Fréttablaðið - 03.05.2010, Page 19
FASTEIGNIR.IS
3. MAÍ 201018. TBL.
Fasteignamarkaðurinn er með
á skrá íbúð við Hávallagötu 7.
Í búðin er á annarri hæð í þríbýl-ishúsi, skráð 106,5 fermetrar samkvæmt Fasteignamati rík-
isins, en er í raun um það bil 120
fermetrar samkvæmt seljanda.
Íbúðin samanstendur af tveim-
ur stofum, fjórum herbergjum
og tveimur svefnherbergjum, og
er skipulagið eins og hér segir:
Komið er inn um sérinngang í
flísalagða stofu. Farið er upp
kókos teppalagðan stiga á efri
hæð. Stigapallur/hol er parket-
lagt og er útgengt á svalir í norð-
vestur. Stofur eru samliggjandi
en með rennihurð á milli. Barna-
herbergi er parketlagt, sömu-
leiðis hjónaherbergi. Eldhús
er flísalagt og með harðviðar-
innréttingu úr mahóní og góðri
borðaðstöðu. Baðherbergi er með
baðkari, glugga og sturtuaðstöðu
og marmara á veggjum og gólfi.
Tvær sérgeymslur og sam-
eiginlegt þvottaherbergi eru í
kjallara.
Húsið er í góðu ásigkomu-
lagi að utan sem innan að sögn
seljanda.
Sérhæð við Hávallagötu
Íbúðin er á annarri hæð í þríbýlishúsi við Hávallagötu 7. MYND/ÚR EINKASAFNI
Blaðberinn bíður þín
Þú færð Blaðberann þinn í Skaftahlíð 24
alla virka daga frá kl. 9-17.
...góðar fréttir fyrir umhverfiðBlaðberinn...
Útboð skila árangri!
14867 – Hraunbær
102 D og E
í Reykjavík.
Um er að ræða 1.
hæð og kjallararými
í báðum hlutum
samtals 563,7 m²
samkvæmt upplýsing-
um frá Fasteignaskrá
ríkisins.
Húsnæðið var nýtt sem heilsugæslustöð en stendur autt
í dag. Brunabótamat er kr. 98.100.000,- og fasteignamat er
kr. 86.200.000,-.
Húseignin verður til sýnis í samráði við Ríkiskaup, Borgartúni
7C, 105 Reykjavík í síma 530 1400.
Tilboðseyðublöð liggja frammi hjá Ríkiskaupum ásamt regl-
um um frágang og útfyllingu á tilboðseyðublaði.
Gögnin eru einnig aðgengileg á heimasíðu Ríkiskaupa
www.rikiskaup.is
Tilboð skulu berast til Ríkiskaupa, Borgartúni 7C, 105
Reykjavík fyrir kl. 10:00 þann 18. maí 2010 þar sem þau
verða opnuð í viðurvist bjóðenda er þess óska.
Tilboð óskast í hluta fasteignarinnar
Hraunbæ 102 D og E í Reykjavík.