Fréttablaðið - 20.02.2010, Blaðsíða 94

Fréttablaðið - 20.02.2010, Blaðsíða 94
58 20. febrúar 2010 LAUGARDAGUR sport@frettabladid.is FÓTBOLTI Mörgum þykir gagnrýn- isvert að KSÍ sé enn að taka við peningum frá ÍSÍ og ríkinu í ljósi þeirrar sérstöðu sem sambandið hefur. Á meðan flest önnur sérsam- bönd lepja dauðann úr skel, hafa ekki efni á að senda lið til keppni eða ráða starfsmenn græðir KSÍ á tá og fingri. Sérstaða KSÍ felst einna helst í formi þeirra gríðarháu erlendu styrkja sem sambandið fær árlega að utan ásamt himinháum sjón- varpssamningum. Ekkert annað samband býr svo vel enda á ekk- ert annað samband 328 milljónir króna á bankareikngi sínum og er þess utan skuldlaust. Geir Þorsteinsson, formað- ur KSÍ, blæs á þá sem segja það óeðlilegt að KSÍ fái þessa peninga frá ÍSÍ og ríkinu. Hann segir að umræðan sé á villigötum. „Ég hef verið framarlega í flokki innan íþróttahreyfingarinnar í því að við ættum að sækja meiri pen- inga til ríkisvaldsins. Okkur sem stöndum í forystu íþróttahreyf- ingarinnar hefur mistekist. Það hafa komið allt of lág framlög frá ríkinu. Við í hreyfingunni viljum þjónusta okkar aðildarfélög betur og til þess þarf fjármuni. KSÍ er aðili að þessari hreyfingu og við getum ekkert klofið okkur út úr henni á neinn hátt. Við njótum því þeirra styrkja sem við eigum rétt á. Ég sé því ekki að það eigi að vera eitthvert umræðuefni að við séum að fá styrki. Stóra málið er það að styrkirnir til íþrótta eru allt of lágir,“ segir Geir ákveðinn. „Það breytir engu að skera knatt- spyrnusambandið frá.“ Geir segir það algengan mis- skilning úti í þjóðfélaginu að KSÍ fái mun hærri styrki en önnur sér- sambönd. „Sumir stjórnmálamenn ganga með þá grillu í höfðinu að við séum á ríkisspenanum. Það er fjarri öllum raunveruleika. Ég myndi vilja sjá miklu stærri framlög renna til knattspyrnusambandsins og annarra íþróttagreina,“ segir Geir en hann segist ekki mótfall- inn því að öll sérsambönd fái jafn- háa styrki. Finnst honum það vera rétt að sérsamband í slíkri séraðstöðu sé að þiggja peninga frá ríkinu í stað þess að láta peninginn sem þeir fá renna í vasa hinna sérsambandanna? „Þessi nálgun er kolröng. Stóra málið er að það eiga að vera hærri styrkir frá ríkinu og við viljum njóta sömu möguleika og aðrir í því. Það er engin „lógík“ í því að við séum að hafna peningum. Ef við byrjum á því, hvar endar það? Okkar aðildarfélög myndu aldrei taka það í mál. Þörfin hjá þeim er brýn,“ segir Geir Þorsteinsson, formaður KSÍ. henry@frettabladid.is Vil sjá hærri styrki til KSÍ Geir Þorsteinsson, formaður KSÍ, segir að aðildarfélög KSÍ muni aldrei taka það í mál að sambandið hafni styrkjum frá ÍSÍ og ríkinu þó svo að sambandið hafi fengið yfir 300 milljónir króna í erlendum styrkjum í fyrra. GEIR ÞORSTEINSSON Formaður KSÍ segir að forysta íþróttahreyfingarinnar hafi brugð- ist í því að fá hærri framlög til íþróttamála frá ríkinu. