Fréttablaðið - 03.05.2010, Síða 42
22 3. maí 2010 MÁNUDAGUR
HANDBOLTI Valsmönnum tókst að
halda út á móti Haukum og tryggja
sér 22-20 sigur í öðrum úrslitaleik
liðanna um Íslandsmeistaratitilinn
í N1 deild karla í handbolta í Vod-
afone-höllinni í gær. Haukarnir,
sem stálu sigrinum í fyrsta leikn-
um, skoruðu fimm mörk í röð á
lokasprettinum í gær en Vals-
menn tókst að tryggja sér sigur-
inn þrátt fyrir að hafa aðeins náð
að skora tvö mörk á síðustu fimmt-
án mínútum leiksins. Staðan er því
1-1 í einvíginu og næsti leikur er á
Ásvöllum á morgun.
„Við hleyptum þessu upp í alltof
mikla spennu í lokin en við erum
búnir að vera betra liðið nán-
ast alla leikina og það var algjör
óþarfi hjá okkur að hleypa þessu
upp í spennu. Ég var næstum því
búinn að klúðra þessu fyrir okkur
þegar ég fékk á mig heimskulegar
tvær mínútur en strákarnir stóð-
ust pressuna og kláruðu þetta,“
sagði Fannar Þór Friðgeirsson
sem var markahæstur í Valsliðinu
ásamt Arnóri Þór Gunnarssyni
sem innsiglaði sigurinn í lokin.
Arnór skoraði mikilvæg mörk í
blálok beggja hálfleikja í gær.
Fannar er bjartsýnn á fram-
haldið. „Ég held að pústið hafi
verið búið hjá flestum í fyrri leikn-
um en við náðum að rúlla betur á
hópnum í dag. Þetta lítur mjög vel
út. Mér finnst við vera betra liðið
og við ætlum bara að klára þetta.
Í fyrra vantaði fullt af mönnum í
liðið sem voru þá meiddir. Núna
eru allir heilir og ég sé ekkert því
til fyrirstöðu að við klárum þetta,“
sagði Fannar.
Sigurbergur Sveinsson var
yfirburðamaður í sóknarleik
Haukanna í gær en það dugði ekki
að hann skoraði 10 mörk því allir
aðrir leikmenn liðsins skoruðu
jafnmikið.
„Við höfum þurft að lenda fimm
mörkum undir í þessum tveimur
fyrstu leikjum til þess að fara að
gera það sem við ætluðum að gera.
Ég veit ekki hvað veldur en við
vorum bara ekki nógu hungraðir
í dag. Þetta kom allt of seint og
var bara frekar lélegt hjá okkur,“
sagði Sigurbergur. „Það er alveg á
kristaltæru að við þurfum að spila
í allar 60 mínúturnar en ekki bara
í tíu mínútur eins og við höfum
verið að gera. Það reddaðist í síð-
asta leik en ekki núna. Við þurf-
um aðeins að taka til í hausnum á
okkur fyrir næsta leik. Við höfum
ekki verið að spila þessa tvo fyrstu
leiki að eðlilegri getu og við eigum
mikið inni,“ sagði Sigurbergur.
Valsmenn byrjuðu leikinn frá-
bærlega með þá Hlyn Morthens
og Fannar Þór Friðgeirsson í
fararbroddi.
Hlynur varði fimm fyrstu skot
Haukanna og Fannar skoraði 4 af 5
fyrstu mörkum Valsliðins. Staðan
var í framhaldinu orðin 5-0 fyrir
Val eftir átta og hálfa mínútu.
Haukarnir tóku aðeins við sér og
skoruðu 5 af næstu 6 mörkum en
misstu Valsmenn síðan aftur frá
sér sem voru 14-11 yfir í hálfleik.
Haukamaðurinn Elías Már Hall-
dórsson gerði stór mistök þegar
hann fékk tvisvar sinnum tveggja
mínútna brottrekstur fyrir mót-
mæli í stöðunni 17-13 fyrir Val.
Haukarnir voru því manni færri
næstu fjórar mínútur og Valsmenn
nýttu sér þetta vel og komust sex
mörkum yfir.
Valsmenn gátu þó ekki verið
öryggir með neitt eftir þróun mála
í fyrsta leiknum. Haukarnir nýttu
sér fátið vel og skoruðu fimm
mörk í röð og minnkuðu muninn
í 21-20. Valsmenn höfðu þó lært af
fyrsta leiknum og hleyptu Hauk-
unum ekki nær. Arnór Þór Gunn-
arsson tryggði Valsmönnum sigur-
inn með því að koma liðinu í 22-20
tólf sekúndum fyrir leikslok.
