Fréttablaðið - 15.02.2010, Qupperneq 6
6 15. febrúar 2010 MÁNUDAGUR
DÓMSMÁL „Forstjórinn þekkir
manna best til þessara mála og
veit að dylgjur hans eiga ekki við
nein rök að styðjast,“ segir Örn
Þórðarson, formaður stjórnar
Sorpstöðvar Suðurlands, um ásak-
anir Jóns Frantzsonar, forstjóra
Íslenska gámafélagsins, á hendur
Sorp stöðinni.
Í viðtali við Fréttablaðið og í
grein í Sunnlenska fréttablaðinu
fyrir skömmu sakaði Jón Frantzson
forsvarsmenn
Sorpstöðvar-
innar um fyrir-
hyggjuleysi í að
finna nýjan urð-
unarstað fyrir
Sunnlendinga
í stað urðunar-
staðar í Kirkju-
ferjuhjáleigu
sem lokað var í
desember. Hann sagði að Íslenska
gámafélagið hefði lagt fram
kæru vegna meintra brota á bæði
stjórnsýslu- og samkeppnislög-
um. Kæran væri byggð á ákvæði
í samningi Sorpstöðvarinnar og
Sorpu um að allur endurvinnan-
legur úrgangur af Suðurlandi færi
ásamt öðru rusli til Sorpu á Álfs-
nesi.
Örn Þórðarson segir að for-
stjóri Íslenska gámafélagsins viti
að dylgjur hans um fyrirhyggju-
og getuleysi stjórnar Sorpstöðv-
ar Suðurlands varðandi leit að
nýjum urðunarstað séu órökstudd-
ar. „Vinna Sorpstöðvar Suðurlands
hefur byggst á þekkingu, framsýni
og áhuga á að leita hagstæðustu og
hentugustu leiða,“ segir Örn sem
kveður stjórn Sorpstöðvarinnar
alltaf hafa unnið að því að hafa
úrgangsmál á Suðurlandi í eins
góðum farvegi og aðstæður leyfi.
Varðandi nýjan urðunarstað á
Suðurlandi segir Örn að eftir hert-
ar reglur á sviði úrgangsstjórnunar
hafi sveitarfélög á suðvesturhorni
landsins tekið upp samstarf og gert
ráð fyrir sameiginlegum urðunar-
stað fyrir suðvesturhornið.
„Í kjölfar hrunsins kom síðan
fram áhugi hjá sveitarfélögum á
Suðurlandi um að opnaður yrði nýr
urðunarstaður á Suðurlandi í stað
þess að nýta einn sameiginlegan
stað fyrir allt suðvesturhornið.
Unnið hefur verið að slíkri lausn
síðan þá,“ bætir Örn við og ítrek-
ar að farið sé eftir lögum og regl-
um og eftir þeim markmiðum sem
stjórnvöld og sveitarfélög á Suður-
landi hafi sett sér.
„Í dag eru þessi markmið afar
metnaðarfull, en þeim fylgir auk-
inn kostnaður fyrir íbúa og fyr-
irtæki. Það hefur alltaf legið
fyrir. En um leið fylgir þeim auk-
inn samfélags- og umhverfisleg-
ur ávinningur,“ útskýrir forstjóri
Sorpstöðvarinnar og kallar eftir
áframhaldandi góðu samstarfi
allra sem koma að málefnum
úrgangsstjórnunar, jafnt opin-
berra sem einkaaðila: „Rang-
færslur og rakalausar ávirðingar
eru ekki rétta leiðin til að styrkja
þá framþróun í úrgangsmálum
sem fram undan er. Sérstaklega
ekki þegar talað er gegn betri vit-
und.“
gar@frettabladid.is
Dylgjur um getuleysi
eru alveg rakalausar
Formaður stjórnar Sorpstöðvar Suðurlands segir félagið vinna af þekkingu og
framsýni að hentugustu leiðum í úrgangsmálum. „Dylgjur“ forstjóra Íslenska
gámafélagins um fyrirhyggjuleysi séu ósannar og settar fram gegn betri vitund.