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON STYRKIR TIL KSÍ KSÍ fékk eftirtalda styrki á rekstrar- árinu 2009: ÍSÍ 25.644.893 kr. Íslenskar getraunir 4.441.422 kr. UEFA-styrkir 282.982.595 kr. FIFA-styrkir 30.891.580 kr. Ýmsir styrkir 58.000.000 kr. Samtals 401.960.490 kr. Ofan á þetta kemur síðan að KSÍ fékk tæplega 170 milljónir króna vegna sjónvarpsréttar á árinu 2009. > Símun búinn að semja við HB Færeyski landsliðsmaðurinn Símun Samuelsen hefur skrifað undir þriggja ára samning við færeyska félagið HB. Hinn 24 ára gamli Símun hafði áður leikið með Keflavík í fimm tímabil þar sem hann lék 85 leiki og skoraði 22 mörk í deildar -og bikarkeppnum með Suðurnesjafélaginu. Hjá HB hittir Símun fyrir þjálfarann Kristján Guðmundsson, sem nýverið tók að sér þjálfun félagsins, en hann spilaði einmitt undir stjórn Kristjáns hjá Keflavík öll þau fimm tímabil sem hann lék hér á landi. Miklir vinir munu mætast þegar Haukar og Keflavík leika til úrslita í bikarkeppni kvenna í körfubolta í dag. Það eru þjálfararnir Henning Henningsson og Jón Halldór Eðvaldsson. Jón hefur verið aðstoðar- maður Hennings við þjálfun kvennalandsliða Íslands. „Okkar kynni voru þannig að Henning var yfirmaður minn hjá Símanum fyrir mörgum árum síðan,“ segir Jón Halldór sem þjálfar Keflavíkur- konur. „Við tókum síðan saman að okkur verkefni fyrir KKÍ 2004 og höfum verið miklir vinir síðan. Við sátum saman og horfðum á KR og Hamar leika til úrslita í Powerade-bikarnum og töluðum um að við ætluðum að vera á gólfinu þegar stóri bikarinn yrði afhentur. Það væri alveg á hreinu. Það gekk eftir og er ótrúlega gaman.“ Búast má við hörkuleik í Höllinni í dag en Jón segir að vinskapur hans og Henn- ings sé ekki að veði. „Það gerir þetta miklu skemmtilegra að mæta manni sem ég ber mikla virðingu fyrir og ég er rosalega spenntur fyrir þessum leik. Við getum alveg skálað í köldum sama hvernig fer,“ segir Jón Halldór. Henning segir að þáttur þjálfarana muni miklu skipta í dag. „Hug- myndafræðin okkar er svipuð. Ég tel að þjálfararnir hafi mikið um það að segja hvernig þessi leikur fer. Liðin eru mjög svipuða að styrk- leika svo ég tel að það lið sem vinnur sé betur undirbúið af þjálfaranum,“ segir Henning. „Við erum búin að vinna í ýmsum málum og skoða hvað við teljum okkur þurfa að gera til að stöðva Kefla- víkurliðið. Við höfum ýmislegt í pokahorninu,“ segir Henning. Jón Halldór segir að undirbúningur Keflavíkur- liðsins fyrir leikinn sé ekkert frábrugðinn venju- legum deildarleik. „Þetta er alveg eins leikur, bara öðruvísi umgjörð. Auðvitað er meiri spenna, liðið sem tapar þessum leik fær ekki svona gylltan bikar og gullpening um hálsinn en að öðru leyti er þetta venjulegur körfuboltaleikur,“ segir Jón Halldór. HENNING HENNINGSSON OG JÓN HALLDÓR EÐVALDSSON: MÆTAST Í BIKARÚRSLITUNUM Í DAG Getum skálað í köldum sama hvernig fer FÓTBOLTI „Þetta var bara ekki í forgangi lengur, aðrir hlutir eru farnir að kalla á mann,“ segir Garðar Örn Hinriksson sem hefur ákveðið að hætta dómgæslu eftir tuttugu ára feril með flautuna. „Það var ekki sami neisti og var áður fyrr og svo hef ég mikið verið meiddur síðustu ár og það hafði líka áhrif á þessa ákvörð- un,“ segir Garðar sem var valinn besti dómarinn í efstu deild 2004 og 2006. Hann starfaði sem milli- ríkjadómari og hefur verið meðal fremstu dómara landsins um ára- bil. Hann er ekki hættur afskipt- um af fótbolta. „Að öllum líkindum gerist ég eftirlitsdómari. Svo blundar í mér smá áhugi á að skoða neðri deildirnar og hjálpa ungu strák- unum sem eru að koma upp. Von- andi getur maður kennt eitthvað, nóg er maður allavega búinn að gera,“ segir Garðar sem er einn litríkasti dómari sem Ísland hefur átt og lent í ýmsum málum sem hafa orðið fjölmiðlamatur. „Ég þarf bara að setj- ast niður og skrifa bók um það allt, hún verð- ur í þremur bind- um.