Fréttablaðið - 01.02.2010, Page 42
26 1. febrúar 2010 MÁNUDAGUR
NÝTT! MARGFALDUR ÁVINNINGUR FYRIR KYLFINGA
KORTHAFAR PREMIUM ICELANDAIR AMERICAN
EXPRESS GREIÐA EKKERT ÁRGJALD Í ICELANDAIR
GOLFERS
ICELANDAIR GOLFERS
Félagar í klúbbnum njóta ýmissa hlunninda og fríðinda:
• Ekkert gjald er tekið fyrir golfsett í áætlunarflugi Icelandair
• 2.500 Vildarpunktar
• 2.000 króna gjafabréf í Saga Shop
• 100 æfingaboltar í Básum
PREMIUM ICELANDAIR AMERICAN EXPRESS
Greiðslukort sem veitir margföld hlunnindi á við venjuleg
greiðslukort og margborgar sig að nota bæði hér heima
og í golfferðum erlendis.
Meðal fríðinda Premiumkortsins má nefna:
• Ókeypis aðild að Icelandair Golfers
• 15 Vildarpunktar af hverjum 1.000 kr. af öllum færslum
kortsins heima og erlendis
• 20 Vildarpunktar af hverjum 1.000 kr. af öllum keyptum
miðum og um borð hjá Icelandair
• Frítt bílastæði við Leifsstöð þegar flogið er með Icelandair
• Aðgangur að flýtiinnritun í Leifsstöð
• Viðbótarfarangursheimild
• Aðgangur að betri stofu Icelandair í Leifsstöð
• 10.000 Vildarpunktar við fyrstu notkun kortsins
SLÁÐU HOLU Í HÖGGI OG FÁÐU ÞÉR PREMIUM
Þú getur sótt um Premium Icelandair American
Express á Icelandairgolfers.is
Enska úrvalsdeildin
Birmingham-Tottenham 1-1
0-1 Jermain Defoe (69.), 1-1 Liam Ridgewell
(90.+1)
Fulham-Aston Villa 0-2
0-1 Gabriel Agbonlahor (40.), 0-2 Gabriel
Agbonlahor (44.)
Hull-Wolves 2-2
1-0 Jan Vennegoor of Hesselink (11.), 1-1
sjálfsmark (48.), 2-1 Stephen Hunt, víti (51.), 2-2
Matthew Jarvis (66.)
Liverpool-Bolton 2-0
1-0 Dirk Kuyt (37.), 2-0 sjálfsmark (70.)
West Ham-Blackburn 0-0
Wigan-Everton 0-1
0-1 Tim Cahill (83.)
Burnley-Chelsea 1-2
0-1 Nicolas Anelka (27.), 1-1 Steven Fletcher
(50.), 1-2 John Terry (82.).
Manchester City-Portsmouth 2-0
1-0 Emmanuel Adebayor (39.), 2-0 Vincent
Kompany (46.).
Arsenal-Manchester United 1-3
0-1 Nani (33.), 0-2 Wayne Rooney (37.), 0-3 Ji-
Sung Park (52.) 1-3 Thomas Vermaelen (79.)
STAÐAN Í DEILDINNI:
Chelsea 23 17 3 3 57-19 54
-----------------------------------------------------
Man.United 24 17 2 5 56-20 53
Arsenal 24 15 4 5 60-28 49
Tottenham 24 12 6 6 45-25 42
-----------------------------------------------------
Liverpool 24 12 5 7 42-26 41
Man. City 22 11 8 3 44-30 41
Aston Villa 23 11 7 5 31-18 40
Birmingham 23 9 7 7 22-23 34
Everton 23 8 8 7 33-34 32
Blackburn 24 7 7 10 25-40 28
Fulham 23 7 6 10 26-28 27
Stoke City 21 6 7 8 19-26 25
Sunderland 22 6 5 11 30-40 23
Wigan Athletic 22 6 4 12 24-47 22
West Ham 23 4 9 10 29-38 21
Bolton 22 5 6 11 29-44 21
Wolves 23 5 6 12 19-40 21
-----------------------------------------------------
Burnley 23 5 5 13 23-46 20
Hull City 23 4 8 11 22-48 20
Portsmouth 22 4 3 15 19-35 15
Enska b-deildin
Cardiff-Doncaster 2-1
Coventry-Blackpool 1-1
Aron Einar Gunnarsson var í byrjunarliði Coventry
en var tekinn af velli á 57. mínútu.
Crystal Palace-Peterborough 2-0
Derby-Nottingham Forest 1-0
Leicester-Newcastle 0-0
Middlesbrough-Bristol City 0-0
Preston-Ipswich 2-0
QPR-Scunthorpe 0-1
Reading-Barnsley 1-0
Ívar Ingimarsson, Brynjar Björn Gunnarsson og
Gylfi Þór Sigurðsson léku allan leikinn fyrir
Reading. Gunnar Heiðar Þorvaldsson sat allan
leikinn á bekknum. Emil Hallfreðsson kom inn
sem varamaður í liði Barnsley á 74. mínútu.
Reading-Barnsley 1-0
Sheffield Wednesday-Plymouth 2-1
Kári Árnason lék allan leikinn með Plymouth.
