Fréttablaðið - 20.02.2010, Blaðsíða 36

Fréttablaðið - 20.02.2010, Blaðsíða 36
ÞAÐ HEITASTA Í ... HÓTELUM, VEITINGASTÖÐUM, GRÆJUM, BÚÐUM, MÖRKUÐUM OG FERÐANÝJUNGUMMIÐBAUGUR Þ essari hugmynd var skot-ið á loft þegar ég var að vinna á Sirkus í Reykja-vík fyrir nokkrum árum,“ segir Sunneva H. Eystur- stein en hún opnaði barinn Sirkus í desember í Þórshöfn ásamt Jóel Briem og Sigríði Guðlaugsdóttur. „Á þeim tíma var þó hugmyndin aldrei neitt nema brjáluð fluga í höfðinu á okkur og okkur datt ekki í hug að þetta yrði að veruleika,“ segir hún og hlær. Sigríður móðir Jóels, oftast þekkt sem Sigga Bos- ton, rak Sirkus til margra ára á Klapparstígnum en staðurinn lok- aði árið 2008 sem varð mörgum hryggðarefni. „Þegar staðurinn lokaði þá kom hugmyndin aftur upp á borðið,“ útskýrir Jóel sem rekur nú staðinn ásamt Sunnevu. Jóel eyðir tíma sínum jafnt í Þórs- höfn og Reykjavík en hann rekur nokkra veitingastaði þar. „Það var kominn tími fyrir mig til að flytja aftur í heimahagana,“ segir hin færeyska Sunneva. „Mér fannst virkilega vanta ein- hvern stað eins og Sirkus. Staðirn- ir í Þórshöfn voru alls ekki minn tebolli og það var enginn bar fyrir skapandi fólk að hittast og hanga á eins og Sirkus var á Íslandi. Við ákváðum því að slá til og láta þessa hugmynd verða að veruleika,“ segir Sunneva. Íslendingar fengu tár í augun Innan skamms fundu þau hús- næði á besta stað í bænum á tveim- ur hæðum og hófust handa við að endurskapa það útlit og andrúms- loft sem einkenndi Sirkus. Innan- dyra er umhorfs næstum því alveg eins og á Sirkusi sáluga og mætti halda að staðurinn hefði hrein- lega bara fokið af Klapparstígn- um alla leið til Færeyja. Barinn er skreyttur ljósaseríum og skemmti- lega skrýtnum hlutum, veggirnir málaðir með hinum einkennandi og glaðlega túrkisbláa lit og meira að segja klósettin eru næstum því nákvæmlega eins. Utandyra er bakgarður sem þau ætla að vera búin að gera fallegan í sumar og hinar frægu biðraðir sem tíðkuð- ust fyrir utan Sirkus í Reykjavík SIRKUS NÚNA Í FÆREYJUM!Barinn goðsagnakenndi, Sirkus, hefur eignast útibú í Þórshöfn og hin skrautlega stemning sem fylgdi staðnum er föng- uð á hinum nýja stað. Anna Margrét Björnsson skellti sér í helgarferð til Færeyja og spjallaði við þau Jóel Briem, Sunnevu Eysturstein og Ómar Pálsson. Norðurljósadans á fjórhjólum Fjórhjólaferðir upp á Úlfarsfell að kvöldlagi eru skemmtileg leið til að upplifa norðurljósin SÍÐA 10 [ SÉRBLAÐ FRÉTTABLAÐSINS UM FERÐALÖG ] ferðalög FEBRÚAR 2010 FRAMHALD Á SÍÐU 6 Öðruvísi frí á vegum SEEDS Vinnubúðir á fjarlægum slóðum SÍÐA 4 ferðalög kemur út mánaðarlega með helgarblaði Fréttablaðsins. Ritstjóri Anna Margrét Björnsson amb@frettabladid.is Útlit Arnór Bogason og Kristín Agnarsdóttir Forsíðumynd Þórður Grímsson Pennar Hólmfríður Helga Sigurðardóttir Ljósmyndir Fréttablaðið, Þórður Grímsson Auglýsingar Bendikt Freyr Jónsson bjf@frettabladid.is Ekkert barn ætti að sækja Stokkhólm heim án þess að koma við á Junibacken á eyjunni Djurgården í hjarta borgarinnar. Þessi vina legi skemmtigarð- ur, nefndur eftir heimili Maddittar og Betu, sem reyndar heitir Sólbakki á