Fréttablaðið - 20.02.2010, Side 8
8 20. febrúar 2010 LAUGARDAGUR
ORKUMÁL Franz Árnason, formaður
Samorku, Samtaka orku- og veitu-
fyrirtækja, segir nánast óend-
anlega orku til í jarðskorpunni.
Orkuforðinn gæti staðið undir
allri núverandi orkunotkun jarðar-
búa í tíu þúsund ár, þótt ekki sé enn
tæknilega gerlegt að vinna nema
lítinn hluta hennar.
Franz sagði í ávarpi á aðalfundi
Samorku að nauðsynlegt væri að
leiðrétta misskilning þess efnis
að nýting vatnsafls og jarðvarma
feli ekki í sér sjálfbæra orkunýt-
ingu. Sjálfur umhverfisráðherra
hafi orðið vís að slíkum misskiln-
ingi. „Það er fullkomlega óábyrgt
að halda ekki áfram virkjun jarð-
hita og fallvatna til raforkufram-
leiðslu fyrir orkufrek iðjuver, nú
þegar þörf er á að auka gjaldeyris-
tekjur og atvinnu.“
Þá kvartaði Franz yfir orku-
sköttum ríkisstjórnarinnar; orku-
og veitufyrirtækin séu að mestu í
opinberri eigu og rekin með tak-
markaðri arðsemi. Ávinningur
þjóðarinnar felist ekki í nýjum
sköttum heldur lægra orkuverði.
Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráð-
herra sagði nýju skattana nauð-
synlega til að vinna á fjárlagahall-
anum. Áætlanir ríkisstjórnarinnar
gerðu ráð fyrir því að það tækist á
þremur árum. Að því loknu mætti
endurskoða skatttökuna.
„Ég tel mjög eðlilegt að allt skatt-
kerfið sé endurskoðað þegar þessu
tímabili er lokið, þá munum við
endurskoða allt og draga það eitt-
hvað niður. Einungis var samið
tímabundið um þessa skatta til
stóriðjunnar, til þriggja ára, þannig
að það er augljóst að við þurfum að
fara yfir þau mál.“
Í erindi sínu á fundinum sagði
Katrín erfiðleika við fjármögn-
un verða til þess að komið gæti til
tímabundins eignarhalds annarra.
„Óvissa og erfiðar aðstæður til
fjármögnunar hafa tafið ákvarð-
anir um framkvæmdir og gert það
að verkum að við verðum að horfa
til nýrra leiða varðandi fjármögnun
slíkra verkefna.
Þetta kann að þýða aðkomu og
jafnvel tímabundið eignarhald ann-
arra aðila að orkuverkefnum, til
dæmis með verkefnafjármögnun.“
kolbeinn@frettabladid.is
VR krefst þess að efling atvinnu-
lífsins verði algjört forgangsmál.
Nánast óendanleg
orka í jarðskorpunni
Formaður Samorku segir umhverfisráðherra misskilja eðli endurnýjanlegra
orkugjafa. Óábyrgt sé að virkja ekki fyrir orkufrek iðjuver. Iðnaðarráðherra
segir erfiðleika í fjármögnun geta kallað tímabundið á breytt eignarhald.
KATRÍN
JÚLÍUSDÓTTIR
FRANZ
ÁRNASON
HAÍTÍ, AP Átta bandarískir trúboðar voru látnir laus-
ir úr fangelsi á Haíti í vikunni og komu heim til
Bandaríkjanna á fimmtudag. Tveir aðrir eru þó
enn í haldi á Haítí og fyrrverandi lögmaður hóps-
ins er eftirlýstur í Bandaríkjunum og víðar.
Trúboðarnir tíu voru handteknir í lok síðasta
mánaðar þegar þeir reyndu að komast með 33 börn
úr landi yfir til Dóminíska lýðveldisins, þar sem
þau sögðust ætla að setja börnin á heimili fyrir
munaðarleysingja.
Lögreglan á Haítí hyggst ræða frekar við Lauru
Silsby, leiðtoga hópsins, og Charisu Coulter, fyrr-
verandi fóstru Silsby. Þær höfðu báðar komið til
Haítí áður til að kanna hvort hægt væri að fá börn
þar til ættleiðingar.
Lögmaðurinn Jorge Puello, sem er eftirlýstur,
bauð sig fram til að aðstoða trúboðana eftir að þeir
voru handteknir. Puello var ákærður árið 2003
fyrir aðild að smygli á ólöglegum innflytjendum til
Bandaríkjanna. Hann flúði þá til Kanada og segist
vera saklaus.
Hann er einnig eftirlýstur í El Salvador fyrir
smygl á fólki og fékk dóm árið 1999 fyrir þjófnað.
