Fréttablaðið - 01.02.2010, Side 18

Fréttablaðið - 01.02.2010, Side 18
Beate Stormo kom til Íslands frá Noregi fyrir 20 árum og fór í sveit á Kristnesi. Þar bjó ungur bóndasonur, Helgi að nafni. Þau giftust, eignuðust þrjá syni og búa þar enn í dag þar sem þau eru með geitur, kindur, kanínur og hænur. Hún stundar járnsmíði, hann málar og saman hanna þau og sauma föt, mikið úr efnum sem þau framleiða frá grunni. „Það er í raun ekkert vöru- merki,“ svarar Helgi aðspurð- ur hvað merkið þeirra heiti. „Sköpunarþátturinn er svo stór í þessu. Ferlið sem fylg- ir því að skapa eitthvað nýtt, frekar en að framleiða einungis í þeim tilgangi að selja það. Við höfum ekki lagt okkur mikið fram við að vera með verslun, fyrir utan desembermán- uðina þegar minna er að gera á bænum.“ Þau notast mikið við náttúruleg efni í hönnuninni eins og ull, hör, hvalskíði og leður, en eru þó óhrædd við að sameina fullkomnar andstæður á borð við plast og önnur gerviefni. Til að mynda var Rögnvaldur gáfaði úr Hvanndalsbræðrum klæddur í jakka frá Beate sem gerður er úr áburðarplasti á sviði undan- keppni Eurovision nýlega. Þau hjón koma víða við á lista- sviðinu. Helgi hefur sýnt á mynd- listarsýningum, myndskreytt bækur og er meðlimur í hljóm- sveitinni Helga og hljóðfæraleik- urunum. Beate hannar og saum- ar meðal annars brúðarkjóla og smíðar allt frá litlum skartgrip- um yfir í girðingahlið úr járni. Þetta gera þau meðfram búskapn- um. „Það er ekk- ert til sem heit- ir týpískur dagur,“ segir Beate. „Það er ein- mitt það sem er svo skemmtilegt við þetta allt saman.“ - sv Eldsmíðaðar hurðarlamir og loka eftir Beate. Beate í kjól sem hún hannaði sjálf. MYND: KERTISKAL BEATE Beate og Helgi í eldhúsinu við nokkur af verkum Helga. UPPÞVOTTALÖGUR er til ýmissa hluta nytsamlegur. Eftir Exxon Valdez-olíulekann árið 1989 notuðu fuglabjörgunarmenn Dawn- uppþvottalög til að hreinsa fugla sem höfðu orðið gegnsósa í olíu. Ekkert sem heit- ir týpískur dagur Hjónin Beate Stormo og Helgi Þórsson búa á bænum Kristnesi í Eyjafjarðarsveit. Bæði eru þau búfræðingar að mennt og stunda garðyrkju og búskap, á milli þess sem þau hanna og skapa. Borgartúni 25 | Reykjavík | Sími 570 4000 | raudakrosshusid@redcross.is | www.raudakrosshusid.is | Opið virka daga kl. 12-17 Ókeypis námskeið og ráðgjöf Mánudagur 1. febrúar Miðvikudagur 3. febrúar Fimmtudagur 4. febrúar Qi – Gong - Viðar H. Eiríksson kennir æfingar sem hjálpa fólki að afla, varðveita og dreifa orku um líkam- ann. Tími: 12.00-13.00. Gönguhópur - Klæddu þig eftir veðri. Tími: 13.00 -14.00. Móðir í 10. bekk – Reynslusaga konu sem átti barn þegar hún var sjálf ennþá barn. Tími: 13.30 -14.30. Býflugurnar - Vinnum saman - Ný viðhorf - Vertu með í skapandi hópi atvinnuleitenda. Tími: 14.00-16.00. Öndun, íhugun og lifað í núinu – Láttu þægilegri hugsanir og líðan taka yfir. Tími: 14.30 -15.30. Baujan sjálfstyrking – Fullt! Tími: 15.00 -17.00. Skiptifatamarkaður - Barnaföt - Tími: 16.00 -18.00. Fluguhnýtingar fyrir byrjendur – Kennd verður grunntæknin og byrjað á auðveldum atriðum. Fyrsti hluti af fjórum. Skráning nauðsynleg. Tími: 12:00 -13.30. Saumasmiðjan - Bættu og breyttu. Tími: 13.00-15.00. Þýskuhópur - Vltu æfa þig í þýsku? Í þessari viku tölum við saman á þýsku um gæludýr. Tími: 14.00-14.45. Frönskuhópur – Viltu æfa þig að tala frönsku? Við tjáum okkur á frönsku um þorrann og þorramat. Tími: 15:00 -15.45. Jóga - Viltu prófa jóga? Tími: 15.00-16.00. Noregur og norska - Æfðu þig í norsku, fáðu góð ráð og taktu þátt í umræðum. Tími: 12.30 -13.30. Gönguhópur - Klæddu þig eftir veðri. Tími: 12.30 -13.30. Trommuhringur – Heiðrún Hámundar kennir grunn- atriði drumbusláttar á bongo-, congas- og djembe- trommur. Spilum saman rythma og búum til nýja. For- vitni og áhugi er nóg og engrar tónlistarkunnáttu krafist til að fá jákvæða útrás! Tími: 14.00-15.00. Hláturjóga - Viltu losa um spennu og fylla lífið af hlátri og gleði? Tími: 15.30-16.30. Föstudagur 5. febrúar Sálrænn stuðningur – Fjallað er um áhrif áfalla og al- varlega atburða á líðan fólks. Tími: 12.30 -14.00. Facebook – Stækkaðu tengslanetið. Tími: 12.30 -14.00. Prjónahópur – Lærðu að prjóna. Tími: 13.00 -15.00. Enskuhópur - Viltu æfa þig í að tala ensku? Komdu og spjallaðu og fáðu leiðsögn. Tími: 14.00-15.00. Skákklúbbur – Fyrir alla skákmenn. Tími: 15.30 -17.00. Allir velkomnir! Áhugasviðsgreining – Könnun og fagleg ráðgjöf. Skráning nauðsynleg. Tími: 13.00 -15.00 Tölvuaðstoð - Persónuleg aðstoð. Tími: 13.30-15.30. Ráðgjöf fyrir innflytjendur– Sérsniðin lögfræðiráð- gjöf og stuðningur við innflytjendur. Tími: 14.00 -16.00. Briddsklúbbur - Hefur þú gaman af bridds? Alltaf langað til að læra bridds? Tími: 14.00-16.00. Gítarnámskeið - Fullt! Tími: 15.00-16.30. Þriðjudagur 2. febrúar Rauðakrosshúsið Ræktun - Sumarblómin – Nú er tíminn fyrir forsán- ingu sumarblóma og ekki nauðsynlegt að hafa mikið pláss, stóran garð eða græna fingur. Lærðu hvernig er best að bera sig að. Tími: 12.30 -14.00. Komdu, taktu þátt og leggðu þitt að mörkum Gardinur fataefni gjafavara ‘

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.