Fréttablaðið - 01.02.2010, Page 10

Fréttablaðið - 01.02.2010, Page 10
10 1. febrúar 2010 MÁNUDAGUR MENNTUN Leikskólasvið hefur beint tilmælum til þjónustumiðstöðva í 101, 105 og 107 Reykjavík, það er Vesturbæ, Miðbæ og Hlíðum, um að finna dagforeldra til starfa. Samkvæmt upplýsingum frá sviðinu eru alls sjötíu laus pláss í borginni, sem fækkar dag frá degi, en ekkert þeirra er í mið- bænum. „Ég skil vel að það sé erf- itt fyrir for- eldra í Vestur- bæ að fara upp í Breiðholt eftir dagforeldrum og við höfum brugðist við þessari aukningu með því að biðja um að það sé haft sam- band við fyrrverandi dagforeldra og auglýst eftir þeim, til dæmis í hverfablöðum,“ segir Ragnhildur Erla Bjarnadóttir, sviðsstjóri leik- skólasviðs. Nokkur pláss séu laus í Laugardal, en þar þurfi líklega að auglýsa líka. Engin miðlæg skrá heldur utan um hversu margir hafa sótt um dagvistun í þessum hverfum, og þar með hversu margir eru á bið- lista, enda halda dagforeldrar sínar eigin skrár. Síðastliðið haust var lítil spurn eftir lausum plássum hjá dagfor- eldrum í Reykjavík. Fullmann- að var á leikskólum og metfjöldi barna komst inn á þá. Við þessar aðstæður fækkaði dagforeldrum. Ofan á bættist að um áramótin lækkuðu borgaryfirvöld svokall- aða þjónustutryggingu, eða heim- greiðslur; fé til foreldra sem ekki fara með börn sín á leikskóla eða til dagforeldra. „Og það hefur aldrei verið hringt jafn rosalega mikið og núna um áramótin, ekki síðan ég byrjaði fyrir níu árum,“ segir Ólöf Lilja Sigurðardóttir, stjórnarmaður í Barnavistun, félagi dagforeldra. Í áranna rás hafi ástandið allt- af verið erfiðara í miðbænum en í úthverfum: „En núna vantar alls staðar.“ Ólöf kveður heimgreiðslur hafa spillt mikið fyrir og verið lækk- aðar of seint: „Ef þær hefðu ekki verið væru sennilega mun fleiri dagforeldrar að störfum í dag,“ segir Ólöf, sem efast um að dag- foreldrarnir snúi aftur „þótt það sé allt vitlaust að gera“. Ragnhildur Erla efast um að þessar greiðslur séu rót vandans. Á þenslutímum sé einfaldlega erf- iðara að fá fólk á leikskólana. Þá sé eftirspurnin meiri hjá dagforeldr- um, sem fjölgi. klemens@frettabladid.is Skíðabox St i l l ing hf . · S ími 520 8000 www.st i l l ing. is · s t i l l ing@sti l l ing. is VIÐSKIPTI Eiginfjárhlutfall 365 miðla mun ríflega tvöfaldast gangi hlutafjáraukning fyrirtækisins upp á einn milljarð króna eftir. Málið verður tekið fyrir á hluthafafundi fyrirtækisins í fyrramálið. Fyrir liggja hugmyndir um að skipta hlutafé 365 miðla í A-hluta, sem ber atkvæðarétt, og B-hluta, sem er án atkvæðaréttar en nýtur forgangs 25 prósent nafnverði arð- greiðslna. Hlutaféð skiptist í áður- nefnd hlutföll. Ari Edwald, forstjóri 365 miðla, sem meðal annars gefur út Frétta- blaðið, segir féð tryggt. Eignar- hald og skipting á eignahlutum verði að vera gefin upp eftir hluta- fjáraukninguna fyrir 1. apríl næst- komandi. Hann segir núverandi eigend- ur og aðila þeim tengdum á meðal þeirra sem leggi til hlutafé í A- hluta. Stærsti hluthafi fyrirtæk- isins er Jón Ásgeir Jóhannesson. Utanaðkomandi fjárfestar muni líklega tryggja sér forgangsbréf- in í B-hluta. „Þetta er algengt fyr- irkomulag hjá erlendum fjölmiðla- félögum,“ segir hann og vísar til bandaríska stórblaðsins Wall Street Journal, sem skiptir hlutafé sínu með sambærilegum hætti. Ekki hefur verið rætt um skrán- ingu félagsins á markað á ný, að sögn Ara. - jab Upplýsingar um hluthafa 365 miðla verða gefnar upp eftir hlutafjáraukningu: Ekki rætt um skráningu á markað ARI EDWALD Rætt verður um skiptingu á hlutafé 365 miðla og aukningu hluta- fjár í dag. