Fréttablaðið - 20.02.2010, Side 32
32 20. febrúar 2010 LAUGARDAGUR
að klippa sannleikann aðeins til.
Svo virðist sem einhverjir
fremur óþverralegir gárungar
hafi haft hönd í bagga með útgáf-
unni og sent inn bréf sem voru
birt stafrétt. Jóhannes hefur ekki
kunnað ensku og það notuðu gár-
ungarnir til að niðurlægja hann á
laun. Í einni aðsendri grein segir
meðal annars frá því að Jóhann-
es hafi fengið heiðursdoktors-
nafnbót frá „The Black school of
Lunatics and Homosexuals“ og í
annarri grein, sem er „frá“ Knox
flotaforingja, er Jóhannes sæmd-
ur æðstu orðu (Son of a bitch) frá
bandaríska húsmálaráðuneytinu
„sem hefur með höndum eyðingu
lúsa og annarra meindýra“.
Friðarhöfðinginn sóttist náttúr-
lega eftir æðstu stöðum í þjóðfé-
laginu og hugsaði sér því gott til
glóðarinnar þegar lýðveldið var
stofnað 1944. Enginn væri auð-
vitað betri sem forseti Íslands
en hann sjálfur. Kosningabarátta
Jóhannesar var nokkuð metn-
aðarfull, hann fór um landið og
hélt kosningafundi. Þar var hann
undantekningalítið sæmdur nýrri
nafnbót með tilheyrandi orðuveit-
ingum. Fundirnir gengu vel og
Jóhannes fékk 2.350 „kjósenda-
meðmælendur“ samkvæmt aug-
lýsingu í Alþýðublaðinu. Allt kom
fyrir ekki og Alþingi valdi fyrsta
forseta lýðveldisins, Svein Björns-
son. Þetta var vitanlega algjört
svindl í huga Jóhannesar. Hann
hafði verið nálægt forseta Alþing-
is þegar atkvæðin voru talin og
séð sitt nafn á flestum atkvæða-
seðlunum. Þeim hafði bara verið
stungið undir stól.
Sérkennilegir menn nútíðar
Pabbi sagðist líka muna vel eftir
Ástar-Brandi. Það var frægur
furðufugl, útigangsmaður sem fór
víða um land, mjög drykkfelld-
ur og kvensamur. Honum er lýst
sem þindarlausum og hann hljóp
út um allt. Var með prik sem hann
áreitti konur með. Vægast sagt
fremur óárennilegur náungi eins
og sjá má af frægum ljósmynd-
um af honum. Þessar ljósmynd-
ir auk fleiri af kynlegum kvist-
um og svöllurum þessa tíma voru
gefnar út á kortum og seld í bóka-
búðum – eitthvað sem seint myndi
ganga í dag.
Vísast eru óregla og geðsjúk-
dómar – stundum vegna þess að
viðkomandi „las yfir sig“ – algeng-
asta ástæðan fyrir sérkennileg-
heitum manna. Oft er líka örstutt
á milli snilli og geðveiki. Margir
vilja meina að með eflingu heil-
brigðiskerfisins á síðustu áratug-
um hafi hinum svokölluðu kynlegu
kvistum verið nánast útrýmt af
götum borgarinnar. Ég er nú ekki
svo viss. Ef vel er gáð er mannlíf-
ið sem betur fer ennþá fjölskrúð-
ugt. Ýmsir standa út úr og eru allt
annað en „eins og fólk er flest“.
Það er bara ekki við hæfi að draga
þá í kynlega dilka fyrr en eftir að
þeir eru fallnir frá. Dulmögnun
fortíðar mun eflaust í framtíðinni
lýsa upp marga sem nú ganga um
göturnar. Og svo má alltaf spyrja:
Hver er svo sem hundrað prósent
eðlilegur?
RITSTJÓRI HARÐJAXLS Oddur Sigurgeirsson – Oddur sterki af Skaganum – í fullum skrúða.
og smámæltur og mikið á eftir
kvenfólki. Hann kallaði þær alltaf
Dísur. Sagði „Díþa, Díþa“ þegar
kona gekk framhjá honum.“
Við pabbi fórum að tala um kyn-
lega kvisti frá hans tíð og hann
nefndi Jóhannes Kr. Jóhannes-
son til sögunnar. „Ég sá Jóhannes
einu sinni í Varmahlíð. Á þessum
tíma fengu svona fuglar ókeypis í
allar rútur og strandferðaskip og
því fóru þeir víða,“ sagði pabbi og
bætti við: „Hann var með banda-
rísku forsetahjónin á heilanum,
þau Franklín og Elinóru Roos-
evelt. Hann kallaði þau kjörfor-
eldra sína. Gárungarnir plötuðu
hann til að senda sæðið úr sér til
Hvíta hússins.“
Friðarhöfðinginn
Áhugi minn á Jóhannesi var snar-
lega vakinn við þessar lýsingar
pabba. Enn varð ég að kynna mér
málið með hjálp upplýsingaaldar-
innar þegar ég kom heim.
