Fréttablaðið - 20.02.2010, Blaðsíða 96

Fréttablaðið - 20.02.2010, Blaðsíða 96
60 20. febrúar 2010 LAUGARDAGUR KÖRFUBOLTI Heather Ezell hjá Haukum og Kristi Smith hjá Keflavík verða í aðalhlutverkum í Laugardalshöllinni í dag þegar lið þeirra mætast í úrslitaleik Subway-bikars kvenna. Það vita kannski færri að þær spiluðu báðar með háskólaliðum í Iowa-ríki og eru því hvort tveggja búnar að þekkjast lengi sem og mætast oft í leik á milli tveggja erkifjenda. Heather spilaði fyrir Iowa State-skólann en Kristi lék fyrir Iowa-skólann. „Við vorum erkifjendur í háskólaboltanum í Bandaríkjun- um og svo komum við báðar til Íslands og erum eiginlega aftur í sömu kringumstæðum. Þetta er bara gaman og við erum mjög góðar vinkonur utan vallar. Við erum búnar að þekkjast í langan tíma og það er gaman að vita af henni hérna á Íslandi líka,“ segir Heather. „Já, við vorum erkifjendur í háskóla. Hún er góður leikmaður og var í góðum skóla alveg eins og ég. Það er mjög skemmtileg til- viljun að við skyldum báðar enda hér á Íslandi,“ segir Kristi. Heather var í sigurliði í þrem- ur af fjórum leikjum skóla þeirra en Kristi skoraði aðeins meira í innbyrðisleikjunum fjórum eða 12,5 stig á móti 11,0 stigum hjá Heather. Heather var hins vegar með fleiri fráköst og fleiri stoð- sendingar. „Hún hefur kannski smá for- skot af því að hún vann síðasta leikinn en ég hef unnið fleiri leiki heilt yfir,“ segir Heather og Kristi tekur undir það. „Hún vann fleiri leiki en ég endaði á því að vinna síðasta leikinn,“ segir Kristi en hún hefur síðan unnið báða leiki þeirra á Íslandi og er því er komin með þrjá sigra í röð á móti Heather. Kristi er með 23,5 stig að með- altali í tveimur sigurleikjum á móti Haukum en Heather hefur skorað 25,5 stig og gefið 4,0 stoð- sendingar að meðaltali. Kristi skorar yfir meðaltali sínu á móti Heather en Heather er hins vegar nokkuð undir sínu meðaltali í inn- byrðisleikjum á móti Kristi. Það er ljóst að það þarf að breytast ætli Haukarnir að vinna í dag. „Við gerum margt fyrir okkar lið og erum mikilvægar í að koma hlutunum af stað. Við vitum líka að við þurfum að spila okkar besta leik til þess að liðin okkar vinni. Við skiljum okkar hlut- verk og við gerum okkar besta í að koma öllu af stað og öllum leik- mönnum okkar liða inn í leikinn,“ segir Heather. Kristi ætlar ekki að láta leik- inn snúast bara um sig og Heath- er. „Við ætlum að reyna að stoppa Heather en megum ekki gleyma hinum leikmönnunum. Það eru margar í þeirra liði sem geta skorað og við þurfum bara að leggja áherslu á að stoppa þær allar,“ segir Kristi. - óój Bandarísku leikmenn kvennaliða Hauka og Keflavíkur hafa marga hildina háð: Góðar vinkonur utan vallar MARÍN OG HEATHER Marín Rós Karlsdóttir, annar fyrirliða Keflavíkur, sést hér með bikarinn ásamt Haukakonunni Heather Ezell. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BÚIN AÐ VINNA ÞRJÁ Í RÖÐ Kristi Smith hefur gengið vel í síðustu leikjum sínum á móti Heather Ezell. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN KÖRFUBOLTI Það hefur sjaldan verið erfiðara að spá fyrir um bikarúr- slitaleik karla en þegar Grindavík og Snæfell mætast í Laugardals- höllinni klukkan 16.00 í dag. Liðin eru jöfn í deildinni og innbyrðis- viðureign liðanna fór í framleng- ingu. Það er því von á dramatík. Grindvíkingar unnu bikarinn síðast fyrir fjórum árum en þetta er í fyrsta sinn sem Friðrik Ragn- arsson kemur liðinu í Höllina. „Að mínu mati eru þessi lið nán- ast hnífjöfn að getu. Þetta eru gríð- arlega jöfn, vel mönnuð og góð lið. Þetta er því bara spurning um hug- arfarið og að langa aðeins meira,“ segir Friðrik Ragnarsson, þjálfari Grindavíkur, en hann hefur sex sinnum orðið bikarmeistari, þar af fimm sinnum sem leikmaður. Grindvíkingar hafa glímt við meiðsli í allan vetur og Friðrik talaði um það á blaðamannafundi fyrir leikinn að liðið myndi líka tefla fram fullmönnuðu liði í fyrsta sinn í Höllinni í dag. „Við höfum alltaf verið að spila leiki þar sem hefur vantað einn eða tvo menn. Við höfum fengið aðra til þess að taka meiri ábyrgð í staðinn. Við tókum þá ákvörðun að elta ekki önnur lið í því að bæta við sig útlendingi,“ segir Friðrik. „Við erum að njóta þess að í þess- um