Fréttablaðið - 03.05.2010, Síða 18
3. MAÍ 2010 MÁNUDAGUR2 ● fréttablaðið ● híbýli og viðhald
Húsgögn gerð fyrir
íslenska framleiðslu
Nemendur úr vöruhönnun við Listaháskóla Íslands miðuðu lokaverkefni sitt við íslenskar fram-
leiðsluaðferðir í samvinnu við húsgagnafyrirtækin Beyki, Á. Guðmundsson, GÁ húsgögn og Stáliðj-
una. Nemendur fengu frjálsar hendur í hugmyndavinnu en urðu að aðlaga sig að því að hægt væri
að fjöldaframleiða gripina hjá einhverju af fyrirtækjunum.
MIKIÐ ÚRVAL
GOTT VERÐ
Gildir
til 31.
maí 2
010
Rauðhellu 11, Hfj.
( 568 2035
Hjallahrauni 4, Hfj.
( 565 2121
Dugguvogi 10
( 568 2020
GOTT VERÐ OG
FRÁBÆR
GREIÐSLUKJÖR
fyrir þá fjölmörgu sem þurfa
að kaupa ný dekk fyrir sumarið.
Dekk undir:
■ Fólksbíla
■ Jeppa
■ Mótorhjól
■ Sendibíla
■ Vörubíla
■ Rútur
■ Vinnuvélar
■ Traktora
■ Hjólhýsi
■ Kerrur
o.s.frv., o.s.frv.
www.pitstop.is
VAXT
ALAU
ST
VISA & MAS
TE
RC
A
R
DGildir til 3
1. m
aí 20
10
VA
X
TA
LA
US
T Í
AL
LT AÐ 6 MÁNUÐI
● STÓLLINN KUBBUR byggir
að sögn hönnuðarins, Hreins Bern-
harðssonar, á því sambandi sem
getur myndast milli dauðra hluta og
fólks. Stóllinn er festur saman með
kaðli sem tengist við strekkjara í bak-
inu og þegar bakstykkinu er snúið
strekkist stóllinn saman. Ef bakinu er
hins vegar snúið og kaðlinum slakað
finnur notandinn hvernig stóllinn
bregst við og faðmar hann þegar
sest er.
● LJÓSAKRÓNAN BLÁÞRÁÐUR er byggð upp af rauðum þræði sem
hefur fengið það hlutverk að stjórna samspili ljóss og skugga. Lögun miðju
ljósakrónunnar er stjórnað af sérstökum pendúl sem breytir bæði útliti krón-
unnar sem og þeim myndum ljóss og skugga sem frá henni stafa. Hönnuður
Bláþráðs er Ásdís Jörundsdóttir.
● FENGR er fatahvíla innblásin af bandrúnum. Þegar fötin eru lögð á hvíl-
una, draga þau í sig galdur úr Fengr og við það að klæðast þeim aftur færist
galdurinn yfir í notandann. Hönnuður er Fanney Long Einarsdóttir.
● ENDURREISN er verkefni þar
sem hlutir ganga í endurnýjun líf-
daga. Gifs, strappar, snæri og lit-
skrúðugir naglar eru meðal þess sem
notað er til þess að gera stólana að
persónulegum endurreistum hús-
gögnum en hönnuðurinn er Auður
Ösp Guðmundsdóttir.
TRILLA er stigi eftir Emblu Vigfús-
dóttur til að klifra upp á háaloft.
Þegar stýrinu er snúið lyftist
hlemmurinn upp og lokar fyrir gatið
í loftinu. Einnig er hægt að nota
hlemminn sem vörulyftu fyrir jóla-
skrautið og gamlar skólabækur
sem færa þarf upp eða niður af
háaloftinu.
MARGUR er húsgagn sem breytist við leik. Bylgja Rún Svansdóttir segir
Margan innblásinn af dúkkulísum, sprellikörlum og pappírsbrotum.
Margur getur breyst úr kolli yfir í mottu og borði yfir í leikteppi og allt
það sem hugurinn vill að Margur sé.
RÓRILL er unninn út frá kistli sem hér áður fyrr var eina hús-
gagnið sem fólk átti og geymdi þar allar sínar eigur. Í þróunar-
ferlinu var honum snúið á hvolf sem breytti honum í ruggu-kistil.
Hægt og rólega fór að týnast af kistlinum, hann tapaði hliðunum
og eftir stóð vaggandi „lár“, sem er kistill þar sem burðurinn er í
hornstoðunum. Róril má nota sem ruggustól, geymslu og stofu-
borð. Steinþór Hannes Gissurarson er hönnuðurinn.
AÐ SAFNA SJÁLF-
UM SÉR er yfirheiti á
skemmtilegu húsgagni
eftir Höllu Hannesdótt-
ur. Húsgagnið er hugs-
að fyrir safnara sem
geta verið nálægt hlut-
unum sínum og í ná-
inni tengingu við þá
og sameinast þannig
safninu.