Fréttablaðið - 03.05.2010, Blaðsíða 36
16 3. maí 2010 MÁNUDAGUR
BAKÞANKAR
Júlíu
Margrétar
Alexanders-
dóttur
■ Pondus Eftir Frode Øverli
■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes
■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman
Afsakið, hinn
almáttugi vill
fá að ræða við
yður.
Jæja, svo
þú ætlar að
afþakka þetta
allt saman?
Án frekari
umhugs-
unar!
Ég á konu,
barn, hund og
brauðgerðarvél!
Þú veist ekki
af hverju
þú ert að
missa!
Ég verð
bara að lifa
með því.
Hmm.
Ég á
myndir!
NEI
TAKK!
Já takk!
Komdu
með
þær!
Er mikið
heimanám?
Ertu með
mikið hár?
Þegar ég fæ
svona
spurningar er
reglan „auga
fyrir auga“.
Þú verður
svona á
endanum
vinur minn!
Afsakið, og...,
ég gerði þetta
ekki!
Nei!
Nei!
Nei!
Hversu oft þarf
ég að segja
þér þetta? Fyrst
neitun og svo
afsökunarbeiðni!
Sorrí,
ég
ruglað-
ist.
Ég skal taka við
núna „þjálfari“.
Prófaðu
aftur,
kannski
var hann
ekki að
hlusta.
Dagskráratriði óskast
Hitt Húsið Sími: 411 5500 17juni@hitthusid.is www.17juni.is
Auglýst er e ir skemm - og sýningaratriðum fyrir þjóðhá ðarskemmtun
í Reykjavík. Dagskráin fer fram í miðborg Reykjavíkur og stendur hún frá
morgni l kvölds. Gert er ráð fyrir barna og ölskylduskemmtunum á
sviðum, tónleikum, leiktækjum og ýmsum sýningum og götuuppákomum.
Hægt er að sækja um fl utning atriða, uppákomur og viðburði á vef
þjóðhá ðarnefndar www.17juni.is. Umsóknum er einnig hægt að skila í
Hi Húsið, Pósthússtræ 3-5, 101 Reykjavík á eyðublöðum sem þar fást.
Umsóknarfrestur rennur út þann 12. maí n.k.
17. júní í Reykjavík
Fagor hitakútar
TB
W
A
\P
IP
A
R
•
S
ÍA
•
1
00
81
4
45.900
49.900
56.900
65.900
73.900
82.900
97.900
Hringdu í síma
ef blaðið berst ekki
Hugsanlegt hjálpræði
Ég hef alltaf átt erfitt með að velja mér stjórnmálaflokk til að kjósa. Ég hef
stundum íhugað að skila auðu en hryllt
við að atkvæði mitt yrði þá gjaldfellt með
ógildum seðlum. Ég er þetta „óákveðna“
atkvæði, allt fram á síðustu stundu. Það er
nóg fyrir mig að hitta stjórnmálamann með
ljóta nælu á kjörstað til að snúast hugur.
SJÁLFSTÆÐISFLOKKURINN hefur stund-
um heillað. Jafnfljótt og ég hef verið komin
á þá skoðun að kjósa flokkinn hefur ein-
hver, yfirleitt kona, úr þeirra röðum, fælt
mig aftur í burtu. Ung kona í óþægileg-
um skyrtum og jökkum svo hún líkist sem
mest karlmanni í Kastljósinu er jafn sorg-
leg sjón og Siggi Sigurjóns með hárkollu og
handtösku í Spaugstofunni. Og auðvitað
enn sorglegra þegar hún hefur upp raust
sína og ver launamun kynjanna.
ÉG hef ekki náð að bindast Samfylking-
unni. Einfaldlega vegna þess að ég skil
stundum ekki það sem framboðsefnin
segja. Á vondum dögum hljómar orðræða
þeirra eins og ársskýrsla félagsmið-
stöðvar í úthverfi og tungumál sem er
flokksfélögum tamt; „stefnumótun“
og „stoðir í velferðarbrúna“, hljómar
engu betur í mínum eyrum en „nei-
kvætt eigið fé“ og „skuldsett yfir-
taka“ útrásaráranna. Þannig næ ég
ekki að tengja, þrátt fyrir einlægan
ásetning flokksins um að tala til almenn-
ings. Þeir ná allavega fyrri hluta mark-
miðsins: Að tala.
FRAMSÓKNARFLOKKINN hefur mér
eiginlega aldrei dottið í hug að kjósa, það
hefur svolítið verið eins og að byrja með
pabba bestu vinkonu sinnar eða fara á fyll-
erí með rótarýklúbbnum í hverfinu. Ég
varð þó pínu hugsi með atkvæðaseðilinn í
höndunum síðast þar sem Sigmundur Davíð
hafði stuttu áður hrifið mig með borgar-
skipulagshugmyndum. Einn álitlegur haus
á móti hjörðinni dugði þó ekki.
VINSTRI GRÆN hafa átt auðvelt með að ná
mér. Því þakka ég mikið til Katrínu Jak-
obsdóttur sem mér finnst blátt áfram, dug-
leg og óspillt. Ég hef stundum hugsað mér
hvernig hinn fullkomni stjórnmálamaður
væri og séð hana fyrir mér. Ef ég væri jafn
hrifin af stefnumálum flokksins og Katrínu
væri valið auðvelt.
BESTI FLOKKURINN hljómaði í fyrstu
sem Ástþór Magnús eða Snorri Ásmunds
borgarstjórnarkosninganna í vor. Mér og
þeim, sem hingað til hafa verið óáreiðan-
legir kjósendur og oft hrifist af hugmynd-
inni að skila auðu þegar allt annað virðist
bregðast, líður eins og flokkur Jóns Gnarr
sé upplagt tækifæri til að lýsa yfir frati á
úrsérgengnu flokkakerfi.