West Brom-Sheffield United 3-1
ÚRSLIT Í ENSKA
FÓTBOLTI „Ég held að þetta hafi
verið minn besti leikur fyrir
Manchester United,“ sagði portú-
galski vængmaðurinn Nani eftir
að United vann sannfærandi sigur
á Arsenal í stórleik helgarinnar í
enska boltanum. Englandsmeistar-
arnir réðu ferðinni á miðsvæðinu
algjörlega og voru stórhættulegir
í hröðum sóknum sínum. Wayne
Rooney og Nani voru báðir hreint
magnaðir í leiknum.
Fyrir leikinn talaði Arsene
Wenger, knattspyrnustjóri Ars-
enal, um mikilvægi þess að vinna
sigur í þessum leik til að halda tit-
ilvoninni á lífi á Emirates-vellin-
um. Hans menn réðu hins vegar
ekkert við Sir Alex Ferguson og
lærisveina í gær.
Frábær tilþrif frá Nani
Frábær tilþrif frá Nani eftir rúm-
lega hálftíma leik slógu Manu-
el Almunia, markvörð Arsenal,
út af laginu og fyrsta mark leiks-
ins leit dagsins ljós. Skráist það
sem sjálfsmark Almunia. Aðeins
fjórum mínútum síðar var Nani
aftur á ferðinni og lagði upp mark
fyrir Wayne Rooney eftir frábæra
skyndisókn. Þetta var hundraðasta
deildarmark Rooney.
Staðan var 0-2 í hálf-
leik en Kóreumaðurinn
Ji-Sung Park skoraði
þriðja og síðasta mark
Manchester United
í leiknum. Hann
fékk að hlaupa
óáreittur með
boltann að
marki Ars-
enal og skor-
aði með góðu
skoti. Thomas
Vermaelen náði að
minnka muninn en
lengra komust Ars-
enal-menn ekki og
voru þeir teknir í
kennslustund á eigin
heimavelli.
„Sjálfstraustið er
í botni hjá okkur og ég
gæti ekki verið ánægð-
ari. Þetta var frábær
leikur hjá liðinu og ég
er ánægður með minn
þátt. Við vorum
góðir í bikar-
leiknum gegn
Manchester
City og héldum
svo uppteknum
hætti í þess-
um leik. Ég hef
lagt mig allan
fram á æfinga-
svæðinu og
það hefur skil-
að því að ég er
að ná mér vel
á strik,“ sagði
Nani.
Leikmenn
A rsena l v i lja
gleyma þessum
leik sem fyrst og
þá kannski helst
Almunia og Gael
Clichy en sá síð-
arnefndi var oft
leikinn grátt af
Nani í leiknum. Þá átti Rooney
enn einn stórleikinn en fyrir leik-
inn gaf David Gill, framkvæmda-
stjóri Manchester United, það út
að Rooney yrði ekki seldur frá
félaginu sama hve hátt tilboð bær-
ist. Sögusagnir hafa verið í gangi
um að United þurfi að selja Roon-
ey vegna slæmrar fjárhagsstöðu
félagsins.
„Þetta er félagið mitt og ég er
mjög ánægður hér. Fjölskylda mín
býr í hálftíma fjarlægð og ég sé
enga ástæðu til að spila fótbolta
einhvers staðar annars staðar.
Manchester United er stærsta fót-
boltafélag heims,“ sagði Rooney.
Stigi á eftir Chelsea
Manchester United er nú stigi á
eftir Chelsea sem trónir á toppi
deildarinnar og á Lundúnaliðið
þar að auki leik inni. John Terry
skoraði sigurmark Chelsea gegn
Burnley á laugardaginn en hann
hefur verið aðalumfjöllunarefni
breskra slúðurblaða síðustu daga.
Ástæðan er að upp komst um fram-
hjáhald hans. Terry hélt við kær-
ustu fyrrum liðsfélaga síns hjá
Chelsea, Wayne Bridge. Nokkrir
fyrrum landsliðsmenn Englands
hafa stigið fram og segja rétt að
Terry verði sviptur fyrirliðaband-
inu hjá enska landsliðinu.
Það er allavega ljóst að hann
missir ekki fyrirliðabandið
hjá Chelsea. „Þetta er ekki til
umræðu og ég veit ekki af hverju
þú ert að spyrja mig að þessu.
Leikmennirnir munu aldrei tapa
trausti sínu til Terry,“ sagði Carlo
Ancelotti, stjóri Chelsea, í við-
tali við fjölmiðla eftir leikinn.
„Þetta var góð stund fyrir Terry
inni á vellinum en hann spilaði líka
vel í vikunni á móti Birmingham.
Ég þurfti ekkert að tala við hann
um þetta mál. Hann stóð sig vel á
æfingu í gær og það koma aldrei
til greina annað í mínum huga en
að hann myndi spila leikinn,“ sagði
Ancelotti. elvargeir@frettabladid.is
Klassamunur í stórleik helgarinnar
Wayne Rooney og Nani voru í banastuði hjá Manchester United þegar liðið vann 3-1 útisigur á Arsenal í
gær. Englandsmeistararnir voru mun sterkari í leiknum og halda áfram að fylgja Chelsea eins og skugginn.
MIKLU BETRI Manchester United sýndi sparihliðarnar gegn Arsenal og hér fagna leikmenn liðsins þriðja markinu sem
Ji-Sung Park skoraði. NORDICPHOTOS/GETTY
Í SVIÐSLJÓSINU Í GÆR
Nani fagnar hér marki sínu
ásamt Wes Brown.
MYND/NORDICPHOTOS/GETTY