Fréttablaðið - 03.05.2010, Page 40
20 3. maí 2010 MÁNUDAGUR
sport@frettabladid.is
N1 Deildin
KARLAR
Mánudagur
Varmá Afturelding - Grótta 19:30
2009 - 2010
UMSPIL - LEIKUR 2
FÓTBOLTI Valskonur tryggðu sér sigur í Lengjubikar
kvenna í gær með því að leggja Fylki 2-0 í úrslita-
leik í Kórnum. Á sama stað sólarhring áður vann KR
mótið í karlaflokki með því að leggja Breiðablik 2-1
í úrslitaleik.
Kristín Ýr Bjarnadóttir og Dagný Brynjarsdóttir
skoruðu mörk Valsliðsins en það síðara kom í viðbót-
artíma. Kristín misnotaði einnig vítaspyrnu í leiknum
en það kom ekki að sök. Hlíðarenda konur halda því
áfram að safna bikurum.
Björgólfur Takefusa og Mark Rutgers komu KR í
lykilstöðu gegn Blikum með mörkum undir lok fyrri
hálfleiksins. Kári Ársælsson, fyrirliði Blika, náði að
minnka muninn en lengra komust þeir grænu ekki.
Þeir luku leiknum tíu eftir að Elfar Freyr Helgason
fékk að líta rauða spjaldið.
„Við sofnuðum í fimm mínútur í fyrri hálfleik og
það reyndist okkur dýrkeypt. Við fengum fín færi til
að klára þetta en þetta gekk ekki upp í dag,“ sagði
Kári.
„Það er gott að vinna mót og það er kannski það
eina sem var jákvætt við þennan leik hjá okkur,“ sagði
Logi Ólafsson, þjálfari KR, við blaðamann eftir leik.
„Ég held að við höfum ekki sýnt góðan fótbolta í
dag, Breiðablik var betri aðilinn allan leikinn og
meira að segja þegar liðið missti mann af velli.“
- egm
Úrslitaleikir Lengjubikarsins í kvenna- og karlaflokki fóru fram um helgina:
Bikarar á loft hjá Val og KR
GLEÐI Í KÓRNUM Valskonur eru vanari því að lyfta bikurum.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Enska úrvalsdeildin
Birmingham-Burnley 2-1
1-0 Sjálfsmark (29.), 2-0 Cristian Benítez (41.),
2-1 Steven Thompson (87.)
Manchester City-Aston Villa 3-1
0-1 John Carew (16.), 1-1 Carlos Tévez, víti (41.),
2-1 Emmanuel Adebayor (43.), 3-1 Craig Bellamy
(89.)
Portsmouth-Wolverhampton 3-1
1-0 Aruna Dindane (20.), 1-1 Kevin Doyle (34.),
2-1 John Utaka (40.), 3-1 Michael Brown (66.)
Stoke-Everton 0-0
Tottenham-Bolton 1-0
1-0 Tom Huddlestone (38.)
Liverpool-Chelsea 0-2
0-1 Didier Drogba (33.), 0-2 Frank Lampard (54.)
Fulham-West Ham 3-2
1-0 Clint Dempsey (45.), 2-0 Sjálfsmark (58.),
2-1 Carlton Cole (61.), 3-1 Stefano Okaka Chuka
(79.), 3-2 Guillermo Franco (90.+1).
Sunderland-Manchester United 0-1
0-1 Nani (28.).
STAÐAN Í DEILDINNI
Chelsea 37 26 5 6 95-32 83
Man. United 37 26 4 7 82-28 82
Arsenal 36 22 6 8 78-39 72
Tottenham 36 20 7 9 64-37 67
Man. City 36 18 12 6 72-43 66
Aston Villa 37 17 13 7 52-38 64
Liverpool 37 18 8 11 61-35 62
Everton 37 15 13 9 59-49 58
Birmingham 37 13 11 13 37-45 50
Fulham 36 12 10 14 39-41 46
Sunderland 37 11 11 15 47-54 44
Stoke City 36 10 14 12 33-44 44
Blackburn 36 11 11 14 38-54 44
Bolton 37 9 9 19 40-66 36
MARKAHÆSTIR
Wayne Rooney, Manchester United 26
Didier Drogba, Chelsea 26
Darren Bent, Sunderland 24
Carlos Tévez, Manchester City 22
Frank Lampard, Chelsea 21
Jermain Defoe, Tottenham 18
Fernando Torres, Liverpool 18
Enska b-deildin
Coventry-Watford 0-4
Aron Einar Gunnarsson lék allan leikinn með
Coventry en Heiðar Helguson var ekki með
Watford.