Hlynur varði of mikið frá okkur
„Mér fannst við vera sjálfum okkur
verstir í þessum leik og því miður
fór þetta svona. Valsararnir voru
með frumkvæðið allan leikinn og
lönduðu verðskulduðum sigri. Mér
fannst við finna ýmsar lausnir á
þeirra varnarleik sem var að virka
hjá okkur en við vorum að skjóta
mjög illa á markið. Við þurfum að
skjóta miklu betur á Hlyn í mark-
inu. Hann er að verja alltof mikið
frá okkur,“sagði Aron Kristjáns-
son, þjálfari Hauka, en Hlynur
Morthens varði 23 skot í gær eða
58 prósent skota sem á hann komu.
ooj@frettabladid.is
Sumartilboð
Tilboðið gildir frá 1.6.10 til 15.8.10 Verð 12.500 kr
FÓTBOLTI Björn Bergmann Sigurð-
arson og Birkir Bjarnason skor-
uðu báðir í norska boltanum í
gær.
Björn var í byrjunarliði Lille-
ström og skoraði annað mark
leiksins þegar liðið sigraði Sande-
fjord 4-0. Liðið er í sjöunda sæti
deildarinnar.
Birkir hefur jafnað sig af
meiðslum og kom inn á sem vara-
maður hjá Viking. Hann skoraði
jöfnunarmark liðsins í 1-1 jafn-
tefli gegn Kongsvinger á úti-
velli. Stefán Gíslason og Indriði
Sigurðsson léku allan leikinn
fyrir Viking sem er í níunda sæti.
- egm
Norski boltinn í gær:
Björn og Birkir
á skotskónum
Létu Haukana ekki stela öðrum sigri
Valsmenn jöfnuðu úrslitaeinvígið á móti Haukum með 22-20 sigri á heimavelli í gær en lengi leit út fyrir að
Haukum tækist að stela sigrinum annan leikinn í röð. Hlynur Morthens varði 58 prósent skota Hauka.
KLÁRAÐI LEIKINN OG FAGNAÐI MEÐ „DÓLGUNUM“ Arnór Þór Gunnarsson innsiglaði
sigur Valsmanna í gær og hér fagnar hann með stuðningsmannasveitinni hjá Val sem
hefur tekið sér nafnið Dólgarnir. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Valur-Haukar 22-10 (14-11)
Mörk Vals (Skot): Fannar Þór Friðgeirsson 6/1
(13/2), Arnór Þór Gunnarsson 6/3 (7/3), Sigurð-
ur Eggertsson 3 (8), Orri Freyr Gíslason 2 (2),
Elvar Friðriksson 2 (3), Sigfús Páll Sigfússon 1 (3)
Gunnar Ingi Jóhannsson 1 (1), Ingvar Árnason
1(1), Jón Björgvin Pétursson (2), Baldvin Þor-
steinsson (4).
Varin skot: Hlynur Morthens 23 (40/3, 58%),
Ingvar Guðmundsson 1/1 (4/4, 25%)
Hraðaupphlaup: 4 (Fannar 2, Sigfús, Gunnar)
Fiskuð víti: 5 (Sigfús 2, Ingvar, Arnór, Baldvin)
Brottvísanir: 10 mínútur
Mörk Hauka (Skot): Sigurbergur Sveinsson 10/4
(16/5), Pétur Pálsson 2 (3), Einar Örn Jónsson 2
(3), Guðmundur Árni Ólafsson 2/2 (5/3), Freyr
Brynjarsson 1 (2), Elías Már Halldórsson
1 (4), Heimir Óli Heimisson 1 (1), Björgvin Þór
Hólmgeirsson 1 (5), Gísli Jón Þórisson (3),
Stefán Rafn Sigurmannsson (1).
Varin skot: Birkir Ívar Guðmundsson 6/1 (20/4,
30%), Aron Rafn Eðvarðsson 8 (16/1, 50%)
Hraðaupphlaup: 2 (Einar Örn 2)
Fiskuð víti: 8 (Sigurbergur 3, Pétur 2, Freyr,
Stefán, Tjörvi Þorgeirsson)
Brottvísanir: 10 mínútur
Tölfræðin úr leiknum
KÖRFUBOLTI Miðherjar Íslandsmeistaraliðanna,
Hlynur Bæringsson í Snæfelli og Signý Her-
mannsdóttir í KR, voru valin leikmenn ársins
á Lokahófi KKÍ. Þau náðu bæði langþráðu tak-
marki á þessu tímabili þegar þau urðu Íslands-
meistarar í fyrsta sinn á sínum frábæra ferli.
