Fréttablaðið - 20.02.2010, Side 102
66 20. febrúar 2010 LAUGARDAGUR
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
LÁRÉTT
2. útdeildu, 6. ryk, 8. beiskur, 9. gogg,
11. íþróttafélag, 12. deyfa, 14. yfir-
stéttar, 16. vörumerki, 17. gagn, 18.
stækkaði, 20. hljóta, 21. ólukka.
LÓÐRÉTT
1. samskonar, 3. hæð, 4. pensillín,
5. dýrahljóð, 7. planta, 10. óvild,
13. of lítið, 15. málmur, 16. sæ, 19.
bókstafur.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. gáfu, 6. im, 8. súr, 9. nef,
11. kr, 12. slæva, 14. aðals, 16. ss, 17.
nyt, 18. jók, 20. fá, 21. ólán.
LÓÐRÉTT: 1. eins, 3. ás, 4. fúkalyf, 5.
urr, 7. melasól, 10. fæð, 13. van, 15.
stál, 16. sjó, 19. ká.
„Ég átti fimmtán prósent í þessu fyrirtæki,
var ekki framkvæmdastjóri og það er því
fáránlegt af Birtu að rifja þetta upp,“ segir
Linda Björg Árnadóttir, fagstjóri fatahönnun-
arbrautar LHÍ. Birta Björnsdóttir, fatahönn-
uður og eigandi Júníform, sendi fjölmiðlum í
gær afrit af bréfi sínu til rektors LHÍ og ósk-
aði eftir formlegri afsökunarbeiðni frá skól-
anum vegna ummæla Lindu um kjóla hennar
í Fréttablaðinu á þriðjudag. Í bréfinu er rifj-
að upp að Linda hafi átt fatamerkið Crylab og
segir Birta svo í bréfinu um það fyrirtæki:
„… voveiflegt gjaldþrot fatamerkis hennar,
Crylab, þar sem sviðin jörð og kröfur í tómt
þrotabú var það eina sem sat eftir.“
Linda hefur verið í París undanfarna daga
og því ekki getað fylgst með umræðunni um
þetta mál af nægjanlegri athygli. Hún tekur
þó fram að þetta sé ekkert persónulegt stríð
milli sín og Birtu, hún eigi ekkert sökótt við
íslenska hönnuðinn. „Ég er hönnuður sjálf
og hef gert ljóta kjóla,“ segir Linda og vill
því beina deilunni í annan og betri farveg,
þetta snúist ekki um kjólana tvo, heldur
fyrst og fremst um ábyrgð RÚV og skyld-
ur þess gagnvart íslenskri hönnun í allri
sinni mynd. „Þeir hjá Sjónvarpinu eru að
búa til eitthvað sem er inni í hverri stofu í
landinu. Sjónvarpsfólkið eru ekki stjörn-
ur í einhverju raunveruleikasjónvarpi
þótt þær virðist halda það heldur hafa
þær ákveðnum skyldum að gegna gagn-
vart áhorfendum. Þetta á ekki allt að
vera svona rosalega sjálfhverft.“
Linda bendir jafnframt á þá stað-
reynd að fyrirtæki óski eftir henn-
ar þjónustu til að láta segja sér hvað
sé ljótt og hvað ekki og það sé ástæða
fyrir því. „Slíkt sparar einfaldlega
peninga og tíma,“ segir Linda sem hefur
fundið fyrir miklum stuðningi
meðal hönnuða og listamanna við
hennar hlið. - fgg
Kjólamálið er ekkert persónulegt
SVARAR BIRTU Linda segir ósanngjarnt
af Birtu að rifja upp gjaldþrot Crylab,
hún hafi ekki átt stóran hlut í því og var
ekki framkvæmdastjóri.
PERSÓNAN
Sveinn Kjartansson
Aldur: Ég er 46 ára.
Starf: Ég er matreiðslumaður og
annar eigandi Fylgifiska.
Fjölskylda: Ég á eiginmann og
hund.
Búseta: Ég bý í Fossvoginum.
