Fréttablaðið - 20.02.2010, Síða 78
BAKÞANKAR
Davíðs Þórs
Jónssonar
42 20. febrúar 2010 LAUGARDAGUR
■ Pondus Eftir Frode Øverli
■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes
■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman
Þessa
leið!
Það er
beðið
eftir þér!
Komdu
sæll Günth-
er! Ertu viss
um að þú
viljir gera
þetta?
Já takk!
Endi-
lega!
Klæddu þig þá
úr! Núna!
Maður
verður
kannski
smá
stressaður!
Velkomináborgarahofiðhvað-
mábjóðaþér?
Ert þetta þú
Stefán?
Ég hélt að
þú ætlaðir á
námskeið í
klettaklifri í
fríinu?
Ég hef séð framtíðina og
hún er með hárnet.
Já, en þar sem
ég er að klára
menntaskólann
á næsta ári
fannst pabba
að ég ætti að
vinna mér inn
peninga til að
eiga fyrir fram-
haldsnámi.
MAMMA!
LÓA
ER AÐ
GRÁTA!
Nú, taktu hana þá upp
og segðu henni að allt
sé í lagi.
Það er allt í lagi. Hún
grætur
enn.
Hikk
Óskir?! Hvað
meinarðu óskir?
Af hverju það er
betra að tæma
flöskurnar áður
en andinn er
settur í þær...
Núverandi formaður Sjálfstæðisflokks-ins hafði ekki hugmynd um hvað fyrir-
tæki hans var að bedrífa í útlöndum meðan
hann sat þar í stjórn. Hann vissi ekki held-
ur um milljarðana sem fjölskyldufyrir-
tæki hans rændi af íslensku þjóðinni með
ólögmætu olíuokri árum, ef ekki áratugum,
saman. Af tvennu illu finnst honum skárra
að vera gersamlega vanhæfur stjórnandi
heldur en gerspilltur stjórnmálamaður.
KOMIÐ hefur í ljós að í aðdraganda hruns-
ins var annar ríkisstjórnarflokkurinn ekki
hafður með í neinum ráðum þótt þau vörð-
uðu málaflokka sem heyrðu beint undir ráð-
herra hans. Þar voru menn of uppteknir af
því að vera ráðherrar til að hafa rænu á
að vinna sína vinnu. Fyrrverandi formað-
ur Sjálfstæðisflokksins, þáverandi for-
maður og fjármálaráðherra véluðu landið
einir til helvítis sín á milli. Það var ekki
fyrr en á síðustu metrunum sem Sam-
fylkingin var upplýst um ástandið.
LEIÐTOGI Samfylkingarinn-
ar í borgarstjórn er marg-
faldur Íslandsmeistari í að
svara einföldustu spurning-
um með því að tvinna saman
innihaldslausa frasa og pólit-
ískar klisjur í svo endalaus-
ar langlokur að þeir sem ekki
sofna undir ósköpunum eru
löngu búnir að gleyma spurningunni þegar
svarið er búið. Þannig er Samfylkingin,
snotrar umbúðir um ekki neitt.
Í AÐDRAGANDA hrunsins höfðu vinstri-
græn mestar áhyggjur af litnum á ábreið-
unum á fæðingardeildinni og þeirri karl-
rembu að reisa Reykjavíkurskáldinu styttu.
Engin von er til að þetta breytist með
nýjum oddvita flokksins í borginni, rörsýn-
asta dólgafemínista síðari tíma. Maður von-
aði að hún væri umborin í flokknum, ekki
að hún væri þar leiðtogaefni.
FRAMSÓKNARFLOKKURINN býður lausn-
ir á ástandinu, en er ekki einu sinni fær
um að standa að eigin formannskjöri án
ógleymanlegs klúðurs.
FRJÁLSLYNDI flokkurinn hefur afneitað
borgarfulltrúa sínum.
BESTI flokkurinn hefur stolið því flottasta
úr stefnuskrám hinna en ólíkt þeim lýgur
hann því ekki að kjósendum að hann ætli að
framkvæma eitthvað af því. Í ljósi ástands-
ins er óneitanlega grátbroslegt að heyra
Besta flokkinn kallaðan grínframboð. Hin
augljósa staðreynd er sú að í næstu borgar-
stjórnarkosningum verða eintóm grínfram-
boð í boði. Ég segi fyrir mig að ég vil frek-
ar að stjórnmálamenn séu brandarakarlar
en þeir séu brandari – á minn kostnað.
Grínframboð
KORPUTORGI
50%
AFSLÁTTUR
AF DÖMU
NÁTT- OG NÆRFATNAÐI
Opið: Mán.-lau. 11 til 18
Sun. 12 til 18 • Sími 578 9400
TILBOÐIN GILDA TIL
SUNNUDAGSINS 28. FEBRÚAR
KLINK
DAGAR!
YFIR 4000 VÖRUR
Á 250, 500 EÐA
1.000 KRÓNUR
Hringdu í síma
ef blaðið berst ekki