Fréttablaðið - 01.02.2010, Qupperneq 37
BAKÞANKAR
Gerðar
Kristnýjar
MÁNUDAGUR 1. febrúar 2010 21
■ Pondus Eftir Frode Øverli
■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes
■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman
Segðu mér eitt .. hvað
er þetta sem þú hefur
sett hérna aftan á
Opelinn þinn?
Þetta er
spoiler.
Einmitt.
Hæ,
Sara. (andköf)
Palli, þú ert kom-
inn með skegg.
Má ég
snerta
það?
Auðvitað!
Af hverju
ekki?
Það er skiljanlegt
að stúlkur sem
þú hafi gaman
af því að renna
fingrum sínum
í gegnum karl-
mannsskegg.
Reyndar vildi
ég bara bursta
mylsnurnar
burt.
Ég þarf að
skila inn
ritgerð um
höfuðborg
einhvers
lands fyrir
mánudag-
inn.
Ef þú hjálpar
mér ekki
mun ég
aldrei klára
þetta.
Nú jæja.
Allt í lagi þá.
(andvarp) Takk pabbi, ég verð
inni í eldhúsi.
Þú hefðir
getað sýnt
aðeins meiri
áhuga.
Síðan
hvenær þarf
gísl að sýna
áhuga?
Í guðanna
bænum, amma,
blástu á kertin!
Hringdu í síma
ef blaðið berst ekki
Á mánudagskvöldið sló sölukona á þráð-inn til mín. „Halló!“ sagði ég í tólið
og hafði varla sleppt orðinu þegar synir
mínir þurftu báðir á mér að halda. Það
er segin saga að í hvert sinn sem ég fer í
símann vilja þeir að ég finni bangsa, bíla
eða pleymósjóræningjahandjárn. „Halló!“
sagði röddin á hinum enda línunnar. „Má
bjóða þér áskrift að tímaritinu Lifandi
vísindum … eða nei!“ Konan hugsaði sig
um og bætti við: „Ég meina Nýju lífi.“
„NEI, takk,“ sagði ég. Á kvöld-
in finnst mér mig aldrei vanta
neitt nema svefn en áður en að því
kemur þarf samt að finna bangs-
ann, bílinn og pleymósjóræningja-
handjárnin. „Ókei, bless,“ svaraði
konan snögg upp á lagið og þar
með lauk símtalinu. Einu sinni var
ég ritstjóri hjá tímaritaútgáfu sem
síðan hefur skipt um kennitölu og
heitir nú allt öðru nafni en þegar
ég laut þar yfir ljósaborð og át
prinspóló í öll mál. Þegar ég fór
í barnsburðarleyfi þáði ég að
nokkur tímaritanna yrðu send
heim til mín.
SÍÐAN þá hef ég ekki með
nokkru móti getað losnað af
lista eftirhreytna fyrirtækis-
ins yfir „fyrrverandi áskrifendur“ og fæ
þess vegna reglulega upphringingar frá
sölufólki. Engu skiptir að litlu tákni hafi
verið komið fyrir við nafnið mitt í síma-
skránni til merkis um að ég vilji ekki að
sölufólk hringi í mig. Ástandið var ósköp
svipað þegar ég var ritstjóri því þá var
stundum hringt í mig frá útgáfunni og
mér boðin áskrift að tímaritinu sem ég
ritstýrði. Þá kom stundum upp í mér púk-
inn: „Sérðu myndina af konunni þarna hjá
ritstjórnarpistlinum? Þetta er ég.“
EINHVERJU sinni kom ég fram í auglýs-
ingaherferð banka sem síðan hefur líka
skipt nokkrum sinnum um nafn. Þá var
hringt í mig nokkrum sinnum og reynt
að fá mig til að kaupa það sem ég sjálf
auglýsti á skiltum, í dagblöðum og sjón-
varpi og hafði því fyrir margt löngu bæði
kynnt mér og nýtt. Ekki fannst mér síður
skemmtilegt þá að segja: „Sjáðu kon-
una í plöggunum fyrir framan þig. Þetta
er ég.“ Kæra sölufólk, geymið þennan
pistil. Þegar það hvarflar að ykkur að
hringja í mig til að selja mér eitthvað –
þótt ég óski eftir því að það sé látið ógert
– getið þið að minnsta kosti látið mér
eftir þá ánægju að segja: „Sérðu konuna
á úrklippunni fyrir framan þig og skrifar
um að hún vilji ekki að sölufólk hringi í
sig? Það er ég!“
Litla stúlkan með áskriftirnar