Fréttablaðið - 20.02.2010, Page 25

Fréttablaðið - 20.02.2010, Page 25
LAUGARDAGUR 20. febrúar 2010 25 Og þér finnst þetta bara hund- leiðinlegt bögg? Sindri: „Nei, nei, þetta er mjög skemmtilegt. Rútulíf getur reynd- ar verið lýjandi til lengdar og svo verður þetta allt helmingi erfið- ara þegar maður er með lítið barn heima hjá sér. Besti hluti dagsins er alltaf að spila.“ Hera: „Eina rútulífið sem ég hef upplifað er þegar ég var ein af sextán söngkonum með Björk í kringum Medúllu-plötuna. Það var hornsófi aftan í rútunni og það var svolítið erfitt að halda bjórnum á glasamottunum. Rosa lúxusvandamál, ha ha ha.“ Sindri: „Þetta er nú ekkert hræði- legt hjá okkur. Það er alveg sjón- varp og sófi og rúm í rútunum.“ Hera: „Manni finnst það til- heyra rokkaragaurum að vera í rútu, en svo vorum við í Frost- rósum í svona pakka fyrir jólin. Maður sér ekki alveg fyrir sér okkur dúllurnar og Friðrik Ómar í rútu.“ Sindri: „Þetta er aðeins erfið- ara en ég bjóst við. Við þurfum að róta sjálf og tengja og borða rosa hratt áður en við förum að spila. Það er ekki mikið verið að skoða sig um. Ég er búinn að fara til alveg fáránlega margra staða í Evrópu og í Bandaríkjunum og í mörgum borgum hef ég bara séð bílastæði.“ Ógeðslega leiðinleg lög Þótt músíkin taki upp stærstan hluta í lífi Sindra og Heru er hún ekki alveg það eina. Sindri: „Ég er myndlistarmennt- aður og teikna mjög mikið og hef sýnt. Ég elska líka fótbolta.“ Hera: „Ég hef áhuga á innan- hússhönnun og finnst gaman að sprangla á fjöll. Mesta afrekið er Snækollur í Kerlingarfjöllum. Ég gekk þar upp, þetta er bratt og það var snjór, og svo renndi ég mér öskrandi niður á rass- gatinu. Það var algjör gargandi snilld. Þegar ég kom niður var allur göngugallinn kominn upp í hið óæðra en ég fann ekkert fyrir því af því að ég var svo dofin.“ Og þá er það stund sannleik- ans. Hvernig finnst þér lagið hennar Heru, Sindri? Sindri: „Mér finnst það gott. Það var allavega besta lagið í keppn- inni í ár. Ég held því eigi eftir að ganga vel. En ef ég á að segja alveg eins og er þá er ég ekki mikill Eurovision-aðdáandi.“ Hera: „Það er töff að vera á móti Eurovision.“ Sindri: „Tja, ég hef nú ekki kynnst því. Fólk skilur ekki hvað ég er að tala um þegar ég seg- ist ekki hafa gaman af þessu. Mér finnst bara 95% af þessum lögum í aðalkeppninni úti ógeðs- lega leiðinleg.“ Hera: „Það er nú kannski það fal- lega við þetta. Ég er alin upp af söngkonu (mamma Heru er Hjör- dís Geirs söngkona) og ég man eftir mér ungri að hlusta á Eur- ovision-lög. Ég er Eurovision- hommi fyrir allan peninginn.“ Hera hefur aldrei heyrt í Sea- bear. Hvernig útskýrir Sindri músíkina fyrir Heru? Sindri: „Fyrsta platan var dáld- ið svona kántrí-folk, en nýja er meira svona indie-rokk.“ Hera: „Ókei! Ég hef nú alveg gaman af þessu öllu svo ég fer beint heim að „jútjúba“ þig.“ ■ Hera Björk er 37 ára en Sindri er 27 ára. ■ Hera fór í Söngkeppni framhalds- skólanna 1988 fyrir hönd Fjölbrauta- skólans í Breiðholti og lenti í öðru sæti með lagið „Án þín“. ■ Sindri byrjaði einn með Seabear og gaf út fyrstu plötuna Singing Arc þannig. ■ Hera var einu sinni í hljómsveitun- um Orgill, Sweetý og 17 vélar. ■ Sindri gerði sólóplötu undir nafninu Sin Fang Bous. ■ Hera stjórnaði þættinum Stutt í spunann 1999-2000 með Hjálmari Hjálmars. ■ Fyrsta plata Seabear sem hljóm- sveit kom út 2007 og heitir The Ghost that carried us away. ■ Fyrsta sólóplata Heru heitir Ilmur af jólum og kom út árið 2000. ■ Sindra hefur verið líkt við Beck en Heru hefur verið við líkt við malt- nesku Eurovision-dívuna Chiara. ■ Hera var næstum því farin í Euro- vision fyrir Dani í fyrra. ■ Lagið Cat piano með Seabear hljómaði í Gossip girl. BLÁKALDAR STAÐREYNDIR HÁSKÓLA DAGURINN Þetta er snúið en þú hefur val! Yfir 500 námsleiðir í boði. Í Ráðhúsi Reykjavíkur verður kynning á námi frá Háskólanum á Akureyri, Háskólanum á Bifröst, Háskólanum á Hólum, Háskólanum í Reykjavík, Landbúnaðarháskóla Íslands og Listaháskóla Íslands. Í Háskóla Íslands, Háskólatorgi, Gimli og Odda verður kynning á námi við Háskóla Íslands. Í Norræna húsinu er kynning á framhaldsnámi í Danmörku og Svíþjóð. Kynntu þér möguleika framtíðarinnar á www.haskoladagurinn.is. Háskóladagurinn er haldinn í dag frá klukkan 11.00 til 16.00
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.