Fréttablaðið - 20.02.2010, Blaðsíða 43
3
„Við erum að reyna að endurvekja
sýningarandann á Íslandi en hann
virðist vera dottinn upp fyrir og
flestir hugsa aðeins um að keppa,
vera í fyrsta sæti og ná toppnum.
Í gamla daga virtist fólk geta notið
þess að horfa á og sýna íþróttir,“
segir Kolbrún Fjóla Arnarsdóttir
sem ásamt Önnu Grétu Ólafsdótt-
ur stendur fyrir sýningunni Kraft-
urinn knýr í Borgarleikhúsinu á
sunnudag.
Sýningin er lokaverkefni þeirra
stallna frá Íþrótta- og heilsu-
fræðum við Háskóla Íslands. „Við
erum ekki þessar týpur sem eru
mikið fyrir að sitja og skrifa og
því langaði okkur að gera eitthvað
öðruvísi. Þá kviknaði sú hugmynd
að halda íþrótta- og listasýningu,“
segir Kolbrún en stúlkurnar hafa
undirbúið atburðinn í tæpt ár.
Hún segir mikla vídd í sýning-
unni sem jafnast á við fjöllistasýn-
ingu. „Þarna koma börn frá sex
ára aldri og fólk upp í áttrætt,
bæði heilbrigðir og fatlað-
ir, sem sýna frá þrettán
mismunandi íþróttum,“
útskýrir hún og telur upp
nokkrar af þeim íþrótta-
greinum sem verða til sýnis.
„Þarna verða ketilbjöllur,
körfubolti, pole-fitness, dans,
sirkus, box, ballett, fimleik-
ar, júdó og margt fleira.“
Kolbrún segir reynsluna af
undirbúningi sýningarinnar hafa
verið einstaklega ánægjulega.
„Það kom okkur skemmti-
lega á óvart hversu auðvelt
var að fá fólk til samstarfs
við okkur,“ segir hún glað-
lega en um hundrað manns
koma að sýningunni.
Tvær sýningar verða
á morgun, klukkan 13 og
15. Aðgangseyrir er 1.500
krónur en miðasala fer
fram á www.midi.is. Einnig
má finna fleiri upplýsingar
á facebook.
solveig@frettabladid.is
SÖNGLEIKURINN ALADDÍN var frumsýndur af Leikfélagi Menntaskólans
við Sund í vikunni. Sýningar fara fram í Norðurpólnum en næsta sýning er í kvöld.
Leikritið verður sýnt alls níu sinnum og síðasta sýning er áætluð 13. mars.
Endurvekja sýningaranda
Box, júdó, pole-fitness og ballett eru meðal þess sem verður til sýnis á sýningunni Krafturinn knýr í
Borgarleikhúsinu á morgun. Sýningin er lokaverkefni tveggja stúlkna á íþróttabraut Háskóla Íslands.
Anna Gréta Ólafs-
dóttir og Kolbrún
Fjóla Arnarsdóttir
hafa undirbúið
sýninguna í tæpt
ár en meðal sam-
starfsaðila þeirra
eru Ungmennafélag
Íslands, Dance
Centrum, Pole fitn-
ess, íþróttafélagið
Ármann og fleiri.
FOOD AND FUN MATSEÐILL
Þorsk- og humar carpaccio með rauðbeðu og humar
vinaigrette, djúpsteiktum ostrum og parmesan osti.
Bakaðar ýsulundir með piparrót og “Västerbotten” osti,
sellerýrótar ragout og kóngakrabba í súrsætri dillsósu.
Lambahryggvöðvi með reyktum möndlukartöflum,
steinseljurót, hvítlaukskremi og ítalskri pancetta pylsu.
Vetrar eplaseyði með kaffi-ís og vanillukexi.
6.900 krónur.
Allt þetta á 23.800 krónur.
GISTITILBOÐ Í TILEFNI FOOD AND FUN
. Happy hour frá kl. 17 - 18
. Grand gisting í betri glæsiherbergi í turni hótelsins
. Food and Fun málsverður - fjögurra rétta
. Morgunverður er innifalinn
Matreiðslumeistarinn Johan “Guzz” Gustafsson
verður á Food and fun hátíðinni á Grand hótel
GRAND FO OD AND FUN
Dagana 24. til 28. febrúar
Grand Hótel Reykjavík / Sigtún 38 / 105 Reykjavík / Sími: 514 8019 / Fax: 5148030 / www.grand.is
FR
ÉTTA
B
LA
Ð
IÐ
/VA
LLI
Spilakvöld eru frábær skemmtun
alla daga vikunnar og ekki síst í
góðra vina hópi á laugardagskvöldi.
Eitt þekktasta borðspilið er Trivi-
al Pursuit sem fyrst kom á markað
1982 og hefur staðið fyrir sínu síðan.
www.wikipedia.org