðum dala úr ríkissjóði í byggingu nýrrar kynslóðar kjarnorkuvera. Með þessu úrræði gæti hann átt auðveldara með að vinna fylgi hægri- manna við aðgerðir í loftslagsmálum. - gb Bandaríkjaforseti fer óhefðbundna leið til að tryggja stuðning við loftslagsúrræði: Obama vill stórefla kjarnorkuvinnslu BARACK OBAMA Hyggst verja milljörðum dala til að reisa ný kjarnorkuver. FRÉTTABLAÐIÐ/AP SLYS Kona lést þegar hún féll ásamt sjö ára syni sínum niður í djúpa sprungu á vestanverðum Langjökli á laugardag. Hún var 45 ára gömul. Drengurinn var fluttur með þyrlu Landhelgisgæslunnar á gjörgæslu- deild Landspítalans, en útskrifaðist þaðan yfir á barnadeild í gærkvöldi. Líðan hans er eftir atvikum góð. Mæðginin voru í hóp sem var í jeppaleiðangri á Langjökli og átti slysið sér stað norðaustan við Geit- landsjökul. Ásgeir Kristinsson, félagi í Björgunarfélagi Akraness og vettvangsstjóri á slysstað, segir einn bílinn í hópnum hafa lent með annað framhjólið í sprungu. Við það hafi förin verið stöðvuð og mæðgin- in stigið út úr bílnum. Í framhaldi af því hafi þau svo hrapað á þriðja tug metra niður í sprunguna. Björgunarsveitir fengu útkall um slysið um klukkan 13 og voru báðar þyrlur Landhelgisgæslunnar sendar á vettvang. Fyrstu björgunarmenn voru komnir á staðinn um klukku- stund síðar. Ásgeir segir að björgunarmenn hafi farið einn af öðrum niður um þrönga sprunguna með línu til að ná til mæðginanna. Drengurinn var með meðvitund og náði sam- bandi við björgunarmenn, sem Ásgeir segir hafa hjálpað til. Konan var úrskurðuð látin þegar tekist hafði að flytja hana upp úr sprungunni. Alls tók aðgerðin tæplega fimm klukkustundir og að henni komu rúmlega hundrað manns. Að sögn Ásgeirs eru aðstæður á íslenskum jöklum afar sérstak- ar þessa dagana. „Kannski er það ekki öllum ljóst, en það er mjög lít- ill snjór og faldar sprungur. Það á ekki bara við slysstaðinn heldur eru aðstæður svona mjög víða.“ Ekki er unnt að greina frá nafni hinnar látnu að svo stöddu. kjartan@frettabladid.is Lést í slysi á Langjökli Mæðgin féllu niður í djúpa jökulsprungu í jeppaferðalagi. Konan var úrskurð- uð látin þegar tekist hafði að flytja hana upp úr sprungunni en líðan drengsins er eftir atvikum góð. Aðstæður eru hættulegar á íslenskum jöklum. 1. Hversu marga bíla þarf Toyota að innkalla hér á landi vegna galla í eldsneytisgjöf? 2. Hvað nefnist nýr útvarps- þáttur Þossa á Rás 2 sem er á dagskrá eftir miðnætti á mánu- dagskvöldum? 3. Hvar verður Edduverðlauna- hátíðin haldin í ár? SVÖRIN ERU Á SÍÐU 30 PRÓFKJÖR Einungis 34 prósent þeirra sem voru á kjörskrá Sam- fylkingarinnar í prófkjöri flokks- ins í Reykjavík greiddu atkvæði, eða 2.656 af 7.874 manns. Gunn- ar Helgi Kristinsson stjórnmála- fræðingur segir þetta ekki koma á óvart, enda hafi lítil spenna verið fyrir prófkjörinu þar sem Dagur B. Eggertsson bauð sig einn fram í fyrsta sætið. Dagur hlaut 83 pró- sent atkvæða, eða 2.208. Oddný Sturludóttir hafnaði í öðru sæti með 959 atkvæði í 1.-2. sæti en fjórir börðust um 2. sætið. Þar á meðal Björk Vilhelmsdóttir, sem hafnaði í þriðja sæti. Hjálmar Sveinsson hafnaði í fjórða sæti og Bjarni Karlsson í því fimmta en þeir voru báðir að bjóða sig fram í fyrsta sinn. „Þetta er góð kosning fyrir nýlið- ana. Þarna kemur endurnýjunin inn hjá Samfylkingunni,“ segir Gunnar Helgi. Hjálmar hafi látið í sér heyra um hvernig borgarum- hverfi eigi að vera, í útvarpi og öðrum fjölmiðlum, sem gæti hafa haft áhrif á góða útkomu hans. Dofri Hermannsson hafnaði í sjötta sæti en hann sóttist eftir 2.-3. sæti. Sigrún Elsa Smáradótt- ir kom verst út úr prófkjörinu en hún sóttist eftir 2. sætinu og hafn- aði í 7. sæti. Margrét K. Sverrisdóttir hafn- aði í áttunda sæti. - hhs Lítill áhugi fyrir prófkjöri Samfylkingarinnar í Reykjavík: Oddný var örugg með annað sætið ODDNÝ STURLUDÓTTIR Fjórir börðust um annað sæti í prófkjöri Samfylkingarinnar í Reykjavík og stóð Oddný uppi sem sigurvegari. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM FRÁ SLYSSTAÐ Aðgerðin tók tæplega fimm klukkustundir. MYND/LANDHELGISGÆSLAN VEISTU SVARIÐ?

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.