Samtíðin - 01.03.1970, Qupperneq 14
10
SAMTÍÐIN
laus og sorgbitinn til frú Kardos og mælti:
„Af hverju sögðuð þér mér ekki nákvæm-
lega, hvernig í öllu ]á? Þegar ég kom vestur,
hafði sonur minn beðið bana af völdum felli-
byls. Loðdýrabú hans hafði gereyðilagzt.
Slyppur og snauður er ég aftur hingað kom-
inn.“
FRÚ Kardos uppgötvaði sjötta skilningar-
vit sitt, þegar hún var 7 ára. Þá sýndist henni
hús foreldra sinna standa í ljósum loga. Nótt-
ina eftir laust eldingu niður í húsið, og brann
það til kaldra kola. Nítján ára gömul giftist
hún sígauna-hljómsveitarstjóranum Gyula
Kardcs. Nóttina eftir brúðkaup þeirra sagði
hún honum, að hjónaband þeirra myndi end-
ast 10 ár. Það rættist. Hún spáði því einnig,
að maður sinn myndi deyja í maí 1952. Það
rættist líka; hann lézt eftir uppskurð.
Þegar frú Kardos sagði fyrir upp á dag, að
Hitler yrði sýnt banatilræði, var hún ásamt
manni sínum hneppt í fangabúðir, grunuð
um þátttöku í samsærinu. Þá spáði hún því,
að þau hjónin og allir hinir dauðadæmdu
fangarnir á þeirra hæð í fangelsinu myndu
komast þaðan óskaddaðir. Þetta rættist.
Sprengja sprakk þarna, og allar hurðir
hrukku upp. Kardoshjónin og 60 aðrir fangar
burgu lífi sínu á flótta.
„Hamingjan er mér hliðholl," segir spá-
konan. „Guð yfirgefur mig ekki.“ — Hún
biðst mikið fyrir, einkum á þeim stundum,
er spádómsgáfan bregzt henni. Þegar hún er
á ferðalögum, hefur hún hvergi frið fyrir for-
vitnu fólki, sem situr um að ná tali af henni.
Allir vita, hver hún er, hvort heldur hún
dvelst á Tahiti eða í Austur-Afríku, þar sem
hún hvílir sig stundum. Heima í Berlín-
Dahlem er frú Kardos „víggirt" með görðum
og járnhliðum. Hús hennar er með kallkerfi.
og auk þess gæta næturverðir þess. Hún lief-
ur ekki farið inn í Berlín árum saman, en
heldur jafnan kyriu fyrir i „gullbúrinu“ sínu
ásamt stúlku, sem annast bréfaskriftir fyr-
ir hana.
Frú Kardos er árrisul og lifir mjög hollu
lífi, hvað mataræði snertir. Hún byrjar að
spá fyrir fólki kl. 10 og sinnir því starfi einn-
ig síðdegis. Gestir koma ekki til hennar aðr-
ir en viðskiptavinir hennar, því að hún er
kona hlédræg og þráir einveru og hvíld að
kvöldlagi. Þá hugsar hún og skynjar margt
umfram venjulegt fólk, einkum eftir að hún
er gengin til sængur.
BLAÐAMAÐURINN spurði frú Kardos,
hvernig árið 1970 legðist i hana. Hún sagði,
að stjórnmálin og hagfræðiaðgerðirnar yrðu
á þessu og næsta ári enn æðisgengnari en
mannkynið hefði átt að venjast, og er þá
mikið sagt. Frúin spáir hinni nýju ríkis-
stjórn Vestur-Þýzkalands skammri setu ó-
breyttri. Hún spáir góðum efnahag lands
síns, en gerir illu heilli ráð fyrir mikilli geng-
islækkun þýzka marksins. Hún spáir óveðr-
um og flóðum. Hún spáir árangursríkum
hjartaaðgerðum í Þýzkalandi. Hún- spáir því,
að Rússar reyni að vingast við Bandaríkja-
menn af ótta við Kínverja.
Um Vietnam spáir hún því, að þar fari að
skapast ró, úr því að kemur fram í júní í
sumar. Hún spáir því, að ekki komi til stór-
styrjaldar milli fsraels og Egyptalands, held-
ur verði deilumál þeirra leyst á óvæntan
hátt. Að lokum spáir hún því, að í september
næsta haust verði það versta um garð geng-
ið og að heimurinn ve.rði orðinn stórum
skárri eftir tvö ár.
Það brá sem snöggvast fyrir efasemdar-
svip á andliti blaðamannsins, er hann hafði
heyrt framangreinda spádóma. Þá mælti spá-
konan: „Trúið henni Kardos gömlu. Ég veit,
að mér getur skjátlazt En mér er alltaf að
fara fram, eftir því sem aldurinn færist yfir
mig. Ég hef aldrei verið sannspárri en í dag.“
Bjórinn sigrar brennivínið
ÞAU tíðindi hafa gerzt í Finnlandi, að
bjórdrykkja hafur aukizt þar að miklum
mun, en brennivínsdrykkja minnkað að sama
skapi. Fagna Finnar þessu af heilum hug,
um leið og þeir benda á, að hið sama hafi
gerzt í Svíþjóð.
Árið 1968 nam bjórdrykkja í Finnlandi
að meðaltali 19 lítrum á mann, en 1969 er bú-
izt við, að hún aukist í 45 lítra. Orsökin er
sú,. að lögheimilað hefur verið að selja svo-
nefnt „milliöl“ eða pilsner í matvÖrubúðum.
MINJÁGRIPIR □□ GJAFAVÖRUR
VIÐ A'LLRA HÆFI.
Skartgripaverzlunin EIUAIL
HAFNARSTRÆTI 7 - SÍMI 2-D4-75