ÖRN ÞÓRÐARSON
N
JARÐARBRAUT 9 - REYK
JA
NE
SB
Æ
FIS
KIS
LÓÐ
3 - REYKJAVÍK
RSÍ krefst ...
Nánari upplýsingar á www.asi.is
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
40
92
4
... þess að ríkið
bjóði tafarlaust út
verklegar framkvæmdir.
Ætti lögreglan að leita að fíkni-
efnum á öllum stórum vinnu-
stöðum á landinu?
Já 63,8
Nei 36,2
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Eru íslenskir stjórnmálamenn
upp til hópa spilltir?
Segðu skoðun þína á Vísi.is
EFNAHAGSMÁL Heppilegasta leiðin
til afnáms gjaldeyrishafta er að
ríkisstjórn og Seðlabanki bjóði
fram skuldabréf í erlendum gjald-
miðlum til allt að fimmtán ára á
móti eignum fjárfesta í krónum.
Þetta er mat Samtaka atvinnulífs-
ins (SA) og kemur fram í ítarlegri
aðgerðaáætlun sem kynnt var á
föstudag.
Erlendir fjárfestar áttu hundr-
uð milljarða krónueignir í Seðla-
bankanum þegar gjaldeyrishöft
voru sett í lok nóvember 2008 en
við það festust þeir inni með eign
sína. Tilraun var gerð til að vinda
ofan af vandanum og gera fjár-
festunum kleift að lána íslenskum
fyrirtækjum krónur á móti endur-
greiðslu í erlendri mynt í fyrra.
Lítið hefur heyrst af árangrin-
um.
SA segir áform Seðlabankans
um afnám gjaldeyrishaftanna
metnaðarlitla. Leið SA felur í sér
að þegar ákveðið verði að gefa út
skuldabréf í erlendum gjaldeyri
verði tilkynnt með nokkurra mán-
aða fyrirvara hvenær höft verði
afnumin. Fjárfestar verði þá að
veðja á skuldabréf í erlendri mynt
á núverandi gengi eða taka áhætt-
una, halda í eignina og veðja á að
krónan styrkist.
Vilhjálmur Egilsson, fram-
kvæmdastjóri SA, sagðist á
blaðamannafundi á föstudag
telja krónueignirnar að mestu
komnar í eigu fjárfesta sem hafi
hag af styrkingu krónunnar. Því
megi gera ráð fyrir að færri taki
skuldabréfin. - jab
VILHJÁLMUR EGILSSON Telur að krónu-
eignir í Seðlabankanum séu komnar í
eigu íslenskra fjárfesta sem hafi hag af
styrkingu gengisins. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Ríki og Seðlabanki eiga að semja við eigendur krónueigna og afnema höft:
Hafa hag af styrkingu krónu
SKIPULAGSMÁL Ekki fór fram
umhverfismat á nýja veginum frá
Hringbraut út í Nauthólsvík sem
nefndur er Nauthólsvegur. Veg-
urinn var engu að síður opnaður
þann 4. febrúar síðastliðinn.
Samkvæmt heimildum Frétta-
blaðsins óskaði borgin eftir ráð-
leggingum frá Skipulagsstofnun
varðandi meðferð á „bráðabirgða-
útfærslu“ vegarins í janúar 2007.
Skipulagsstofnun sendi frá sér
svarbréf 7. febrúar sama ár þar
sem fram kemur að leggja þurfi
mat á þau umhverfisáhrif sem
framkvæmdin muni hafa í för
með sér. Til greina komi þó að
meta eingöngu þann áfanga sem
fyrirhugaður sé. Umhverfismat
fór hins vegar ekki fram og hefur
vegurinn eins og fyrr segir verið
opnaður umferð. Þær upplýsing-
ar fengust hjá borginni að ekki
hafi þurft að viðhafa umhverf-
ismat þar sem vegurinn sé skil-
greindur sem tengibraut í þéttbýli
og einungis ætlaður til bráða-
birgða.