Hlynur og Signý voru bæði að fá þessi verð-
laun í annað skiptið, Signý var einnig valin best
í fyrra og Hlynur hlaut þessi verðlaun fyrir
tveimur árum.
Með því að vera kosinn besti leikmaðurinn
náði Hlynur Bæringsson gullnu þrennunni en
hann varð þar með sá fyrsti í 34 ár til að lyfta
bæði Íslandsbikarnum og bikarnum sem og vera
valinn leikmaður ársins. Jón Sigurðsson náði því
einnig með Ármanni vorið 1976.
Guðbjörg Sverrisdóttir úr Hamri og Ægir Þór
Steinarsson úr Fjölni voru valin
bestu ungu leikmennirnir og bestu
erlendu leikmennirnir voru valin
Heather Ezell úr Haukum og
Justin Shouse í Stjörnunni.
Þjálfarar ársins voru þjálf-
arar Íslandsmeistaraliðanna,
Benedikt Guðmundsson hjá
kvennaliði KR og Ingi Þór
Steinþórsson hjá karlaliði
Snæfells.
Hlynur Bærings-
son raðaði að sér
verðlaunum á hóf-
inu en hann var
einnig valinn besti
varnarmaður ársins
og besti leikmaður úrslitakeppn-
innar. Guðrún Gróa Þorsteins-
dóttir úr KR var valin besti varn-
armaðurinn hjá konunum annað
árið í röð og Unnur Tara Jóns-
dóttir var valin besti leikmaður
úrslitakeppninnar.
Sigmundur Már Herberts-
son var valinn besti dómarinn
sjötta árið í röð en hann jafn-
aði þar með met Leifs Garð-
arssonar frá 1999 til 2004.
Listi yfir öll verðlaunin er inni á
visir.is. - óój
BEST Hlynur Bæringsson og Signý
Hermannsdóttir.HANDBOLTI Gunnar Steinn Jóns-
son hefur verið að spila frábær-
lega með Drott og hann átti
enn á ný góðan leik þegar liðið
tryggði sér sæti í úrslitaleikn-
um um sænska meistaratitil-
inn á móti Sävehof eftir 34-27
útisigur á Ystad í oddaleik í
undanúrslitunum.
Gunnar skoraði 7 mörk í odda-
leiknum og samtals 32 mörk í 5
leikjum einvígisins en enginn
leikmaður liðanna skoraði fleiri
mörk en íslenski leikstjórn-
andinn. Drott byrjaði leikinn
samt mjög illa, lenti 1-7 undir
en minnkaði muninn í tvö mörk
fyrir hálfleik og vann seinni
hálfleikinn með 9 marka mun.
Drott vann undanúrslitaeinvígið
3-2 og mætir Sävehof í einum
úrslitaleik næsta laugardag. - óój
Drott komið í úrslitaleikinn:
Gunnar Steinn
áfram í stuði
GUNNAR STEINN Stjórnaði sóknarleik
Drott vel í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
FÓTBOLTI Kristianstad er að gera
frábæra hluti undir stjórn Elísa-
betar Gunnarsdóttur í sænska
kvennafótboltanum. Kristianstad
var í fallbaráttu í fyrra en er í 3.
sæti eftir 3-1 sigur á Umeå í gær.
Margrét Lára Viðarsdóttir
skoraði eitt mark og lagði upp
annað mark fyrir Kristianstad
í leiknum og Erla Steina Arnar-
dóttir spilaði sem markvörður í
þessum leik í forföllum aðalmar-
kvarðarins Söndru Wahldén.
Edda Garðarsdóttir og félagar
í Örebro eru í 4. sætinu eftir 1-0
sigur á Jitex. Edda spilaði allan
leikinn en Ólína Viðarsdóttir er
enn frá vegna meiðsla.
Guðbjörg Gunnarsdóttir og
félagar í Djurgården náðu loksins
að skora sitt fyrsta mark þegar
þær komust af botninum með 2-1
sigri á AIK. - óój
Frábær byrjun Kristianstad:
Erla í marki og
Margrét skoraði
ELÍSABET GUNNARSDÓTTIR Er á góðri
leið með Kristianstad í sænsku kvenna-
deildinni. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Snæfellingurinn Hlynur Bæringsson varð fyrsti maðurinn í 34 ár til að ná gullnu þrennunni á einu tímabili:
Gullið tímabil hjá bæði Hlyn og Signýju