Trúboðarnir höfðu ekki fengið tilskilda papp íra
hjá stjórnvöldum á Haítí áður en þeir reyndu að
fara með börnin úr landi. - gb
Tvær konur enn í fangelsi á Haítí fyrir að hafa reynt að fara með börn úr landi:
Átta fengu að fara heim
LAUS ÚR PRÍSUND Hluti trúboðahópsins kominn heim til
Bandaríkjanna. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
SAMORKA Aðalfundur Samorku telur arð almennings af auðlindum landsins fyrst
og fremst felast í lágum reikningum. Ekki eigi að leggja frekari skatta á orkunotk-
un landsmanna. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Jarðhitinn sparar Íslendingum 50 til 60 milljarða í
erlendum gjaldeyri, að sögn Sigurðar Inga Friðleifs-
sonar, framkvæmdastjóra Orkuseturs. Ætla má að til
að hita híbýli Íslendinga þurfi 800 þúsund tonn af
olíu, sem flytja þyrfti inn. Nú eru framleiddar 4.000
gígavattsstundir með virkjun jarðhita, sem gæti annað
allri almennri orkunotkun á landinu, bæði hvað hita
og rafmagn snertir. Heildarframleiðslan er 17.000
gígavattsstundir.
SPARAR 60 MILLJARÐA
SIGURÐUR INGI
FRIÐLEIFSSON
1. Hvað heitir aðstoðarmaður
utanríkisráðherra?
2. Hvaða knattspyrnufélag á
að endurgreiða eignarhaldsfé-
lagi Björgólfs Guðmundssonar
sex milljónir króna?
3. Hvað er leyniþjónusta Ísra-
els kölluð?
SVÖRIN ERU Á SÍÐU 66
VIÐSKIPTI Eigið fé BM Vallár, sem
óskaði eftir greiðslustöðvun í byrj-
un mánaðar, var neikvætt um þrjá
milljarða króna um síðustu áramót.
Óskar Sigurðsson, aðstoðarmaður
félagsins í greiðslustöðvun, segir
ekki útilokað að staðan sé verri.
Kröfuhöfum var kynnt fjárhags-
leg staða BM Vallár í gærmorgun og
samþykkti meirihluti þeirra að óska
eftir framlengingu greiðslustöðvun-
ar á miðvikudag í næstu viku frem-
ur en að setja félagið í þrot.
Á milli sjötíu og áttatíu kröfuhaf-
ar mættu á fundinn.
Skuldir BM Vallár eru að mestu í
erlendri mynt og vegur það þungt í
efnahagsreikningi félagsins. Sam-
kvæmt því sem fram kom í lánabók
Kaupþings, sem lak á netið fyrir
þrot bankans haustið 2008, skuld-
aði BM Vallá bankanum 62 milljón-
ir evra, jafnvirði ellefu milljarða
íslenskra króna.
Erfitt er að glöggva sig á fjár-
hagslegri stöðu BM Vallár en félag-
ið hefur aldrei skilað ársreikningi.
Þegar Víglundur Þorsteinsson,
stjórnarformaður félagsins, var
spurður út í ástæðu þessa í byrj-
un mánaðar sagði hann bækurn-
ar opnar þeim sem málið skipti
og bætti við: „Ég spyr ekki hvern-
ig nærbuxum þú ert í.“ Hann vildi
ekki tjá sig um málið í gær og vísaði
á Óskar. - jab
VÍGLUNDUR Erfitt er að átta sig á fjár-
hagslegri stöðu BM Vallár þar sem fyrir-
tækið hefur aldrei skilað ársreikningi.
Eigið fé BM Vallár neikvætt um þrjá milljarða og ekki útilokað að staðan sé verri:
Erfitt að átta sig á stöðunni
FRAKKLAND, AP Spellvirkjar unnu
skemmdarverk á mosku í bænum
Sorgues í Frakklandi um helgina.
Þeir skrifuðu rasískar svívirðing-
ar á veggi moskunnar. Þetta er
sjötta moskan í Frakklandi sem
skemmdarverk hafa verið unnin
á það sem af er ári.
Mouhammed Moussaoui, tals-
maður múslímaráðs Frakklands,
segir múslíma í Frakklandi velta
fyrir sér hver raunverulegur til-
gangur skemmdarverkanna sé.
Hann segir ráðið hafa ítrekað
óskað þess að franska þingið geri
úttekt á andúð í garð múslíma í
Frakklandi, en talað fyrir dauf-
um eyrum. - ng
Spellvirkjar í Frakklandi:
Sjötta moskan
skemmd á árinu
VEISTU SVARIÐ?