„Við teljum að þarna hefði þurft
að fara fram mat á framkvæmd-
um sama hvað þær eru kallað-
ar,“ segir Stefán Thors skipu-
lagsstjóri. „Við höfum þó engin
úrræði til að afhafast neitt frek-
ar og munum ekki gera það.“
Kostnaður við framkvæmdir
Nauthólsvegar var um 480 millj-
ónir króna.
-rat
Nauthólsvegur hefði átt að fara í umhverfismat:
Sniðgengu Skipulagsstofnun
NÝR VEGUR Nauthólsvegur var opnaður
þann 4. febrúar síðstliðinn.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
PRÓFKJÖR Á AKUREYRI
Sigrún Björk í efsta sæti
Sigrún Björk Jakobsdóttir náði efsta
sætinu í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins á
Akureyri sem var haldið á laugardaginn.
Í öðru sæti varð Ólafur Jónsson og í því
þriðja varð Njáll Trausti Friðbertsson.
Í næstu sætum á eftir komu Anna
Guðný Guðmundsdóttir og Björn Ingi-
marsson. 1.979 manns voru á kjörskrá
og greiddu 1.165 atkvæði, eða 59%.
Brotist inn í skóla
Brotist var inn í Hafnarskóla á Höfn í
Hornafirði aðfaranótt sunnudags og
þaðan stolið skjávarpa. Lögregla leitar
þjófsins.
LÖGREGLUFRÉTTIR
Keyrt á hreindýr
Ekið var á tvö hreindýr í gærmorgun
við Hellisholt á Mýrum. Dýrin drápust
bæði en bílstjórann sakaði ekki.
Bíllinn var óökufær eftir.
TÆKNI Orkusetur iðnaðarráðu-
neytisins og Vistvæn orka ehf.
vinna að lokasmíði og prófun-
um á ljósdíóðulömpum sem gætu
gjörbreytt rekstrarumhverfi
garðyrkjubænda. Meðal nýjunga
er hár endingartími, eða allt að
100.000 klukkustundir, og mikill
raforkusparnaður í samanburði
við eldri lampa. Einnig er í þeim
innbyggð þjófavörn.
Raforkunotkun til gróðurhúsa-
lýsingar í atvinnuskyni samsvar-
aði raforkunotkun þrettán þús-
und heimila árið 2009 og greiddi
ríkið um 167 milljónir í niður-
greiðslur á raforkudreifingu til
greinarinnar. - shá
Bylting í gróðurhúsalýsingu:
Nýir lampar
spara orku
LÖGREGLUMÁL Ingi Rafn Bærings-
son, forvarnafulltrúi Tækni-
skólans í Reykjavík, segir að
nemendur skólans hefðu ekki
átt að láta fíkniefnaleitina síð-
astliðinn fimmtudag koma sér
á óvart.
Ingi Rafn segir að á upplýs-
ingaskjáum í skólanum hafi
verið greint frá því að fíkniefna-
hundar gætu komið óvænt í skól-
ann einu sinni til tvisvar á önn.
Einnig segir hann að nem-
endurnir hafi ekki verið lokað-
ir inni í 45 mínútur, heldur hafi
þeir getað komist inn og út um
aðalinnganginn þar sem hund-
urinn þefaði að þeim. Öðrum
útgangi sem hefur einnig verið
notaður var aftur á móti læst.
- fb
Nemendur Tækniskólans:
Vissu um leit
að fíkniefnum
SELFOSS Forstjóri Íslenska gámafélagins bar Sorpstöð Suðurlands þungum sökum.
Formaður stjórnar Sorpstöðvarinnar segir rangfærslur og rakalausar ávirðingar ekki
styrkja framþróun í úrgangsmálum. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
KJÖRKASSINN