Jóhannes var fæddur 1885 og
lést 1953 eins og Oddur, 68 ára
gamall. Hann var trésmiður og
einn af stofnendum Trésmíðafé-
lags Reykjavíkur. Hann rak verk-
stæði að Sólvallagötu 20 og virðist
framan af hafa verið „eðlilegur“,
giftur maður og átti börn. Smám
saman virðist sem andleg van-
heilsa hafi tekið yfirhöndina.
Sennileg orsök er slæmt höfuð-
högg sem hann fékk við steypu-
vinnu árið 1920 og er getið í
Alþýðublaðinu.
Auk trésmíðinnar reyndi
Jóhannes fyrir sér með „gaman-
söngvaleik“, eins og hann kallar
það sjálfur í auglýsingu í Mogg-
anum 1935: „Kveðnir verða eftir
framsögumann nýir gleðisöngvar,
gamanvísur, ástavísur, ættjarðar-
kvæði, vinnu-sáðningar- og upp-
skerusöngur. Nýtt kvæði um Vest-
mannaeyjar, fullveldisdaginn, nýr
trúarljóðssálmur og fleira. Ágóð-
anum verður varið til jólaglaðn-
ings handa þeim, sem villst hafa
út á skuggabraut lífsins,“ segir í
auglýsingunni.
Síðar fékk Jóhannes tvennt á
heilann, alheimsfrið og það að
verða forseti Íslands. Hann kall-
aði sjálfan sig „Friðarhöfðingj-
ann“ og gaf út smáritið Friðar-
boðann og Vinarkveðjur. Ritið
ásamt myndakortunum seldi hann
á trésmíðaverkstæðinu og á ferð-
um sínum um landið. Á kortunum
eru myndir af nöktum erlendum
blómarósum og frumsamin ljóð
eftir Jóhannes. Á nokkrum kort-
um eru myndir af Jóhannesi sjálf-
um þar sem hann stendur ber í
sólbaðsaðstöðunni í Sundhöllinni.
Á einu slíku er þetta ljóð:
Mitt geislum stráða lífsins
spjót,
hér skín vel að vanda
það gefur líf og kjarnans þrótt
sem ætíð vel mun standa.
Kosningasvindl
Jóhannes fór leiðar sinnar reffi-
legur mjög með borðunginn full-
an af medalíum og tignarmerkj-
um. Bæklingarnir eru undarlegur
grautur. Þeir innihalda meðal ann-
ars ljóð og lýsingar á miðilsfund-
um, en þó er algengast að sagt
sé frá mikilfengleik Jóhannesar.
Bréf frá öllum helstu fyrirmenn-
um þessa tíma eru birt í bækling-
unum – hvort heldur frá Stalín eða
Churchill – og alls konar hefðar-
meyjar tjá Jóhannesi skilyrðis-
lausa ást sína. Margar myndir
fylgja með, oft er Jóhannes búinn
Mér þykir vænst um öll lítil
börn, eins þótt þau séu óhrein og
mömmurnar mega ekki hræða
börn með mér.
EIN AF KLIPPIMYNDUM JÓHANNESAR
Hér er hann í góðum málum með
blómarós.
Stjórnarkjör
Skv 34. grein félagsins skal tveim mánuðum fyrir aðal-
fund ár hvert auglýsa frest til framboðs í trúnaðarstöður
samkvæmt 23. og 24. gr.
Stjórn félagsins skipa fimm menn, formaður, varafor-
maður, ritari, gjaldkeri og einn meðstjórnendi, auk þess
fjórir menn til vara.
Einnig skal kjósa þrjá menn í trúnaðarráð og þrjá til vara,
tvo endurskoðendur og einn til vara og tvo menn í
kjörstjórn
Til að bera fram lista eða tillögu til stjórnarkjörs, trúnaðar-
ráðs eða annarra trúnaðarstarfa, þarf skriflega staðfest-
ingu þeirra sem á listanum eru. Komi aðeins fram einn
listi eða tillaga um menn í trúnaðarstöður, þarf kosning
ekki að fara fram.
Umsóknarfrestur er til 12.mars 2010
Umsóknum skal skila til skrifstofu félagsins Stórhöfða 31
merkt: Stjórnarkjör FÍS
Stjórn Félags íslenskra Símamanna