Fréttablaðið - 03.05.2010, Síða 16
Hraunlistamaðurinn Snorri Guð-
mundsson fór og skoðaði Heklu-
gosið árið 1991. Hann varð þrumu
lostinn og hefur verið hugfang-
inn af hrauni síðan. Hann stofnaði
Hraunverksmiðjuna sama ár og
framleiðir alls kyns minjagripi úr
hrauni. „Þetta hefur verið þáttur
af tilveru minni síðan. Undanfarið
hef ég unnið með Hekluhraun frá
árinu 2000 en er þó þegar búinn að
næla mér í nokkra mola úr gosinu
á Fimmvörðuhálsi og sé það strax
að hraunið þaðan er frábrugðið því
sem hefur komið úr Heklu,“ segir
Snorri og nefnir litlar gleragnir
sem stirnir á.
Snorri brýtur niður hraunmola
í litlar öskjur og segir útlendinga
fyllast ferðaþrá og forvitni þegar
þeir fá hraunmola í hendur. „Þetta
er eins og ef við fengjum krukku
með Sahara-sandi, það vaknar
eitthvað.“
Hraunmolarnir sem Snorri
kallar Nature‘s work of art koma
í litlum handmáluðum öskjum en
í hverri öskju er náttúruvernd-
aráminning frá Snorra. „Skila-
boðin eru þau að eldvirkni er
grundvöllur tilveru okkar en hún
skapaði það andrúmsloft í árdaga
sem tryggir líf á jörð. Við hugsum
oft um eldfjöll sem eyðileggjandi
afl sem getur haft neikvæð áhrif
á fólk og veðurfar en eldfjöll og
regnskógar eru í raun tveir and-
stæðir pólar sem gera líf á jörð-
inni mögulegt,“ segir Snorri en í
áminningunni segir jafnframt að
kaup á vörunni tryggi gróðursetn-
ingu á tré við Heklurætur.
Snorri leikur sér með hraun-
ið á ýmsan veg og gerir lykla-
kippur, hraunklukkur og mósaík-
myndir úr hrauni.„ Möguleikarnir
eru óþrjótandi og helst vildi ég
sjá fólk framleiða þetta eins og
lopapeysur.“ Snorri selur vörurn-
ar í gegnum heimasíðuna internet.
is/thelavafactory. „Ég hef komist
að því að það er mjög erfitt að selja
í gegnum minjagripaverslanir
og finnst það auk þess alger
lágkúra að þær skuli selja
innflutta íslenska minja-
gripi. Ég hef hins vegar
boðið fyrirtækjum og ráð-
stefnuhöldurum þjónustu
mína og býð meðal ann-
ars upp á sérmerking-
ar á öskjurnar ef
þess er óskað.“
vera@frettabladid.is
Hraunið vekur forvitni
Snorri Guðmundsson stofnaði Hraunverksmiðjuna eftir að Hekla gaus árið 1991og hefur hraunlist verið
hluti af tilveru hans síðan. Hann segir útlendinga fyllast forvitni þegar þeir fá hraunmola í hendur.
Hraunmolarnir
sem Snorri kallar
Nature‘s work of
art koma í hand-
máluðum öskjum
en í hverri öskju er
náttúruverndaráminn-
ing frá Snorra.
Snorri segir hægt
að vinna allt
mögulegt úr hrauni
og vildi helst sjá
fólk framleiða
hraunlistaverk eins
og lopapeysur.
Snorri hefur þegar nælt sér í nokkra hraunmola úr gosinu á Fimmvörðuhálsi og segir
það frábrugðið hrauninu úr Heklu.
Hótel Giorgio Armani er í
heimsins stærstu byggingu, Burj
Khalifa í Dúbaí.
Hótel virðast vinsæl meðal þekkt-
ustu hönnuða heims. Þannig á Mis-
soni hótel í Edinborg, Krizia á eitt
í Barbuda, Moschino Cheap & Chic
opnaði nýlega eitt í Mílanó og Ver-
sace á tvö, annað í Dúbaí og hitt í
Ástralíu.
Nú hefur Giorgio Armani bæst
í hóp hóteleigenda og hefur opnað
hótel í hæstu byggingu heims, Burj
Khalifa, í Dúbaí.
Glæsileikinn er þar í fyrirrúmi.
