Fréttablaðið - 01.02.2010, Síða 46

Fréttablaðið - 01.02.2010, Síða 46
30 1. febrúar 2010 MÁNUDAGUR 1 6 7 8 10 13 119 12 15 16 18 21 20 17 14 19 2 3 4 5 VEISTU SVARIÐ Svör við spurningum á síðu 8 1 5.000 bíla. 2 Gogoyoko. 3 í Háskólabíói. HVAÐ SEGIR MAMMA? TILBOÐ Í VEITINGASAL Súpa fi skur og kaffi 1290 GLÆNÝ LÍNUÝSA RAUÐMAGI PLOKKFISKUR ÝSA Í RASPI FISKIBOLLUR „Ég er rosalega stolt af honum og þeim öllum í liðinu. Hann hefur alltaf verið skaphundur og það fór fyrst að nýtast almenni- lega inni á vellinum. Hann er ofboðslegt gæðablóð utan vallar og fær alla útrásina sem hann þarf á milli stanganna.“ Linda Björg Finnbogadóttir er móðir Björgvins Páls Gústavssonar, eins mark varðar handboltalandsliðsins. Hljómsveitin Feldberg á lag í nýrri skartgripaauglýsingu sem var tekin upp hér á landi fyrir asíska fyrirtækið Goldheart Jewelery. Auglýsingin hefur verið áberandi í asísku sjónvarpi að undanförnu, þar sem fyrirsætan Thelma Þorm- arsdóttir er í aðalhlutverki. Lagið nefnist Sparkle In Your Life og var sérstaklega samið fyrir auglýsing- una. Lagahöfundurinn Einar Tönsberg er þessa dagana að lengja lagið í samvinnu við söng- konuna Rósu Ísfeld vegna þeirra góðu viðbragða sem það hefur fengið erlendis. Nú styttist í að þjóðin velji framlag sitt til Eurovision-keppninnar sem að þessu sinni fer fram í Osló. Í fyrra bar lítið á harðri keppni kepp- enda um að koma sér á framfæri í fjölmiðlum en samkvæmt heimild- um Fréttablaðsins hafa þau Örlygur Smári og Hera Björk feng- ið sjálfan Valla Sport til að sjá um fjölmiðlahliðina fyrir sig og mun hans hlutverk vera að passa að enginn gleymi hvorki lagi né flytjanda þegar út í úrslitin er komið. Og kannski er þetta ekkert skrýtið því á netinu logar nú allt í umræð- um um hvort lagið Je ne sais quoi sé stolið. Valli var auðvitað hluti af einhverju mesta Eurovision-stríði seinni tíma þegar Eurobandið og Mercedez Club börðust af mikilli hörku um að komast í úrslitin fyrir þremur árum. Valli var þá með Mercedez Club innan sinna vébanda og var hársbreidd frá því að koma þeim í sjálfa loka- keppnina. - fb/fgg FRÉTTIR AF FÓLKI „Ég ákvað að breyta starfsheit- inu í magadansmær af því það er enginn að fara að leita að útvarps- konu til að taka að sér skemmtileg verkefni. Ég var áður skráð sem plötusnúður en er orðin mettuð af verkefnum á því sviði og ákvað þess vegna að breyta til,“ útskýrir Margrét Erla Maack, útvarpskona á Rás 2, sem hefur breytt starfs- heiti sínu í símaskránni og kall- ast nú magadansmær. Hún seg- ist hafa staðið í ströngu til að fá starfsheitið í gegn þar sem starfs- menn símaskrárinnar hafi talið að um grín væri að ræða. „Maga- dansmær var ekki löglegt starfs- heiti og þau héldu að þetta væri eitthvert grín, sem það er ekki því ég hef stundað magadans í fimm ár og kenni meðal annars í Kram- húsinu. Þegar ég fór svo á stúfana sá ég að það voru nokkrar ninjur í símaskránni, fimm geimkúrekar, ljónatemjarar og þó nokkrir snill- ingar. Það endaði með því að ein yndisleg kona sem vann þarna hafði samband við ritstjóra síma- skrárinnar og nú er þetta komið í gegn.“ Margrét Erla er enn sem komið er eina magadansmærin á landinu en telur að þeim muni fjölga innan skamms því hér séu margar konur sem stundi magadans. Hún segist þó ánægð með að hafa loks feng- ið starfsheitið í gegn. „Ég er mjög ánægð og líka fegin því ég óttaðist í fyrstu að ég myndi fá símhring- ingar frá einhverjum dónakörl- um, en þeir hafa alveg látið mig í friði.