Fréttablaðið - 16.06.2010, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 16.06.2010, Blaðsíða 8
8 16. júní 2010 MIÐVIKUDAGUR A u g lý si n g a sí m i Allt sem þú þarft… NÝJAR VÖRUR Á ÚTSÖLUMARKAÐI V ík h et tu pe ys a U rð ur ja kk i Va tn aj ök ul l P ri m al of t N ew po rt s an da la r Lo ki ja kk i G ly m ur 3 -la ga ja kk i Faxafeni 12: Mið. - fös. 8 – 18 I Lau. 11 – 16 Glerárgata Akureyri: Mið. - fös. 10 – 18 I Lau. 11 – 16 Nú 5.000 kr. - áður 7.800 kr.Nú 4.800 kr. - áður 8.200 kr. Nú 4.800 kr. - áður 8.800 kr. Nú 3.000 kr. - áður 6.000 kr. Nú 29.880 kr. - áður 49.800 kr. Nú 10.000 kr. - áður 18.500 kr. Nú 33.000 kr. - áður 64.900 kr. Nú 22.000 kr. - áður 44.000 kr. U rð ur b ux ur G ly m ur 3 -la ga b ux ur K R A K K A R D Ö M U & H E R R A Stærðir: 26-35 FRÉTTASKÝRING Hvaða áhrif hefur Icesave-málið á fyrirhugaðar aðildarviðræður íslenskra stjórnvalda við Evrópusambandið? Allar líkur eru á því að leiðtogar aðildarríkja Evrópusambandsins muni samþykkja að hefja aðildar- viðræður við íslensk stjórnvöld á fundi leiðtogaráðs ESB í Brussel á morgun. Ákvörðun um viðræð- ur liggur fyrir í drögum að loka- ályktun fundarins, sem Fréttablað- ið hefur undir höndum. Í drögunum segir meðal ann- ars: „Eftir að hafa skoðað umsókn Íslands á grundvelli [álits fram- kvæmdastjórnar Evrópusam- bandsins] og niðurstaðna frá desember 2006 um frekari stækk- un sambandsins, kemst leiðtoga- ráðið að þeirri niðurstöðu að Ísland uppfylli pólitísk skilyrði sem sett voru af leiðtogaráðinu í Kaup- mannahöfn árið 1993 og ákveður að hefja aðildarviðræður.“ Í drögunum er ekki minnst á Icesave-málið beinum orðum, held- ur notað almennt orðalag þar sem augljóslega er þó vísað til Icesave. Þar segir meðal annars að aðildar- viðræðunum sé ætlað að tryggja að Ísland taki upp reglur sambands- ins og tryggi að þær taki gildi, og „taki á útistandandi skuldbinding- um, til dæmis þeim sem ESA, Eftir- litsstofnun EFTA, hefur bent á“. Þar mun átt við álit ESA frá því í lok maí, þar sem fram kemur að Íslandi beri að endurgreiða Hol- lendingum og Bretum lágmarks- tryggingu til innstæðueigenda vegna Icesave-reikninganna. „Leiðtogaráðið fagnar því að Ísland hafi lýst yfir vilja til að leysa úr þessum málum, og hefur trú á því að Ísland muni sýna frumkvæði í því að leysa úr úti- standandi málum,“ segir í drög- unum. „Leiðtogaráðið staðfestir að við- ræðurnar fari fram á forsendum Íslands og hraðinn muni velta á því hversu hratt Ísland getur upp- fyllt þær kröfur sem útlistaðar eru í ramma viðræðnanna,“ segir þar enn fremur. Heimildir Fréttablaðsins herma að það sé einkum að kröfu fjár- málaráðuneyta Bretlands og Hollands sem þessir fyrirvarar verði gerðir um Icesave-málið í lokaályktun fundar leiðtogaráðs- ins á morgun. Forsætisráðherrar og utanríkisráðherrar landanna tveggja eru sagðir jákvæðari í garð umsóknar Íslands. Samkvæmt heimildum Frétta- blaðsins kemur það ekki í veg fyrir að aðildarviðræður geti haf- ist að enn hafi ekki verið samið um Icesave-málið. Náist ekki sam- komulag um Icesave-skuldbinding- arnar á næstu mánuðum, gæti það hins vegar hindrað að viðræður um þann kafla samningsins sem fjallar um fjármálakerfið geti haf- ist. Alls eru 35 kaflar í löggjöf Evr- ópu sambandsins sem fjalla þarf um áður en tekin verður afstaða til aðildar Íslands, og hægt verður að fara yfir hina kaflana 34 þrátt fyrir að ósamið sé um Icesave. Sendiherrar 26 aðildarríkja Evr- ópusambandsins hér á landi, allra nema Möltu, munu samkvæmt heimildum Fréttablaðsins funda hér á landi í dag til að undirbúa fyrirhugaðar aðildarviðræður. brjann@frettabladid.is Leiðtogar samþykkja að hefja viðræður Samkvæmt drögum að lokaályktun fundar leiðtoga ESB á morgun munu leið- togarnir samþykkja að hefja aðildarviðræður við íslensk stjórnvöld. Ekki verður hægt að ljúka þeim hluta sem snýr að fjármálakerfinu sé ósamið um Icesave. HÖFUÐSTÖÐVAR Leiðtogaráð Evrópusambandsins mun fjalla um aðildarumsókn Íslands á fundi ráðsins í svokallaðri Justus Lipsius-byggingu, sem er hluti af höfuð- stöðvum ESB í Brussel. MYND/ESB

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.