Stjörnumerki: Ég er hrútur.
VEISTU SVARIÐ
Svör við spurningum á síðu 8
1 Kristján Guy Burgesss.
2 KR Sport - rekstrarfélag
knattspyrnudeildar KR.
3 Mossad.
Kvikmyndagerðarmenn hafa
undanfarið mótmælt niðurskurði á
fjármagni til íslenskrar kvikmynda-
gerðar. Mótmælin taka á sig ýmsar
myndir, en sérstök mótmælamynd-
bönd Ragnars Bragasonar, Gríms
Hákonarsonar og fleiri leikstjóra
hafa farið eins og eldur í sinu
um Netið. Edduverðlaunahátíðin
verður haldin næsta laugardag og
nú heyrist að mótmæl-
in haldi þar áfram,
en bransinn ætlar
samkvæmt heimild-
um Fréttablaðsins
að skilja sparifötin
og glamúrinn eftir
heima mál-
staðnum til
stuðnings.
Sjónvarpskonurnar Sigrún Ósk
Kristjánsdóttir og Ragnhildur Stein-
unn Jónsdóttir hafa tekið hönd-
um saman ásamt söngkonunni
Birgittu Haukdal og verða föt til
sölu í Kolaportinu um
helgina. Engum sögum
fer af því hvort Ragn-
hildur bjóði upp á
umdeildan kjól sem
hún klæddist á loka-
kvöldi undankeppni
Eurovision, en þær
verða vafalaust
með fjölmargar
fallegar flíkur á
boðstólum.
Orðatiltækið að leita ekki langt yfir
skammt kemur upp í hugann þegar
efnistök tímaritsins Vikunnar eru
skoðuð, en ljósmyndari blaðsins
var í forsíðuviðtali á dögunum.
Þessa vikuna er Tobba í Djúpu
lauginni á forsíðunni, en hún er
einnig þekkt sem Þorbjörg Marin-
ósdóttir, blaðakona á Séð og heyrt
og fleiri blöðum Birt-
íngs. Birtíngur gefur
út Vikuna og nafn
Tobbu má meira að
segja finna á fyrstu
síðu Vikunnar undir
„blaðamenn“.
- afb
FRÉTTIR AF FÓLKI
„Ég hef hægt og rólega byggt upp
ást á Svíþjóð,“ segir háðfuglinn
og handritshöfundurinn Sigurjón
Kjartansson.
Sigurjón er sestur á skólabekk
og hóf nýlega nám í sænsku hjá
Mími-símenntun. Ást á sænskri
menningu varð til þess að Sigur-
jón ákvað að stúdera tunguna, sem
hann segist hafa fallið fyrir. Hann
segir að Svíar séu fremstir þjóða
á ýmsum sviðum. „Ég er fallinn
fyrir sænskunni. Í popptónlist eru
þeir fremstir norrænna þjóða og í
ýmsu öðru, eins og kvikmynda- og
sjónvarpsþáttagerð,“ segir hann.
Alls kyns vesen hefur að sögn
Sigurjóns orðið til þess að hann
hefur ekki getað sinnt náminu sem
skyldi undanfarið. Hann hefur þó
reynt að halda dampi, meðal ann-
ars með því að horfa á sænskt sjón-
varpsefni. „Ég hef reynt að senda
kennaranum tölvupósta á sænsku
og svo hef ég horft á sænsku Eur-
ovision-forkeppnina, Melodifesti-
valen,“ segir Sigurjón. Keppnin er
einn af stærstu sjónvarpsviðburð-
um ársins í Svíþjóð og Sigurjón
sparar ekki stóru orðin þegar hann
lýsir því sem fyrir augu ber: „Stór-
kostlegt! Þeir kunna að halda Eur-
ovision-forkeppnir. Það er miklu
hærri standard á þessu heldur en
hér,“ segir hann og bætir við að
Svíinn sé bestur í flestu.
