Fréttablaðið - 23.06.2010, Síða 1
Sími: 512 5000MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI
veðrið í dag
23. júní 2010 — 145. tölublað — 10. árgangur
MIÐVIKUDAGUR
skoðun 14
2 SÉRBLÖÐ
í Fréttablaðinu
Allt
Sumar og börn
Sölufulltrúar Henný Árnadóttir henny@365.is 512 5427 Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is 512 5447
„Þessi bíll verður framvegis notað-ur til innrása en ekki útrása þótt
fenginn sé úr peningaflutningum
útrásarvíkinga Kaupþings,“ segir
Gunnar Ólafsson, formaður og jarl
Einherja, Víkingafélags Reykjavík-ur, um nýjan bílakost félagsins sem
er 8 strokka Ford Econoliner af fín-ustu sort, enn angandi af peninga-lykt síðan Kaupþing notaði hann til
fjármagnsflutninga.„Þetta er sendibíll eins og við
þurftum fyrir okkar hafurtask;
rúmgóður fyrir víkingatjöld, sverð
og skildi, og eyðir vel af bensíni.
Inni í honum er einhvers konar
kista en ég á enn eftir að kanna
betur hvort í henni leynast faldir
fjársjóðir,“ segir Gunnar og strýkur af númeraplöt
alvöru víkingar til stærri hugsjóna.
Við Sveinn Hjörtur Guðfinnsson
rekum ferðaþjónustuna Landnáms-ferðir og höfum síðastliðin ár farið
með fólk á söguslóðir víkinga þar
sem við gerum söguna lifandi. Vík-ingabíllinn hefur því verið á ferð
um allt land í sumar og safnað liði
víkinga í öllum landsfjórðungum,“
segir Gunnar sem með Einherja
mun standa fyrir glæstri víkinga-hátíð í samvinnu við Reykjavíkur-borg á Miklatúni næsta sumar. „Það er tímabært að Reykvík-ingar haldi sína eigin víkingahá-tíð og staðsetningin tilvalin, enda
þýðir Miklatún Grand Park á enskuog hátíðin Grand VikiÞ
huga,“ segir Gunnar sem hefur
verið ötull talsmaður víkinga á
erlendri grund, þar sem móttökur
eru höfðinglegar.„Úti er tekið mót íslenskum vík-ingum með viðhöfn, því við tölum
víkingamál og hér gerast sögur
víkinga. Fólk þegir því þegar við
tölum og er upp með sér yfir að
kynnast víkingum með íslensk
víkinganöfn,“ segir Gunnar sem
áfram ætlar að efla víkingavitund
Íslendinga.
„Að vera víkingur nú á tímum
er að upplifa stoltið sem í því felst.
Það vantar allt stolt í Íslendiog þei þ
Leitar falinna fjársjóðaMargir reka upp stór augu þegar þeir sjá kunnuglegan peningabíl útrásarvíkinga fara um landið með
bílnúmeri sem á stendur Víking, en ekki er allt sem sýnist og göfugir víkingar í landnámi nú við stýrið.
Gunnar Ólafsson jarl tryggði sér sérnúmerið Viking árið 1996 og var sá þriðji í röðinni þegar fyrst var gefinn kostur á sérnúmerum
á bíla.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Bonito ehf. Friendtex,
Faxafen 10, 108 Reykjavík, sími: 568 2870 - www.friendtex.is
ÚTSALA
Opið mánud. – föstud. frá kl 11 – 18Lokað á laugardögum
Kíktu, það borgar sig!
Hringdu í síma
ef blaðið be
SKÓGRÆKTARFÉLAG REYKJAVÍKUR stendur þessa viku fyrir veglegri og fjölbreyttri dagskrá í Heiðmörk í tilefni af 60 ára afmæli þessarar útivistarperlu.
sumar og börnMIÐVIKUDAGUR 23. JÚNÍ 2010
ÉG ER OG BRAGÐGÓÐ
JÓGÚRT SEM KEMUR Á ÓVART
Kauptu mig!
Pantaðu allan hringinn á
www.hoteledda.is eða í síma 444 4000
1 ML Laugarvatn • 2 ÍKÍ Laugarvatn • 3 Skógar
4 Vík í Mýrdal • 5 Nesjum • 6 Neskaupstaður
7 Egilsstaðir • 8 Eiðar • 9 Stóru tjarnir
10 Akureyri • 11 Laugar bakki • 12 Ísafjörður
13 Laugar í Sælingsdal
10
12
9
8
7 6
5
2
3 4
13 11
1
BROSANDI
ALLAN HRINGINN
ÓDÝRT FYRIR ALLA!
Nýr tilboðsbæklingur í dag
FÓLK Stórsöngvarinn Tom Jones
tók lagið með Önnu Mjöll Ólafs-
dóttur á tónleikastaðnum Vibrato í
Los Angeles á mánudagskvöld.
Tónleikar Önnu Mjallar voru í full-
um gangi þegar hún sá Tom Jones
meðal gesta. Hún bauð honum að
sjálfsögðu upp á svið og lét hann
ekki segja sér það tvisvar.
„Hann kom svo bara upp með
glasið sitt,“ segir Anna Mjöll.
Tom, sem varð sjötugur 7. júní,
þáði boðið og þau sungu saman
lagið When I Fall in Love.