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI LISTAVERK Á SÝNINGU Sýningargestur virðir fyrir sér stóra styttu af nöktum manni eftir ástralska listamanninn Ron Mueck á sýningu í Melbourne. FRÉTTABLAÐIÐ/AP STJÓRNMÁL Guðmundur Rúnar Árnason varð í fyrsta sæti í próf- kjöri Samfylkingarinnar í Hafn- arfirði sem fram fór á laugar- dag. Guðmundur Rúnar hlaut 519 atkvæði í fyrsta sæti. Í öðru sæti varð Magrét Gauja Magnúsdótt- ir bæjarfulltrúi, Gunnar Axel Axelsson í þriðja og Eyjólfur Þór Sæmundsson í því fjórða. Lúðvík Geirsson bæjarstjóri hlaut 905 atkvæði í fyrsta til sjötta sæti. Hann bauð sig fram í sjötta sæti. Alls greiddu 1.127 atkvæði í prófkjöri en 2.150 voru á kjör- skrá. Kjörnefnd ætlar að telja atkvæðin aftur til staðfestingar. - kh Samfylkingin í Hafnarfirði: Kjörnefnd telur atkvæðin aftur PRÓFKJÖR Valdimar Svavarsson hagfræðingur sigraði í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Hafnar- firði sem fór fram á laugardag. Rósa Guðbjartsdóttir, bæjarfull- trúi og fyrrverandi fréttamaður, hafnaði í öðru sæti. Valdimar hlaut 460 atkvæði í fyrsta sætið en Rósa 458 og því munaði einungis tveimur atkvæðum á þeim. Rósa fékk 141 atkvæði í annað sætið en Valdi- mar 86. Í heildina hlaut Rósa 869 atkvæði og Valdimar 795. Á kjör- skrá voru 3.593 manns. Atkvæði greiddu 1.224. Prófkjör D-lista í Hafnarfirði: Valdimar náði efsta sætinu PRÓFKJÖR Guðríður Arnardótt- ir náði efsta sætinu í forvali Samfylkingarinnar í Kópavogi sem fram fór á laugardaginn. Guðríður var ein í framboði í fyrsta sætið og hlaut 87,4 prósent atkvæða. Í öðru sæti hafnaði Hafsteinn Karlsson, Pétur Ólafsson í þriðja sæti, Elfur Logadóttir í fjórða og Margrét Júlía Rafnsdóttir í fimmta sæti. Kosið var um sex efstu sæti listans. Samfylkingin í Kópavogi: Guðríður hlaut afgerandi kosn- ingu í Kópavogi Mikill skortur á dagforeldrum Dagforeldrum hefur fækkað síðustu mánuði. Leikskólasvið leitar að fólki til starfa í miðbænum. Alls eru 164 dagforeldrar að störfum en voru 188 árið 2007. Talsmaður segir dagforeldra vanta um alla borg. ÓLÖF LILJA SIGURÐARDÓTTIR ÁSAMT BÖRNUNUM Í nóvember og fram til áramóta var lítið sem ekkert að gera hjá dagforeldrum og margir þeirra hættu störfum. Nú er „allt vitlaust“ segir Ólöf en leikskólasvið segir eftirspurnina bundna við miðbæinn. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR FJÖLDI DAGFORELDRA 2010 162 2009 171 2008 188 2007 188 2006 177 2005 162 2004 164 RAGNHILDUR ERLA BJARNADÓTTIR ÍSRAEL, AP Ísraelsk stjórnvöld hafa hvorki játað því né neitað að hafa látið myrða Mahmoud al-Mabhoub á hótelherbergi í Abú Dabí 20. jan- úar síðastliðinn. Þau héldu því þó fram í gær að al-Mahboub hafi verið lykilmað- ur í vopnasmygli frá Íran til her- skárra Palestínumanna á Gasa- strönd. Ísraelar hafa allnokkrum sinnum verið sakaðir um að taka andstæðinga sína af lífi án dóms og laga hvar sem til þeirra næst. Al-Mahboub var einn af stofn- endum hernaðararms Hamas- samtakanna, sem fara með völd á Gasasvæðinu sem Ísraelar halda í nánast algerri einangrun. Hann var eftirlýstur í Ísrael fyrir aðild sína að ráni og morði á tveimur ísraelskum hermönnum árið 1989. Hamas-samtökin hafa fullyrt að Ísraelar beri ábyrgð á morðinu, en stjórnvöld í Abú Dabí segja að „klíka atvinnuglæpamanna“ með evrópsk vegabréf hafi líklega stað- ið að morðinu. Misvísandi frásagnir hafa bor- ist af því hvernig hann var myrt- ur. Tatal Nassar, fjölmiðlafull- trúi Hamas í Damaskus, sagði að honum hafi verið byrlað eitur og síðan hafi hann hlotið raflost, en Hussein, bróðir al-Mahboubs, segir að hann hafi látist af völdum bæði raflosts og köfnunar þegar klæði var haldið að vitum hans. - gb Ísraelar játa hvorki né neita morði í Abú Dabí: Háttsettur Hamas-liði sakaður um vopnasmygl MÓÐIR HINS MYRTA Sýnir blaðamönnum mynd af syni sínum, sem fannst látinn á hótelherbergi í Abú Dabí. FRÉTTABLAÐIÐ/AP

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.