meiðslum leikmanna höfum við fengið leikmenn eins og Ólaf Ólafs- son til þess að stíga fram. Hann er búinn að spila eins og bosman- ígildi. Ég held að við höfum tekið réttan pól í hæðina,“ segir Friðrik en Ólafur átti meðal annars frá- bæra innkomu í fyrri leik liðanna sem Grindavík vann með einu stigi eftir framlengingu. Friðrik hefur ekki áhyggjur af „meiddu“ mönnunum en þeir Arnar Freyr Jónsson, Brenton Birmingham og Þorleifur Ólafs- son hafa misst marga leiki í vetur. „Arnar Freyr var ristarbrotinn og frá í fimm vikur og Brenton var frá í mánuð og auðvitað vant- ar eitthvað upp á leikæfingu hjá þeim. Ég veit bara að þegar kemur í svona leik þá taka menn eins og Brenton og Lalli [Þorleifur] fram spariskóna. Þeir mæta bara í þenn- an leik og geta þá legið alla vikuna á eftir, mér er alveg sama um það,“ segir Friðrik. Friðrik er einn af þeim sigur- sælustu í sögu bikarúrslitaleiks karla og nú kemur hann í fyrsta sinn í Höllina með félaginu sem hefur aldrei tapað. „Það er ótrú- leg saga að Grindavík sé 4-0 í bik- arúrslitaleik og við ætlum ekki að breyta því. Við ætlum að mæta og gefa allt í þetta. Ég er bjartsýnn á það að það fari vel fyrir okkur,“ segir Friðrik. Snæfellingar urðu bikarmeistar- ar fyrir tveimur árum og unnu þá sinn fyrsta stóra titil. Stærsti hluti liðsins í dag fékk gullið um hálsinn fyrir 24 mánuðum. „Mér heyrist að nánast allir sem vettlingi geta valdið í Hólminum séu á leiðinni á leikinn. Það er mjög góð stemning í bænum og það er sama hvert maður fer, í skólann, í búðina eða í sund, það eru allir að fylgjast með okkur,“ segir Ingi Þór Steinþórsson, þjálfari Snæ- fells. Þótt flestir leikmanna hans hafa orðið bikarmeistarar er önnur saga að segja af þjálfaranum. „Þetta er eitt af þeim verkefnum sem ég á eftir að klára á mínum metnaðarfulla þjálfaraferli. Það væri frábært ef að ég myndi klára það með Snæfelli. Ég náði ekki að klára Norðurlandameistaratit- il fyrr en síðasta vor og það var virkilega sætt að klára svona verk- efni sem maður er búinn að bíða lengi eftir,“ segir Ingi og eitt tapa hans var á móti Friðriki Ragnars- syni þegar þeir þjálfuðu lið KR og Njarðvíkur árið 2002. Snæfellingar komust í Höllina eftir sannfærandi sigur í Kefla- vík þar sem þeir slátruðu heima- mönnum í Sláturhúsinu. „Ég held að sárafáir hafi átt von á því að við myndum vinna Keflavík í þessum tveimur leikjum. Þar sem við unnum deildarleikinn svona stórt þá held ég að allir hafi reikn- að með því að okkur yrði slátrað í Keflavík,“ segir Ingi. Snæfell er eitt þeirra lið sem bættu við sig erlendum leikmanni og þrátt fyrir frábæran sigur í fyrsta leik Martins Berki þá segir Ingi Þór að liðið sé enn að stilla sig saman. „Við vorum ólíkir okkur sjálfum í síðustu tveimur leikjum og við höfum notað síðustu viku til þess að finna jafnvægið í liðinu og stilla saman liðið. Við erum í raun- inni með tvo nýja leikmenn, Pálma og Martin Berki, og við erum að setja upp hlutverk manna upp á nýtt,“ segir Ingi. „Grindavík er með gott körfu- boltalið og er vel þjálfað lið. Þeir hafa mikla hefð í kringum sig og við þurfum að eiga algjöran topp- leik til þess að vinna þá,“ segir Ingi og hann veit eins og aðrir að liðin eru mjög jöfn. „Þessi lið gætu ekki verið á jafn- ari róli í deildinni. Þetta er bara leikur þar sem bæði lið eiga jafna möguleika og allir eru sammála því,“ segir Ingi. ooj@frettabladid.is Hundrað prósent árangur í Höllinni að veði Grindavík og Snæfell mætast í dag í Laugardalshöllinni í úrslitaleik Subway-bikars karla í körfubolta. Grindavík hefur unnið alla fjóra bikarúrslitaleiki sína til þessa en Ingi Þór Steinþórsson, þjálfari Snæfells, er hins vegar enn að bíða eftir fyrsta gullinu sínu. MÆTTUST LÍKA FYRIR ÁTTA ÁRUM Friðrik Ragnarsson, þjálfari Grindavíkur, og Ingi Þór Steinþórsson, þjálfari Snæfells, með bikarinn sem keppt er um í dag. Þeir mættust einnig með liðin sín árið 2002 og þá höfðu lærisveinar Friðriks í Njarðvík betur á móti KR-liðinu hans Inga Þórs. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON Vegleg og aukin íþróttaumfjöllun í Fréttablaðinu mánudaga Íþróttahelgin gerð upp í Fréttablaðinu Allt sem þú þarft...
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.