- afb / sjá síðu 30
Anna Mjöll í Los Angeles:
Tom Jones kom
óvænt á sviðið
GÓÐ SAMAN Salurinn trylltist þegar Tom
Jones steig á svið.
Virðing og vinátta
Alþjóðlegi ólympíudagurinn
er haldinn hátíðlegur í dag.
tímamót 18
STJÓRNMÁL Aukalandsfundur
Sjálfstæðisflokksins, sem hald-
inn verður um næstu helgi, mun
taka afstöðu til þess hvort flokk-
urinn leggi til að aðildarumsókn
að Evrópusambandinu verði dreg-
in til baka, samkvæmt heimildum
Fréttablaðsins. Allar líkur eru á að
slík tillaga verði samþykkt.
Unnur Brá Konráðsdóttir, þing-
maður flokksins, hefur talað fyrir
því að það verði gert. Hún segist
ekki munu leggja slíka tillögu fram
á fundinum, en gerir ráð fyrir að
aðrir muni gera það.
Ljóst er að stefnubreytingu þarf
í Evrópumálum, því núverandi
stefna flokksins gerir ráð fyrir
tvöfaldri þjóðaratkvæðagreiðslu.
Af henni varð ekki, umsókn liggur
fyrir og samþykki fyrir viðræðum
af hálfu sambandsins.
Evrópusinnar innan Sjálfstæðis-
flokksins sem Fréttablaðið ræddi
við gerðu ekki ráð fyrir miklum
tíðindum af fundinum, ólíkt efa-
semdarmönnum. Þeir töldu sam-
stöðu mikilvægustu skilaboð fund-
arins og slík ályktun mundi skipta
mönnum í tvær fylkingar. Sumir
óttuðust klofning væri hún sam-
þykkt.
Svo virðist sem aðrir vindar
blási nú í Evrópumálum hjá Sjálf-
stæðisflokknum en fyrir ári, þegar
núverandi stefna var samþykkt. Þá
voru fjölmargir til í að láta reyna
á aðild, en nú virðist þeim hafa
fækkað.
Um aukalandsfund er að ræða,
en samkvæmt dagskrá ætti að
halda landsfund á næsta ári.
Aðeins verður samþykkt stjórn-
málaályktun um helstu stefnumál
flokksins, ekki fjöldi ályktana um
ólík málefni. Almennar umræður
um ýmis málefni verða með þjóð-
fundarsniði.
Enn sem komið er hafa einungis
Bjarni Benediktsson og Ólöf Nor-
dal lýst yfir framboði til formanns
og varaformanns flokksins. - kóp
Undirbúa stefnubreytingu
varðandi Evrópuumsókn
Tillaga um að Sjálfstæðisflokkurinn beiti sér fyrir því að Ísland dragi umsókn sína að Evrópusambandinu
til baka verður lögð fram á landsfundi um helgina. Sumir óttast að Evrópumálin geti klofið flokkinn.
VÆTA EYSTRA Í dag verða
norðaustan 3-10 m/s. Væta SA- og
A-lands en léttir heldur til SV- og
V-til. Hiti 8-20, hlýjast SV-lands.
VEÐUR 4
14
15
11 13
10
Frakkar niðurlægðir
Frakkland hefur lokið
þátttöku á HM. Eitt stig og
eitt mark var uppskeran.
íþróttir 26
NÁTTÚRA Vatnsrennsli í ám suðvestanlands er með
minnsta móti og gæti það haft áhrif á veiðitíma-
bilið í sumar, þar sem lax og sjóbirtingur er rétt
nýbyrjaður að ganga í árnar. Þetta segir Guðni Guð-
bergsson, fiskifræðingur hjá Veiðimálastofnun.
Guðni segir tvennt koma til varðandi vatnsleys-
ið; lítinn snjó í vetur og þurrt veður framan af vori.
„Um þetta leyti eru seiði að vaxa og hrogn að klekj-
ast út í ánum, sem er undirstaða næstu árganga og
ef vatn verður mjög lítið geta uppeldissvæði farið á
þurrt og önnur minnkað.“
Fleiri þættir hafa áhrif á fiskgengd en vatns-
magnið, í heitu veðri minnkar súrefnisinnihald
vatns þegar rennsli minnkar. Það eykst svo aftur
þegar rignir og fiskurinn á þá auðveldara með að
ganga.
Guðni segir sérfræðinga Veiðimálastofnunar hafa
fundið dauða fiska í Markarfljóti og Svaðbælisá
eftir eldgosin eystra. „Þar fundust dauðir fiskar
eftir að fast efni blandað gosefnum ruddist gegnum
árnar og gerði þær ólífvænlegar um tíma.“
- kóp, þlg / sjá Allt
Lítill snjór í vetur og þurrt veður í vor gæti orsakað slælega veiði í sumar:
Veiðimenn bíða eftir rigningu
BLÁSIÐ Í LÚÐRANA Áhorfendur á Laugardalsvelli blésu af krafti í vuvuzela-lúðra þegar íslenska
kvennaliðið mætti því króatíska í skemmtilegum leik í gærkvöld. Íslensku stúlkurnar unnu leikinn með þremur
mörkum gegn engu. Lúðrar og stórar trommur eru venjulega bannaðar innan vallarins en sökum gífurlegra vin-
sælda lúðranna á HM verður litið framhjá notkun þeirra um sinn. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Listahátíð á Jónsmessu
Íslenskir listamenn verða
kynntir á Jónsvöku.
fólk 22