Sigurjón hefur mikið komið
að handritaskrifum fyrir sjón-
varp undanfarið. Spurður hvort
sú vinna sé ástæðan fyrir náminu
segist hann ekki útiloka neitt. „Ég
hef pínulítil sambönd þar, en ég
segi ekki að ég sé endilega að gera
þetta af faglegum ástæðum.“ - afb
Sigurjón fellur fyrir sænskunni
ELSKAR SVÍÞJÓÐ
Sigurjón Kjartansson lærir nú
sænsku að miklum móð og
hefur fallið fyrir tungumálinu.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Lækjargata 2a 101 sími 511-5001 R. opið alla daga 9.00 - 22.00
Státum af metn
aðarfullu úrvali e
rlendra bóka
Viku-
tilboð
5.995,-
4.995,-
Myndi r af hasa rdúkkum
McFarlane-fyrirtækisins úr kvik-
myndinni Prince of Persia: Sand of
Time eru komnar á Netið. Og þar á
íslenski leikarinn Gísli Örn Garð-
arsson sína eigin dúkku en eins
og Fréttablaðið hefur greint frá
leikur Gísli skúrkinn The Vizier á
móti stórleikaranum Jake Gyllen-
haal og Bond-píunni Gemmu Art-
eton auk Bens Kingsley og Alfreds
Molina.
Gísli hafði sjálfur ekki séð
dúkkurnar þegar Fréttablaðið
hafði uppi á honum. „Ja hérna, ég
segi nú bara ekki annað, það er
ekki öll vitleysan eins í þessu lífi,“
voru fyrstu viðbrögð Gísla þegar
þetta var borið undir hann. Eins
og Fréttablaðið greindi frá stóð
alltaf til að gera svona dúkkur og
Gísli mun sennilega getað státað
af því áður en sumarið brestur á,
einn Íslendinga, að eiga bæði sína
eigin McFarlane-dúkku og Lego-
karl því danska kubbafyrirtækið
er á fullu við að undirbúa útgáfu
á Lego-körlum upp úr kvikmynd-
inni. „Ég er reyndar búinn að sjá
Lego-karlinn og hann er mjög
flottur.“ McFarlane-fyrirtækið
er þekkt fyrir dúkkur sínar og
hefur meðal annars gert dúkkur
af þekktustu leikmönnum NBA og
persónum úr sjónvarpsþáttunum
24 og The Simpsons.
Kvikmyndin sjálf verður frum-
sýnd í lok maí í Bandaríkjunum
en Gísli segist ekki hafa hugmynd
um hvernig hlutverki hans verði
háttað í tengslum við markaðs-
setningu myndarinnar. „Nei, þeir
hafa ekkert verið duglegir að hafa
samband, þeir hjá Disney, og upp-
lýsa mann um framgang mála,“
segir Gísli. Bundnar eru miklar
vonir við myndina þar vestra og
jafnvel reiknað með að svipað æði
ríði yfir Bandaríkin og þegar sjó-
GÍSLI ÖRN: ÞAÐ VERÐA HARÐIR PAKKAR UM NÆSTU JÓL
KOMINN Í HÓP MEÐ KOBE
BRYANT OG JACK BAUER
GÍSLI OG DÚKKURNAR
Gísli hafði ekki séð dúkkurnar þegar
Fréttablaðið hafði samband við
hann. Þær eru framleiddar af hinu
virta leikfangafyrirtæki McFarlane
sem hefur meðal annars gert dúkkur
af þekktustu leikmönnum NBA og persónum
sjónvarpsþáttanna 25 og The Simpsons.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
A
LL
I
ræningjamyndirnar hans Johnny
Depp voru nánast einráðar í kvik-
myndahúsum um allan heim.
Leikarinn segist annars hlakka
til að sjá myndina, það hafi verið
bjart yfir henni þegar hann las
handritið. „Þetta er bara stráka-
mynd, bara sandur og sól, karlar að
skylmast og sæt prinsessa,“ segir
Gísli og bætir því við að senni-
lega megi hann reikna með því að
næstu pakkar sem hann fái verði
harðir. „Já, ég er ansi hræddur um
það.“ freyrgigja@frettabladid.is