Armani Hotel Dubai hefur yfir að
ráða átta veitingastöðum sem allir
eru hannaðir af Armani. Hótelið
er á fjölmörgum hæðum í hinu 160
hæða húsi. Nánari upplýsingar má
nálgast á www.dubai.armanihotels.
com.
Armani opnar
glæsihótel í Dúbaí
Glæsihótel Armani er í hæstu byggingu
heims, Burj Khalifa. NORDICPHOTOS/AFP
Giorgio Armani hélt blaðamannafund ásamt Mohammed al-Abbar, formanni fast-
eignafélagsins Emaar.
VORIÐ ER KOMIÐ , trén farin að bruma og lóan
syngur dirrindí. Því er ekki úr vegi að gera vorhreingern-
ingu og skipta jafnvel dökkum gluggatjöldum fyrir ljós.
Ann Wood er listamaður í Brooklyn. Hún
vinnur með efni sem hún finnur hér
og þar, meðal annars gamlar flíkur.
Úr því býr hún til ýmislegt á
borð við þessa flottu könguló.
www.nextdoormagic.com
Yfi rhafnadagar
20% afsláttur
af yfi rhöfnum dagana
26. apríl – 7. maí
Sími 551 2070.
Opið mán.-fös. 10-18, laugard. 10-14.
Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf.
www.misty.is
Gerð: 55K
Stærðir: 36 - 41
Verð: 13.950.-
Gerð: 5022
Stærðir: 36 - 42
Verð: 13.950.-
Góð breidd
Mjúkir og þægilegir
götuskór fyrir dömur.
Borgartúni 25 | Reykjavík | Sími 570 4000 | raudakrosshusid@redcross.is
www.raudakrosshusid.is |
Opið virka daga kl. 12-17
Dagskrá vikunnar
Rauðakrosshúsið
Allir velkomnir
Mánudagur 3. maí
Vatnsræktun - Kynning á ræktun í vatni, gróðurlýsingu og næringu.
Umsjón: María Norðdahl, InnriGarðar ehf. kl.12:30 -13:30
EFT og djúpslökun - Umbreyttu heftandi viðhorfum með EFT tækninni.
Umsjón: Viðar Aðalsteinsson, EFT sérfræðingur. kl.14:30-16:30
Barnið komið heim - Þriðji hluti af sex. Lokað! kl.17-19
Þriðjudagur 4. maí
Qi–Gong kl. 12-13 Gönguhópur kl. 13-14 Íslenskuhópur kl. 13-14
Vinnum saman - Ný viðhorf (Býflugurnar) kl. 14-16
Skiptifatamarkaður / Barnaföt kl. 16-18
Miðvikudagur 5. maí
Tölvuaðstoð kl. 13.30-15.30 Áhugasviðsgreining kl.14-16
Lögfræðiráðgjöf fyrir innflytjendur kl. 14-16 Briddsklúbbur kl.14-16
Krydd- og matjurtir - Gróðursetning, ræktun og umhirða. Umsjón: Auður
Jónsdóttir, yfirverkstjóri Skólagarða Reykjavíkur. kl.12:30 -13:30
Fjáröflunarbingó Ferðafélagsins Víðsýnar - Spjaldið kostar 500.- kr. kl.17:30
Fimmtudagur 6. maí
Fluguhnýtingahópur kl. 12-13:30 Saumasmiðjan kl. 13-15
Jóga kl. 15-16
Gönguhópur kl. 12.30-13.30 Hláturjóga kl. 15:30 -16:30
Endurlífgun - Stutt verklegt námskeið. kl.12:15-13:15
Fulltrúar stéttarfélaga og ASÍ - Kynning fyrir atvinnuleitendur. Snorri
Már Sturluson frá ASÍ heldur tölu og fulltrúar stéttarfélaganna kynna þjónustu
sína. Fulltrúar frá VR, Eflingu, SSF, Hlíf, Stéttarfélagi Reykjavíkurborgar, SFR,
Stéttarfélagi verkfræðinga og Kjarafélagi tæknifræðinga auk annarra. kl.13:30-15:30
Föstudagur 7. maí
Prjónahópur kl. 13-15 Skákklúbbur kl. 15:30-17
Hvernig stöndumst við álag - Áhrif hugsana á líðan okkar og viðbrögð.
Umsjón: Valgerður Magnúsdóttir, sálfræðingur. kl.14:30 -16
Föndur, skrapp myndaalbúm og kort - Taktu skæri með þér! kl.12 -14