Fréttablaðið - 20.02.2010, Síða 35
Þ
essari hugmynd var skot-
ið á loft þegar ég var að
vinna á Sirkus í Reykja-
vík fyrir nokkrum
árum,“ segir Sunneva H. Eystur-
stein en hún opnaði barinn Sirkus
í desember í Þórshöfn ásamt Jóel
Briem og Sigríði Guðlaugsdóttur.
„Á þeim tíma var þó hugmyndin
aldrei neitt nema brjáluð fluga í
höfðinu á okkur og okkur datt ekki
í hug að þetta yrði að veruleika,“
segir hún og hlær. Sigríður móðir
Jóels, oftast þekkt sem Sigga Bos-
ton, rak Sirkus til margra ára á
Klapparstígnum en staðurinn lok-
aði árið 2008 sem varð mörgum
hryggðarefni. „Þegar staðurinn
lokaði þá kom hugmyndin aftur
upp á borðið,“ útskýrir Jóel sem
rekur nú staðinn ásamt Sunnevu.
Jóel eyðir tíma sínum jafnt í Þórs-
höfn og Reykjavík en hann rekur
nokkra veitingastaði þar.
„Það var kominn tími fyrir mig
til að flytja aftur í heimahagana,“
segir hin færeyska Sunneva.
„Mér fannst virkilega vanta ein-
hvern stað eins og Sirkus. Staðirn-
ir í Þórshöfn voru alls ekki minn
tebolli og það var enginn bar fyrir
skapandi fólk að hittast og hanga
á eins og Sirkus var á Íslandi. Við
ákváðum því að slá til og láta þessa
hugmynd verða að veruleika,“
segir Sunneva.
Íslendingar fengu tár í augun
Innan skamms fundu þau hús-
næði á besta stað í bænum á tveim-
ur hæðum og hófust handa við að
endurskapa það útlit og andrúms-
loft sem einkenndi Sirkus. Innan-
dyra er umhorfs næstum því alveg
eins og á Sirkusi sáluga og mætti
halda að staðurinn hefði hrein-
lega bara fokið af Klapparstígn-
um alla leið til Færeyja. Barinn er
skreyttur ljósaseríum og skemmti-
lega skrýtnum hlutum, veggirnir
málaðir með hinum einkennandi
og glaðlega túrkisbláa lit og meira
að segja klósettin eru næstum því
nákvæmlega eins. Utandyra er
bakgarður sem þau ætla að vera
búin að gera fallegan í sumar og
hinar frægu biðraðir sem tíðkuð-
ust fyrir utan Sirkus í Reykjavík
SIRKUS NÚNA Í FÆREYJUM!
Barinn goðsagnakenndi,
Sirkus, hefur eignast
útibú í Þórshöfn og hin
skrautlega stemning sem
fylgdi staðnum er föng-
uð á hinum nýja stað.
Anna Margrét Björnsson
skellti sér í helgarferð til
Færeyja og spjallaði við
þau Jóel Briem, Sunnevu
Eysturstein og Ómar
Pálsson.
Norðurljósadans á fjórhjólum
Fjórhjólaferðir upp á Úlfarsfell að kvöldlagi eru
skemmtileg leið til að upplifa norðurljósin SÍÐA 10
[ SÉRBLAÐ FRÉTTABLAÐSINS UM FERÐALÖG ]
ferðalög
FEBRÚAR 2010
FRAMHALD Á SÍÐU 6
Öðruvísi frí á
vegum SEEDS
Vinnubúðir á
fjarlægum slóðum
SÍÐA 4