Fréttablaðið - 20.02.2010, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 20.02.2010, Blaðsíða 2
2 20. febrúar 2010 LAUGARDAGUR VM krefst ... Nánari upplýsingar á www.asi.is E N N E M M / S ÍA / N M 40 92 4 ... mannaflsfrekra framkvæmda strax! Áslaug, er matarlyst Íslend- inga ekki upp á marga fiska? „Jú, jú, og eftir þessa þætti ættu áhorfendur að vera færir í flestan sjó.“ Áslaug Snorradóttir og Sveinn Kjartans- son stýra væntanlegum matreiðsluþætti sem helgaður verður fiskréttum. DÓMSMÁL Fimm ungir menn hafa verið dæmdir í Héraðsdómi Reykjavíkur í samtals átta ára og fimm mánaða fangelsi fyrir að reyna að smygla til landsins um fjórum kílóum af amfetam- íni, sem þeir höfðu falið í pakka í málningarfötum. Höfuðpaurinn í málinu, Logi Már Hermannsson, sem skipu- lagði og fjármagnaði innflutn- ing fíkniefnanna, var dæmd- ur í þriggja ára og níu mánaða fangelsi. Þorgrímur Kolbeinsson var dæmdur í tveggja ára fang- elsi, Jón Sveinbjörn Jónsson var dæmdur í eins árs fangelsi og Þorsteinn Birgisson og Jóhann Páll Jóhannsson fengu tíu mán- uði hvor. Fíkniefnin fluttu mennirnir, sem eru frá tvítugu og upp í tæp- lega þrítugir að aldri, frá Dan- mörku á síðasta ári. Lögreglan í Danmörku hafði hins vegar náð pakkanum í millitíðinni og sett í hann gerviefni. Síðan var hann sendur hingað til lands. Logi skipti verkum með hinum við að sækja fíkniefnin út og taka á móti þeim hér. Pakkinn var meðal annars geymdur um skeið í rjóðri í Mosfellsbæ. Þaðan var hann fluttur milli staða, þar til einn mannanna tók hann með sér heim til að afhenda Loga efnin. Maðurinn var handtekinn þegar hann var að opna pakkann. - jss AMFETAMÍN Fimmmenningarnir smygl- uðu um fjórum kílóum í málningarföt- um. Fimm menn dæmdir fyrir að smygla nær fjórum kílóum af amfetamíni í fötum: Höfuðpaur fékk tæp fjögur ár UTANRÍKISMÁL Stjórnarandstæð- ingar fagna árangri sem náðist í viðræðum við Breta og Hollend- inga um Icesave í London. Á sama tíma segja stjórnarliðar viðsemj- endur ekki hafa tekið vel í tillög- ur Íslendinga. Enn virðist afstaða gagnvart Icesave því ráðast af því hvar menn skipast í flokka. Bretar og Hollendingar hafa krafist samstöðu hérlendis eigi að ná saman um nýja samninga. Miðað við mismunandi yfirlýsing- ar er ljóst að enn sér hver sínum augum silfrið. Sérfræðingar sem Fréttablað- ið hefur rætt við segja að í raun sé lítið um gang viðræðnanna að segja á þessari stundu. Aldrei hafi verið við því að búast að saman gengi í einni lotu og því eigi að lesa varlega í þá staðreynd að íslenska samninganefndin sneri heim. Samkvæmt heimildum Frétta- blaðsins eru Hollendingar mun harðari gagnvart Íslendingum en Bretar. Það sé þó bitamunur en ekki fjár; ríkin gangi í takt þótt áherslur séu ólíkar. Búist er við að þjóðirnar geri Íslendingum tilboð í dag um grund- völl nýrra samninga. Fregnir bár- ust af því í erlendum fjöl- miðlum í gær og má líta á þann leka sem lið í áróðurs- stríði þjóðanna. Fregnun- um fylgdi að tilboðið væri það gott að Íslending- ar gætu ekki hafnað því. Heimildamönn- um Fréttablaðsins innan stjórn- sýslunnar ber saman um að það segi ekkert um innihald tilboðs- ins og raunar búast þeir ekki við sérstaklega góðu tilboði. Eins og Fréttablaðið greindi frá 1. febrúar hafa Bretar ljáð máls á því að vextir verði framan af breyti- legir. Boðið nú mun byggja á því, ásamt því að hlé verði á vaxtagreiðslum í einhvern tíma. Íslenska sendi- nefndin í Lond- on lagði fyrst og fremst áherslu á að eignasafn Landsbankans gengi upp í Ice save. Tilboð nefndarinnar var kynnt viðsemjendum munnlega og síðan tóku þeir við því skriflega á þriðja degi. Það eitt og sér þykir ákveð- inn diplómatískur sigur. Með svartilboði Breta og Hol- lendinga er komið að Íslendingum. Tilboðið verður rætt með samn- inganefndinni, en erlendu sér- fræðingarnir, Buchheit og John- ston, bíða hér næstu skrefa. Þá verður fundað með forystumönn- um stjórnmálaflokkanna. Í framhaldi verður ákveðið hvort gagntilboð verður sent út eða nefndin sjálf leggur land undir fót. Prúttið heldur áfram. kolbeinn@frettabladid.is Mat á viðræðunum fylgir flokkslínum Stjórnarandstaðan er bjartsýn og þykir Icesave-viðræður í London hafa gengið vel. Ríkisstjórnin mun svartsýnni. Von er á tilboði Breta og Hollendinga í dag þar sem kveðið er á um lægri vexti. Hollendingar mun tregari til samninga. ALISTAIR DARLING OG WOUTER BOS FUNDAÐ UM STÖÐUNA Forystumenn flokkanna hittust á föstudag og í kjölfar var samninganefndin kölluð heim. Berist tilboð Breta og Hollendinga í dag munu þeir funda á ný. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON SJÁVARÚTVEGUR Hrognavinnsla úr loðnu hófst á fimmtudag hjá Ísfé- lagi Vestmannaeyja þegar Álsey, skip Ísfélagsins, landaði um 1.000 tonnum af loðnu, og var vinnslan í fullum gangi í gær þegar ljós- myndari Fréttablaðsins leit við. Eyþór Harðarson, útgerðarstjóri Ísfélagsins, segir hrognin enn ekki nægilega þroskuð til sölu á Japans- markað, en trúlega séu ekki nema einn eða tveir dagar í að þau verði tilbúin. Hrognin sem unnin verði þangað til nægum þroska verði náð fari í sölu annars staðar. Búast má við miklum önnum í loðnuvinnslum næstu vikurnar, hamli bræla ekki veiðum. „Það verður nóg að gera og mikil verð- mætasköpun, en það veltur mikið á því að menn verði heppnir,“ segir Eyþór. Um 100 starfa við vinnsl- una. - bj Hrognavinnsla úr loðnu er hafin hjá Ísfélagi Vestmannaeyja: Brátt tilbúin á Japansmarkað VINNSLA Um 100 manns starfa við loðnuvinnslu hjá Ísfélagi Vestmannaeyja og verður væntanlega nóg að gera hjá þeim næstu daga. FRÉTTABLAÐIÐ/ÓSKAR FRIÐRIKSSON LÖRGEGLUMÁL Tollgæslan á Kefla- víkurflugvelli stöðvaði tæplega sjötugan Íslending við komu frá Kaupmannahöfn í síðustu viku. Hann var úrskurðaður í gæslu- varðhald vegna smygls á fíkni- efnum til landsins. Við leit í ferðatöskum hans fannst tæpt kíló af kókaíni. Efnin hafði hann falið fyrir innan falsk- ar hliðar í töskunum, samkvæmt upplýsingum Fréttablaðsins. Fíkniefnin fundust við hefðbund- ið eftirlit tollgæslu. Maðurinn hefur ekki komið við sögu hjá lögreglu áður. Málið er í rannsókn hjá lög- reglunni á Suðurnesjum. - jss Sjötugur maður í gæslu: Kíló af kókaíni falið í tösku LÖGREGLUMÁL Átök brutust út meðal tveggja starfsmanna pit- sustaðar í Breiðholti í hádeginu í fyrradag sem leiddu til þess að annar þeirra handleggsbrotnaði. Ekki liggur fyrir hvað olli því að mönnunum sinnaðist. Slags- málin bárust út á bílastæði fyrir utan staðinn og að endingu þurfti að flytja annan manninn á slysadeild, handleggsbrotinn og með áverka í andliti. Báðir eru mennirnir af erlend- um uppruna. Árásarmaðurinn er á fertugsaldri, en sá slasaði á þrítugsaldri. Lögregla hefur ekki náð tali af þeim slasaða til að glöggva sig á atburðarásinni. - sh Starfsmenn slógust: Brotinn eftir átök á pitsustað ALÞINGI Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokks- ins, hefur óskað eftir því að fram fari utandagskrár- umræða um leyniskjal frá bandaríska sendiráðinu hér á landi þar sem fjallað er um fundi stað- gengils sendi- herra með íslenskum embættis- mönnum. Skjalinu var lekið á vef Wik- ileaks á fimmtudagskvöld. Þar kemur fram að embættismenn hafi beðið um stuðning Banda- ríkjanna í Icesave-deilunni. Fulltrúar flokksins í utanrík- ismálanefnd Alþingis hafa einn- ig óskað eftir fundi í nefndinni vegna málsins, og vilja embætt- ismennina á fund nefndarinnar. - bj Formaður Sjálfstæðisflokks: Vill umræðu um leyniskjal BJARNI BENEDIKTSSON SJÁVARÚTVEGUR Fjórir kolkrabbar komu á Fiskasafnið í Vestmanna- eyjum um miðja viku. Einn þeirra er sá stærsti sem komið hefur á safnið, á bilinu 60 til 70 sentímetra langur. Hann hefur fengið nafnið Vídalín, enda veidd- ur af skipverjum á Jóni Vídalín. Kolkrabbarnir eru yfirleitt feimin dýr, en Vídalín sker sig úr og skemmtir gestum safnsins með því að synda hratt um búrið sitt. Hann er af tegundinni vörtu- smokkur sem er nokkuð algeng hér við land. Kolkrabbar eru taldir gáfaðastir hryggleysingja og eru með þrjá heila. Þeir geta til dæmis lært að skrúfa lok af krukku sem inniheldur fæðu. - bj Óvenjulegir gestir í Eyjum: Kolkrabbarnir gleðja gestina KOLKRABBI Venjulega eru kolkrabbar fremur feimin dýr en það á ekki við Vídalín, sem syndir um búrið sitt. FRÉTTABLAÐIÐ/ÓSKAR FRIÐRIKSSON BLÖNDUÓS Bændur í nágrenni Blönduóss björguðu í vikunni tveimur lömbum úr sjálfheldu úr svonefndu Draugagili. Þeir sigu eftir lömbunum en þau höfðu orðið viðskila við fjárhóp í fyrra- sumar. Ingimar Skaftason, bóndi á Hjaltabakka og eigandi lambanna, sagði þau vel hald- in eftir veturinn enda hafi veður verið einstaklega gott. Hann sagði björgunina hafa gengið vel þrátt fyrir að svæðið sé nokkuð erfitt yfirferðar. - ng Bændur í björgunarleiðangri: Sóttu tvö lömb SPURNING DAGSINS
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.