Plymouth Argyle-Peterborough 1-2
Kári Árnason lék allan leikinn með Plymouth
Reading-Preston 4-1
Gylfi Þór Sigurðsson skoraði og lék allan leikinn
en Brynjar Björn Gunnarsson kom inn á sem
varamaður á 68. mínútu.
ENSKI BOLTINN
HANDBOLTI Fjögur Íslendingalið
komust áfram í Evrópukeppnun-
um um handbolta um helgina, þar
af fóru lið Róberts Gunnarsson-
ar (Gummersbach), lið Björgvins
Páls Gústavssonar (Kadetten) og
lið Vignis Svavarssonar (Lemgo)
í úrslitaleikina í sínum keppnum.
Björgvin Páll Gústavsson og
félagar í Kadetten mæta öðru
Íslendingaliði í úrslitaleik EHF-
bikarsins því Vignir Svavarsson
og félagar í Lemgo unnu glæsi-
legan sigur í gær. Lemgo tapaði
fyrri leiknum á móti Naturhouse
La Rioja með fimm marka mun á
Spáni en vann seinni leikinn með
átta mörkum í gær, 34-26.
Sigurgöngu Ólafs Stefánsson-
ar í Meistaradeildinni er lokið
en hann og félagar hans í liði
Rhein-Neckar Löwen töpuðu 30-
31 í seinni leiknum á móti Kiel og
þar með 58-60 samanlagt. Alfreð
Gíslason þjálfar eins og kunnugt
er lið Kiel og Aron Pálmarsson
leikur með því. Ólafur var búinn
að vinna Meistaradeildina tvö ár
í röð með spænska liðinu Ciudad
Real.
Róbert Gunnarsson og félagar
í VfL Gummersbach tryggðu
sæti í úrslitaleiknum í Evrópu-
keppni bikarhafa með 31-28 sigri
á Portland San Antonio á Spáni.
Þetta er annað árið í röð sem
Gummersbach kemst í úrslita-
leik í Evrópukeppni en liðið er
núverandi EHF-meistari. - óój
Evrópukeppnir í handbolta:
Fjögur Íslend-
ingalið áfram
ÓLAFUR STEFÁNSSON Var búinn að
vinna Meistaradeildina tvö ár í röð.
MYND/GETTY IMAGES
> Gylfi sá þriðji sem nær 20 mörkum
Gylfi Þór Sigurðsson varð í gær fjórði íslenski leikmaður-
inn sem nær því að skora tuttugu mörk á einu tímabili
í enska boltanum. Gylfi skoraði eitt marka
Reading í4-1 sigri á Preston og er því
kominn með 20 mörk í 44 leikjum í öllum
keppnum á þessu tímabili. Eiður Smári
Guðjohnsen (21 mörk fyrir Bolton
1999-200 og 20 mörk fyrir Chelsea
2001-02) og Heiðar Helguson (20
fyrir Watford 2004-05) voru einu
íslensku leikmennirnir sem höfðu
náð að brjóta tuttugu marka
múrinn.
Björgvin Páll Gústavsson og félagar í svissneska liðinu
Kadetten eru komnir í úrslitaleik EHF-bikarsins eftir sigur á
Flensburg. Björgvin Páll lokaði markinu á hárréttum tíma
en Kadetten breytti stöðunni úr 13-18 í 24-21 á síðustu 20
mínútum leiksins.
„Þegar við vorum komnir fimm mörkum undir þá leit
þetta ekki vel út. Það að vera fimm mörkum undir, koma til
baka og vinna með þremur á móti heimsklassa liði eins og
Flensbourg, það er bara fáránlegt í rauninni. Það var rosaleg
stemmning í höllinni og þetta var einn skemmtilegasti leik-
ur sem ég hef spilað á ævinni,” sagði Björgvin Páll. „Ég var
alltaf í smá vandræðum með að koma mér inn í leikinn
en það má samt segja að það hafi gerst á hárréttum tíma.
Þegar það byrjaði að ganga svona vel eins og gerði í lokin
þá kemur höllin með manni og tilfinningarnar fara að
bera mann ofurliði,“ sagði Björgvin sem fékk aðeins
þrjú mörk á sig síðustu 20 mínúturnar. „Við slógum út
Göppingen í síðustu umferð sem var talinn
vera stærsti sigurinn í handboltasögunni í
Sviss þannig að menn geta rétt ímyndað sér
hvað þetta er þá stórt skref að slá út eins
gott og fornfrægt félag eins og Flensburg og
komast í úrslitaleikinn. Sigurinn á móti Göppingen
var sætur en það sprengir allar væntingar að hafa unnið
Flensburg,” segir Björgvin.
