Fréttablaðið - 03.05.2010, Síða 37
MÁNUDAGUR 3. maí 2010 17
Bandaríski trommarinn Scott
McLemore hefur sett saman
íslenskt band til að spila hans
eigin tónlist í fyrsta skipti síðan
hann flutti til Íslands fyrir fimm
árum frá New York.
Hljómsveitin mun spila nýtt
efni í bland við lög af disknum
Found Music, fyrstu plötu Scotts
sem var gefin út af spænska
útgáfufyrirtækinu Fresh Sound
New Talent.
Með Scott verða Óskar Guð-
jónsson á saxófón, Andrés Þór
Gunnlaugsson á gítar, Sunna
Gunnlaugs á píanó og Wurlitzer
og Róbert Þórhallsson á bassa.
Tónlist Scotts er grípandi á bæði
lýrískan og riþmískan máta
og sækir efnivið jafnt í bebop,
frjálsan djass og dægurtónlist.
Hljómsveitin mun leika fjög-
ur kvöld í röð á Café Kultura og
byrjar í kvöld en þá verður glímt
við bebop-tónlist og svo opnað
fyrir djammsession.
Næstu þrjú kvöld taka tónsmíð-
ar Scotts völdin og er þetta ein-
stakt tækifæri til að heyra hljóm-
sveit móta og þroska efnisskrá
frá kvöldi til kvölds. Tónleikar
hefjast kl 21 öll kvöldin. - pbb
Fjögurra kvölda tónleikaröð
Justin Timberlake og kærasta
hans, Jessica Biel, sáust skemmta
sér saman á bar í Hollywood í vik-
unni þar sem þau sátu við borð og
drukku hanastél, pískruðu og létu
vel að hvort öðru. Eftir nokkra
drykki fór parið á tónleika með
tónlistarmanninum Timbaland og
sást Timberlake dansa uppi á stól
og syngja með. Parið yfirgaf svo
tónleikastaðinn hönd í hönd stuttu
áður en tónleikunum lauk. Undan-
farið hafa fjölmiðlar hið vestra
verið duglegir við að flytja frétt-
ir af mögulegum sambandsslitum
parsins, en svo virðist sem ekkert
sé hæft í þeim sögusögnum.
Ástfangin á
tónleikum
HAMINGJUSÖM Justin Timberlake og
Jessica Biel virtust ástfangin á Timba-
land tónleikum.
Á baráttudag verkalýðsins voru
veitt verðlaun í hönnunarsam-
keppni í anda myndhöggvarans
Ásmundar Sveinssonar, sem
verslunin Kraum, Listasafn
Reykjavíkur og Hönnunarmið-
stöð Íslands standa að. Verðlaun-
uð var tillaga hönnunarstofunnar
Björg í Bú sem er þrívíddar-
púsluspil sem raða má saman á
ótal vegu án þess að vera bund-
inn af fyrirfram gefinni lausn.
Tvívíðir hlutar spilsins eru unnir
út frá kunnuglegum formum í
myndheimi Ásmundar, sem þátt-
takandinn getur raðað saman í
þrívídd og með því skapað sinn
eigin skúlptúr. Hluturinn hvetur
til leiks og sköpunar þar sem við-
fangsefnið er myndbygging og
jafnvægissamspil forma í þrívídd
eða þau listrænu grunnatriði sem
Ásmundur glímdi alla tíð við í
verkum sínum.
Björg í bú eru hönnuðirnir
Edda Gylfadóttir, Guðrún Hjör-
leifsdóttir og Helga Björg Jónas-
ardóttir. Hljóta þær verðlauna-
fé að upphæð 500.000 krónur
auk þess sem varan verður
þróuð áfram til framleiðslu og
seld í verslunum Kraums í Aðal-
stræti og á Kjarvalsstöðum
og í safnverslunum Listasafns
Reykjavíkur í Hafnarhúsi og
Ásmundarsafni. Verðlaunaféð
er sameiginlegt framlag frá
Kraumi, Listasafni Reykjavíkur,
Samtökum atvinnulífsins og
Samtökum iðnaðarins.
Vinningstillögurnar ásamt
þrettán öðrum sem þóttu skara
fram úr verða til sýnis í Ásmund-
arsafni fram til 16. maí. Þetta
er í annað sinn sem þessir sömu
aðilar standa fyrir hönnunarsam-
keppni þar sem skírskotað er til
einstaks listamanns. Í fyrra var
það Erró, og væntingar standa til
að framhald verði á samstarfinu í
framtíðinni.
Samkeppnin, hönnun í anda
Ásmundar, var opin öllum. Í sam-
keppnislýsingu var óskað eftir
tillögum að nytjahlut sem endur-
spegla skyldi hugarheim og verk
myndhöggvarans Ásmundar
Sveinssonar. Innsendar tillögur
í keppnina voru 68 og voru þær
allar teknar til dóms. Af þeim
voru 15 tillögur valdar til að
keppa um verðlaunasæti og til
sýningar í Ásmundarsafni næstu
tvær vikurnar. - pbb
Verðlaun
veitt 1. maí
Robert Downey Jr. langar að
eignast barn með eiginkonu sinni,
Susan, innan skamms. Leik-
arinn á fyrir sextán ára gaml-
an son, Idio, sem hann átti með
fyrstu eiginkonu sinni. Downey
og Susan hafa verið gift í fimm
ár og hefur hann margoft þakkað
henni opinberlega fyrir að halda
honum á beinu brautinni.
„Robert hefur verið edrú í níu
ár og gengur að auki vel í leik-
listinni. Susan hefur aldrei þrýst
á hann með barneignir heldur
stakk hann upp á því fyrst. Hún
varð himinlifandi,“ var haft eftir
vini hjónanna.
Tilbúinn í
barneignir
VERÐANDI
FAÐIR
Robert
Downey Jr.
vill verða
faðir á ný.