íslensku, er að mestu leyti innandyra og því hægt að kíkja í heimsókn á hvaða árstíma sem er. Þar er að finna allskyns skemmti legheit eins og lestarferð í gegnum öll helstu ævintýri Astrid Lindgren þar sem hægt er að sjá allar helstu hetjur bókanna: Ronju ræningja- dóttur, Emil í Kattholti, Kalla á þakinu, Bræðurna Ljónshjarta og marga fleiri. Svo geta kátir krakkar leikið sér í húsinu hennar Línu á meðan foreldrar slaka á og fá sér heimabakaðar eplakökur og kaffi- bolla. www.junibacken.se Hverjum þykir ekki vænt um hina skrítnu, krútt- legu og súrrealísku múmínálfa sem voru skapaðir af hinni finnsku Tove Jansson en hægt er að heim- sækja þá í Múmínheim eða muumimaailma eins og hann heitir á finnsku. Múmínálfarnir búa á eyj- unni Naantali sem er um 16 kílómetra frá Turku og 180 kílómetra frá Helsinki. Þar er nóg um að vera og meðal annars hægt að heimsækja hús múmínsnáða, fara í sund í fallegu stöðu- vatni, heimsækja tjaldið hans Snúðs, skreppa í leikhús eða gæða sér á gómsætu veiting- unum henn- ar múmin- mömmu. www. muumimaa- ilma.fi. UPPÁHALDSÆVIN- TÝRI ALLRA Heimur Astrid Lindgren og dalur Múmínálfanna fyrir unga sem aldna. 2 FERÐALÖG Barnamenningarhátíð verður haldin dagana 19. – 25. apríl. Hátíðin fjallar um menningu barna, menningu með börnum og menningu fyrir börn. Tekið er á móti hugmyndum og umsóknum um atriði á Barna- menningarhátíð til 8. mars næstkomandi. Umsóknir berist til gudridur.inga.ingolfsdottir@reykjavik.is eða skuli.gautason@reykjavik.is Barnamenningarhátíð í Reykjavík? reykjavik.is/barnamenningarhatid Vilt þú taka þátt í F æreyjar eru án efa einn mest spennandi áfangastaður næsta sumars en eyjarnar hafa alltaf átt sérstakan sess í hjörtum Íslendinga. Eins og margir Íslendingar vita, sem hafa sótt þær heim eru Fær- eyjar dálítið eins og Ísland, nema betri! Í höfuðborginni Þórshöfn er líf og fjör en þar opnuðu til dæmis Sirkus För- oyar í desember og nýr og flottur sushi-staður. Þórs- höfn er einstaklega fallegur bær þar sem hefur tekist að halda í menningararfinn og gamla byggingarstílinn sem er svo sjarmerandi. Þórshöfn er á Straumey en til Færeyja teljast líka sautján aðrar smaragðsgrænar eyjar sem hægt er að heimsækja á bíl, með báti eða jafnvel á hest- baki. Hvort sem þú kýst að leigja þér hús og njóta frið- sældarinnar í afskekktum firði, fara í gönguferðir og skoða fugl, skreppa á tón- leikahátíð og sjá vinsælustu norrænu hljómsveitirnar eða bara djamma með hressum heimamönnum er af nógu að taka. Atlantic Airways flýg- ur tvisvar í viku til Færeyja nú í vetur en í sumar verða farnar þrjár ferðir í viku og í Kringlunni verður hægt að skoða hina ýmsu gistingar- og afþreyingarmöguleika. Kynningin á sér stað frá kl 13- 17. - amb FRÆNDUR VORIR Nú um helgina á sér stað mikil kynning á Færeyjum í Kringlunni þar sem Íslendingar geta kynnt sér allt það sem þessar átján yndislegu eyjar hafa upp á að bjóða. Þórshöfn Höfuðborgin á Straumey en hér eru byggingar langflestar í gamla færeyska stílnum. G-festival Pétur Ben er einn hinna fjölmörgu sem hafa spilað á þessari hátíð.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.