„Við erum búnir að sýna það í Evrópukeppninni að það
skiptir ekki máli hversu mikið þú ert með í laun, hversu flott
rútan er hjá liðinu eða hversu flottan heimavöll liðin eru
með því það skiptir máli hvernig úrslitin eru í leikjunum. Við
sýndum það á móti Göppingen og Flensburg að við erum
með frábært handboltalið. Það eru kannski ekki margir
heimsklassa leikmenn í þessu liði en við erum með frábært
lið og það gerir enginn grín að svona liði sem er að berjast
mann fyrir mann allan leikinn.“
FÓTBOLTI Lokaumferð ensku úrvals-
deildarinnar fer fram næsta sunnu-
dag og þá ræðst hvort Chelsea eða
Manchester United hampar meist-
aratitlinum. Chelsea er með málin
í sínum höndum en liðið hefur eins
stigs forystu fyrir lokaumferð-
ina. Chelsea á eftir heimaleik gegn
Wigan á meðan United tekur á móti
Stoke.
Liverpool gerði United engan
greiða í gær en liðið tapaði fyrir
Chelsea 2-0. Vendipunktur leiks-
ins var hjá Steven Gerrard, fyrir-
liða Liverpool, sem lagði upp fyrra
mark leiksins fyrir Didier Drog-
ba með misheppnaðri sendingu til
baka. „Þetta var mikilvægt mark
því það breytti leiknum,“ sagði
Carlo Ancelotti, þjálfari Chelsea.
„Ég er ánægður með sigurinn því
þetta var lykilleikur fyrir okkur í
þessari titilbaráttu. Þetta var erfitt
í fyrri hálfleik en síðan náðum við
undirtökunum og unnum verðskuld-
aðan sigur. Við vorum með meira
sjálfstraust eftir að hafa komist yfir
og Liverpool missti kraftinn sem
það hafði fyrsta hálftímann.“
Drogba var ánægður með gjöf-
ina frá Gerrard. „Þetta voru stór
mistök hjá honum. Ég var hepp-
inn að vera svona staðsettur og ná
að skora. Markið hjálpaði okkur
að finna taktinn,“ sagði Fílabeins-
strendingurinn.
Framtíð Rafaels Benítez, knatt-
spyrnustjóra Liverpool, er í mik-
illi óvissu og vildi hann ekki tjá sig
um hana eftir leikinn. „Ég á fjögur
ár eftir af samningi mínum svo við
skulum bíða og sjá. Stuðningsmenn
vilja vita hvort ég verði áfram á
næsta tímabili en ég vil bara hugsa
um næsta leik sem er gegn Hull,“
sagði Benítez sem orðaður er við
ítalska liðið Juventus.
Nani hélt titilvonum United á
lífi með því að skora eina markið í
leiknum gegn Sunderland.
„Það eina sem við getum gert
er bara að einbeita okkur að því að
vinna næsta leik og sjá hverju það
skilar okkur,“ sagði Sir Alex Fergu-
son, stjóri United, en liðið þarf að
treysta á að Wigan taki stig af
Chelsea.
„Mér finnst Wigan hafa sterkt lið
og allt getur gerst í fótboltanum,“
sagði Ferguson.
Það er einnig mikil spenna í bar-
áttunni um fjórða sæti deildarinn-
ar sem gefur Meistaradeildarsæti.
Tottenham og Manchester City
unnu bæði leiki sína um helgina.
Tottenham hefur eins stigs for-
skot á City fyrir innbyrðisleik lið-
anna á miðvikudaginn. „Þetta verð-
ur rosalegur leikur og þeir eru með
frábært lið sem spilar vel,“ sagði
Harry Redknapp, stjóri Tottenham.
elvargeir@frettabladid.is
Gerrard gaf Chelsea gjöf
Chelsea og Manchester United unnu bæði leiki sína í enska boltanum í gær og
því ljóst að baráttan um meistaratitillinn mun ráðast í síðustu umferðinni.
STÓR MISTÖK Steven Gerrard, fyrirliði Liverpool, getur ekki leynt vonbrigðum sínum eftir að hafa hreinlega lagt upp fyrsta mark
Chelsea fyrir Didier Drogba. Leikmenn Chelsea fagna í bakgrunninum. MYND/AP
BJÖRGVIN PÁLL GÚSTAVSSON: MAÐUR LEIKSINS ÞEGAR KADETTEN FÓR Í ÚRSLITALEIKINN Í EHF-BIKARNUM
Einn skemmtilegasti leikur sem ég hef spilað á ævinni