“ - sm Útvarpskona verður dansmær Boðberi er íslensk kvikmynd sem fjallar um venjulegan mann sem skyndilega fær vitranir um lífið eftir dauðann. Kvikmyndin er í leikstjórn Hjálmars Einarsson- ar og á meðal leikenda eru Darri Ingólfsson, Ísgerður Elfa Gunn- arsdóttir, Magnús Jónsson og Jón Páll Eyjólfsson. Myndin hefur verið nokkurn tíma í framleiðslu en að sögn Hjálmars er allri eftirvinnu nú að mestu lokið og hægt verður að berja afraksturinn augum innan skamms. Auk þess að leikstýra kvikmynd- inni skrifaði Hjálmar handritið að henni og segist hann hafa gert það á mettíma. „Ég bjó í Prag í fimm ár og þegar ég flutti heim í byrj- un árs 2008 leið mér eins og útlend- ingi í eigin landi. Á stuttum tíma voru risin hverfi sem ég þekkti ekki og maður sá byggingarkrana á hverju götuhorni og fann hvernig þetta gróðaæði hafði tröllriðið öllu. Ég fór að velta þessu aðeins fyrir mér og byrjaði að skrifa handrit- ið að Boðbera,“ útskýrir Hjálmar. Hann segir að myndin hafi verið tekin fyrir hrun og því hafi það komið honum á óvart hversu vel rættist úr söguþræði kvikmyndar- innar. „Myndin fjallar svolítið um hvernig venjulegt fólk rís upp gegn yfirvaldinu og þegar raunveruleik- inn fór að elta söguþráðinn varð maður uggandi. En vonandi rætist ekki úr meiru því þá færi illa fyrir sumum.“ Hjálmar segir að það hafi verið mikið ævintýri að taka upp kvik- myndina, en alls komu hátt í þriðja hundrað manns að gerð hennar og voru vinnudagarnir langir og strembnir. „Þetta voru langir dagar og bjórbumban sem ég hafði safn- að í Prag var horfin þegar tökum loks lauk. En þetta var líka algjört ævintýri og mikill hasar. Það er skemmtilegt að segja frá því að þegar við vorum næstum búin að mynda vantaði bara eina mótmæla- senu sem átti að gerast á Austur- velli. Við ætluðum að reyna að redda því með tæknibrellum en stuttu áður en við réðumst í það var efnt til raunverulegra mótmæla á Austurvelli og ekki bara eina helgi, heldur helgi eftir helgi, þannig að allt í einu vorum við komnir með mótmælasenuna sem við þörfn- uðumst.“ Áhugasömum er bent á heimasíðu kvikmyndarinnar sem er www.bodberi.com. sara@frettabladid.is HJÁLMAR EINARSSON: LEIÐ EINS OG ÚTLENDINGI Á ÍSLANDI ÍSLENSKI VERULEIKINN ELTI KVIKMYNDAHANDRITIÐ MIKIÐ ÆVINTÝRI Hjálmar Einarsson segir það hafa verið mikið ævintýri að taka upp kvikmynd sína, Boðbera. Darri Ingólfsson leikur aðalhlutverkið í myndinni. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM MAGADANSMÆR Útvarpskonan Margrét Erla Maack hefur breytt starfsheiti sínu í símaskránni og kallast nú magadans- mær. MYND/RÓSALIND HANSEN LÁRÉTT 2. glansa, 6. þys, 8. mælieining, 9. atvikast, 11. tveir eins, 12. nafnbætur, 14. kriki, 16. kúgun, 17. sunna, 18. við, 20. horfði, 21. álits. LÓÐRÉTT 1. löngun, 3. í röð, 4. planta, 5. fiskur, 7. möttull, 10. skammstöfun, 13. prjónavarningur, 15. hestur, 16. mælieining, 19. snæddi. LAUSN LÁRÉTT: 2. gljá, 6. ys, 8. mól, 9. ske, 11. ll, 12. titla, 14. kverk, 16. ok, 17. sól, 18. hjá, 20. sá, 21. mats. LÓÐRÉTT: 1. lyst, 3. lm, 4. jólarós, 5. áll, 7. skikkja, 10. etv, 13. les, 15. klár, 16. ohm, 19. át. „Þetta er alveg rosalega góður árangur. Erlend- is er fólk að tala um þá bræður sem bestu snjó- brettakeppendur heims,“ segir Linda Björk Sumarliðadóttir, formaður Brettafélags Íslands. Halldór Helgason, átján ára gamall Akureyring- ur, vann á sunnudagsnótt til gullverðlauna í Big Air-keppninni, sem gengur út á að framkvæma tæknilega besta stökkið af stórum palli, á Winter X-Games-mótinu í Denver í Aspen í Bandaríkjun- um. Mótið er það stærsta sinnar tegundar í heimi þar sem keppt er í jaðaríþróttum. Halldór vann Big Air-keppnina með fullu húsi stiga og segir Linda Björk það vera hreint ótrú- lega góðan árangur. Halldór var nýlega kosinn nýliði ársins hjá tímaritinu Transworld Snowboarding, sem er mest lesna snjóbrettatímarit heims. Bróðir Hall- dórs, hinn 22 ára Eiríkur „Eiki“ Helgason, fékk lesendaverðlaun blaðsins við sama tilefni. Í nótt keppti Halldór svo til úrslita í snjóbretta- grein sem kallast slopestyle. Í þeirri grein fara keppendur í gegnum nokkra stökkpalla. Í undanúrslitunum í þeirri grein hlaut Halldór 93 stig og var Linda ekki í nokkrum vafa um að hann myndi standa sig vel í lokakeppninni. „Bræðurnir eru miklir íþróttamenn og þjóð- in hefur alveg jafn mikla ástæðu til að vera stolt af þeim og landsliðinu í handbolta,“ segir Linda Björk Sumarliðadóttir. - kg Átján ára Akureyringur slær í gegn á stærsta jaðaríþróttamóti heims: Halldór vann gull á X-Games FULLT HÚS STIGA Halldór Helgason náði góðum árangri í Aspen um helgina. FRÉTTABLAÐIÐ/AFP

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.