“ Garðar fékk við- urnefnið rauði bar- óninn sumarið 2008. „Ég held að ég hafi nánast rekið útaf í hverjum ein- asta leik sem ég dæmdi það sumarið.“ Nokkrir leikir sem Garðar dæmdi fengu meiri athygli en aðrir. „KR - ÍA þegar ég lenti í deilum við Guðjón Þórðar- son og Gaupi [Guðjón Guð- mundsson] reyndi að reka hljóðnema í trýnið á okkur til að heyra hvað við vorum að segja. Svo þegar ég raðspjaldaði í leik KR og Breiðabliks. Það var sýnt í hægri endursýningu í sjónvarpinu og ég mátti ekki fara út þá voru allir horfandi á mann. Þá vissi ég hvernig John Travolta og þessu liði líður. Verst að athyglin var á neikvæðan hátt. Ég hefði kannski frekar kosið að vinna Eurov- ision fyrir Ísland og vera þekktur sem frábær söngvari en ekki „hel- vítis dómari“,“ segir Garðar léttur í bragði. - egm Knattspyrnudómarinn litríki, Garðar Örn Hinriksson, leggur flautuna á hilluna: Frekar viljað vinna Eurovision FÓTBOLTI Ari Freyr Skúlason hefur náð lendingu í samninga- viðræðum sínum við sænska b- deildarfélagið Sundsvall. Samn- ingur Ara Freys átti að renna út um næstu áramót en nýi samn- ingurinn hljóðar upp á framleng- ingu um eitt ár auk sérstakr- ar klásúlu sem segir til um verð sem hægt sé að kaupa leikmann- inn á. Mikið var búið að ganga á í samningaviðræðunum og var Ara Frey til að mynda meinað af for- ráðamönnum Sundsvall að spila æfingaleiki með félaginu á tíma- bili en málið vakti mikla athygli í sænskum fjölmiðlum. „Það var mikið að þetta gerð- ist og ég er mjög sáttur með nið- urstöðuna í málinu. Þetta er sem sagt framlenging um eitt ár en aðalmálið var að fá klásúlu inn í samninginn sem segir til um að ég geti farið frá Sundsvall ef félög eru tilbúin að borga ákveð- ið verð fyrir mig. Það var mjög mikilvægt fyrir mig að fá það inn í samninginn og vita að félög geti keypt mig á ákveðnu verði sem er að mínu mati hvorki of hátt né of lágt,“ segir Ari Freyr sem hefur aldrei farið leynt með þá stefnu sína að spila í betri deild en sænsku b-deildinni. - óþ Ari Freyr Skúlason: Aðalmálið að fá klásúluna inn ARI FREYR Hefur samið við Sundsvall að nýju eftir mikið þóf. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON N1 Deildin KONUR Laugardagur Vodafone höll Víkin Mýrin Valur - FH Víkingur - KA/Þór Stjarnan - Fylkir 16:00 16:00 16:00 2009 - 2010 Hringdu í síma ef blaðið berst ekki LEIKIR HELGARINNAR Laugardagur: Everton-Manchester United kl. 12.45 Arsenal-Sunderland 15.00 West Ham-Hull 15.00 Wolves-Chelsea 15.00 Portsmouth-Stoke 17.30 Sunnudagur: Blackburn-Bolton 12.00 Aston Villa-Burnley 14.00 Fulham-Birmingham 15.00 Manchester City-Liverpool 15.00 Wigan-Tottenham 16.15 FÓTBOLTI Heil umferð fer fram í ensku úrvalsdeildinni um helgina og að vanda er nóg af athyglis- verðum leikjum í boði. Topplið- in Chesea og Manchester United leika bæði á útivelli í dag en Chel- sea heimsækir Wolves og United mætir Everton þar sem útlit er fyrir að varnarmaðurinn Nem- anja Vidic spili sinn fyrsta leik á árinu. Þá tekur Arsenal á móti Sunderland. Á morgun er svo mikilvægur leikur á milli Manchester City og Liverpool í baráttunni um Meist- aradeildarsæti en bæði lið leika án bestu sóknarmanna sinna þar sem Carlos Tevez er í Argentínu út af fjölskylduástæðum og Fern- ando Torres er enn ekki klár í slaginn vegna meiðsla á hné. - óþ Enska úrvalsdeildin: Torres ekki með gegn City TORRES Enn frá vegna meiðsla á hné. NORDIC PHOTOS/AFP
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.