Fréttablaðið - 20.04.2010, Blaðsíða 15

Fréttablaðið - 20.04.2010, Blaðsíða 15
ÞRIÐJUDAGUR 20. apríl 2010 Útgáfa skýrslu rannsóknar-nefndar Alþingis um banka- hrunið mánudaginn 12. apríl er stórviðburður í íslenskri stjórn- málasögu. Hún er það ekki endi- lega vegna þess að allt sem stend- ur í skýrslunni komi fólki á óvart eða sé nýmæli. En skýrslan gefur ómetanlega innsýn í pólitíska menningu og viðskipti á Íslandi undanfarinn áratug. Ekki er lengur hægt að efast um skaðsemi þeirr- ar stefnu sem rekin var í íslensku viðskiptalífi allt frá einkavæð- ingu bankanna og fram að hruni. Á hinn bóginn er óvíst að almenn samstaða væri um það ef ekki hefði verið fyrir hrunið. Efnahags- hrunið veldur því að nú blasir við að kerfið var rotið og að tilraunin með fyrirmyndarsamfélag frjáls- hyggjunnar á Íslandi bar feigðina í sér frá upphafi. Jafnframt er skýrslan áfellis- dómur yfir pólitískri menningu á Íslandi á veltiárunum eftir einka- væðingu bankanna. Fljótlega eftir einkavæðingu bankanna árið 2002 hafði myndast breið samstaða um ýmsar pólitískar kreddur. Fyrir alþingiskosningar 2003 kepptust stærstu flokkarnir, Sjálfstæðisflokkur, Framsóknar- flokkur og Samfylking, til dæmis við að lofa sem mestum skatta- hækkunum. Í skýrslunni viðurkennir Geir H. Haarde fv. forsætisráðherra að það hafi verið meðal afdrifa- ríkustu hagstjórnarmistaka ára- tugarins að efna þetta loforð. En þessi málflutningur féll bönkun- um vel í geð. Þeir veittu pening- um óspart til þessara flokka og styrktu frambjóðendur þeirra í prófkjörum. Fjórði flokkurinn, Vinstrihreyfingin-grænt fram- boð, fór hins vegar aðra leið. Í fyrsta lagi gagnrýndi hann bæði einkavæðinguna og framkvæmd hennar og hafnaði frjálshyggju- kreddum hinna flokkanna. Í öðru lagi setti VG sér þær reglur að hvorki flokkurinn né frambjóðendur hans gátu tekið við milljónastyrkjum frá bönkunum og öðrum stórfyrir- tækjum. Þess vegna eru engir vinstrigrænir á listanum yfir styrkþega bankanna. Munurinn felst í ólíkri, pólitískri menningu innan flokkanna þar sem ein- ungis einn viðhafði þá siði sem tíðkast í nágrannalöndum okkar. Þess vegna voru íslensk stjórn- mál ekki spillt í gegn; stjórnmála- flokkar gátu kosið að taka ekki þátt í peningavæðingu stjórn- málanna og sumir gerðu það. Í kjölfar skýrslunnar eru gall- ar á pólitískri menningu á Íslandi orðnir augljósir og athyglin hefur mjög beinst að einstaklingum; bæði þeim sem báru ábyrgð á pól- itískum mistökum en líka þeim sem létu flækja sig í fjárhags- legt net bankanna og krosseigna- tengdra fyrirtækja þeirra. Öflug krafa er uppi um að þessi og hinn eigi að víkja og sumir vilja helst skipta út öllum stjórnmálamönn- um fyrir nýtt og syndlaust fólk. En vandi íslenskra stjórnmála fyrir hrunið var kerfislægur en ekki persónubundinn. Það leysir ekki vandann að kúlulánþegi segi af sér þingmennsku því að næsti varamaður er líklega kúlulán- þegi líka. Sumir flokkar aðhyllt- ust einfaldlega ákveðna aðferða- fræði í samskiptum við bankanna og rekstur fyrirtækja. Þess vegna er t.d. sá sjálfstæðismað- ur vandfundinn sem ekki hefur einhver tengsl við þau fyrirtæki sem koma fyrir í skýrslunni. Þó að sextán sjálfstæðismenn segi af sér þingsæti koma aðrir sextán í staðinn sem hafa til þess umboð frá þjóðinni. Þess vegna er lausnin ekki endilega mannaskipti heldur nýtt hugarfar. Það er einmitt það sem vantar hjá Sjálfstæðisflokknum; að hann hafi gert markvissa til- raun til að sýna fram á sú stefna sem hann boðar núna sé eitthvað annað en sá hrunadans sem lýst er í rannsóknarskýrslu alþing- is. Að segja að fólk hafi brugðist en ekki stefnan dugar ekki því að rannsóknarskýrslan er samfelld- ur áfellisdómur yfir hugmynda- fræði flokksins og stefnu hans í framkvæmd undanfarinn áratug. Á hinn bóginn örlar á slíku end- urmati hjá Samfylkingunni. Það kom að einhverju leyti fram í iðr- unarræðu Ingibjargar Sólrúnar á flokksráðsfundinum á laugardag- inn en þó enn frekar í grein henn- ar í seinasta hefti Tímarits Máls og menningar. Það hefur líka komið fram í ummælum Jóhönnu Sigurðardóttur og Össurar Skarp- héðinssonar að undanförnu, þar sem Blair-ismanum er hafnað. Það verða að teljast tíðindi þar sem „hin nútímalega jafnaðar- stefna“ sem fellst í meginatrið- um á allar helstu kreddur frjáls- hyggjunnar hefur verið ein af grunnstoðum Samfylkingarinn- ar allt frá stofnun flokksins. Að vísu dugar hér ekki Samfylking- unni að skipta um slagorð; gera verður þá kröfu að stefnubreyt- ingarinnar sjái líka stað í lands- fundarsamþykktum flokksins og verkum hans í ríkisstjórn. Raun- veruleg stefnubreyting af því tagi væri töluvert meira virði en afsagnir fjölmargra þingmanna. Iðrun og endurmat Sverrir Jakobsson sagnfræðingur Í DAG En vandi íslenskra stjórnmála fyrir hrunið var kerfislægur en ekki per- sónubundinn. Það leysir ekki vand- ann að kúlulánþegi segi af sér þing- mennsku því að næsti varamaður er líklega kúlulánþegi líka. www.mba.is PI PA R \T B W A \ SÍ A 1 0 0 9 7 3 Skoraðu á þig og taktu skrefið MBA-nám við Háskóla Íslands Kynningarfundur um MBA-námið miðvikudaginn 21. apríl kl. 11.40–12.30 á Háskólatorgi, stofu 101. Á undan námskynningunni, eða milli 10.30 og 11.30, heldur Flemming Poulfelt, prófessor við CBS í Kaupmannahöfn (Copenhagen Business School), fyrirlestur í stofu 104. Fyrirlesturinn ber yfirskriftina Return on Strategy. A ug lý si ng as ím i Allt sem þú þarft…

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.