Fréttablaðið - 23.06.2010, Síða 2
2 23. júní 2010 MIÐVIKUDAGUR
„Kristín, eru þið ekki bara
að berja höfðinu við bleika
steininn?“
„Nei, við höfum nú ekki bitið í stein-
inn með það.“
Kristín I. Pálsdóttir er ráðskona í Femín-
istafélagi Íslands. Í fyrradag veitti félagið
hvatningarverðlaun sín, Bleika steininn.
BRETLAND, AP George Osborne,
fjármálaráðherra Bretlands,
kynnti í gær mestu niðurskurð-
arfjárlög ríkisins til margra ára-
tuga. Meðal annars verða lagðir
ýmsir nýir skattar á landsmenn,
auk þess sem sérstakir skattar
verða lagðir á banka.
„Við þurfum að greiða reikn-
inginn fyrir ábyrgðarleysi fyrri
tíma, við höfum þurft að læra upp
á nýtt þá dyggð að fara vel með
fjármuni,“ sagði Osborne á þingi
í gær, þegar hann lagði fram sér-
stök neyðarfjárlög hinnar nýju
ríkisstjórnar Íhaldsflokksins og
Frjálslynda flokksins, sem í vor
tók við af stjórn Gordons Brown,
leiðtoga Verkamannaflokksins.
Á fjárlögunum er flestum ráðu-
neytum stjórnarinnar gert að
draga úr kostnaði um 25 prósent.
Með þessu móti hyggst stjórn-
in spara sér 30 milljarða punda í
útgjöldum.
Auk þess þurfa flestir ríkis-
starfsmenn, að undanskildum
þeim lægst launuðu, að þola launa-
frystingu í tvö ár. Að minnsta
kosti 11 milljarða á að spara með
því að draga úr velferðarútgjöld-
um. - gb
Breska stjórnin boðar harkalegan niðurskurð í velferðarmálum:
Ráðuneytin spari fjórðung
RAUÐA TASKAN KVÖDD Osborne
fjármálaráðherra veifar í síðasta sinn
fjárlagatöskunni góðu, sem notuð hefur
verið í 150 ár samfleytt. NORDICPHOTOS/AFP
HELSINKI, AP Finnska þingið valdi
Mari Kiviniemi í embætti for-
sætisráðherra landsins í gær.
Kiviniemi
tekur við af
Matti Van-
hanen sem til-
kynnti í janúar
að hann hygð-
ist hætta sem
forsætisráð-
herra og for-
maður finnska
Miðflokksins
en Kiviniemi
tók við formanns embætti
flokksins fyrr í mánuðinum.
Kiviniemi, sem er 41 árs
gömul, er önnur konan til að
gegna embætti forsætisráð-
herra Finnlands en hún var áður
ráðherra opinberrar stjórnsýslu
og sveitarstjórnarmála.
Vanhanen hafði verið í emb-
ætti frá árinu 2003. - mþl
Ráðherraskipti í Finnlandi:
Kiviniemi í stól
forsætisráðherra
MARI KIVINIEMI
FÆREYJAR Helmingur færeysku
þjóðarinnar er kominn með síðu
á samskiptavefnum Facebook,
að því er fram kom í færeyskum
fjölmiðlum í gær.
Samkvæmt könnun sem
Gagnaeftirlitið í Færeyjum
gerði nýlega, en sú stofnun
samsvarar Persónuvernd hér á
landi, eru alls 24 þúsund Fær-
eyingar komnir með eigin síðu.
Skipting milli kynja mun nokk-
urn veginn jöfn.
Flestir notendurnir eru í
yngri kantinum, eða á aldursbil-
inu 25 til 35 ára. Yngstu notend-
urnir í Færeyjum sem vitað er
um munu vera átta og ellefu ára
þrátt fyrir að aldurstakmark-
ið samkvæmt ríkjandi reglum
Facebook sé þrettán ár. - gb
Færeyingar iðnir á netinu:
Hálf þjóðin er
á Facebook
JERÚSALEM, AP Varnarmálaráð-
herra Ísraels, Ehud Barak, gagn-
rýndi í gær áætlanir um að rífa
22 hús Palestínumanna í Jerúsal-
em. Sagði ráðherrann um vonda
tímasetningu og skort á almennri
skynsemi að ræða.
Yfirvöld í Jerúsalem hafa
áformað að rífa húsin og byggja
þar ísraelska ferðaþjónustumið-
stöð. Borgarstjórinn vísaði gagn-
rýninni á bug. Ummæli ráðherr-
ans komu í kjölfar gagnrýni Sþ og
Bandaríkjanna. Barak á nú í við-
ræðum við Barack Obama. - þeb
Varnarmálaráðherra Ísraels:
Áform um nið-
urrif gagnrýnd
UTANRÍKISMÁL Á árlegum ráð-
herrafundi EFTA, sem hefst í
Reykjavík í dag, verður fimmtíu
ára afmælis EFTA minnst. Jafn-
framt eru fjörutíu ár liðin frá
inngöngu Íslands í samtökin.
Á fundinum verða undirritaðir
fríverslunarsamningar við Perú
og Úkraínu. Einnig verður efnt til
ráðstefnu um efnahagshrunið og
alþjóðaviðskipti.
Fundinn sækja Össur Skarp-
héðinsson utanríkisráðherra,
Doris Leuthard, forseti Sviss og
efnahagsmálaráðherra, Trond
Giske, viðskipta- og iðnaðarráð-
herra Noregs, og Aurelia Frick,
utanríkisráðherra Liechtenstein.
- gb
Ráðherrar EFTA í Reykjavík:
Minnast fimm-
tíu ára afmælis
FÓLK Tólf ungmenni frá Kanada og
Bandaríkjunum eru nú stödd hér á
landi þar sem þau taka þátt í Snorra-
verkefninu, verkefni sem er ætlað að
efla tengsl við afkomendur Vestur-
Íslendinga í Norður-Ameríku. Fólkið
á allt rætur að rekja til Íslands.
„Núna eru hér tólf ungmenni á
aldrinum 18 til 30 ára, flest frá Kan-
ada en nokkur frá Bandaríkjunum,“
segir Alexía Gunnarsdóttir, umsjón-
armaður verkefnisins. Fólkið dvelur
hér á landi í sex vikur. „Fyrstu tvær
vikurnar eru þau í Reykjavík þar
sem þau sitja ýmsa fyrirlestra, læra
íslensku og fara í alls konar heim-
sóknir. Svo erum við með hjálp ætt-
fræðings búin að rekja ættir þeirra
og finna fjarskylda ættingja þeirra
hér á landi. Nú á föstudaginn fara
þau sitt í hverja áttina og dvelja hjá
ættingjum um allt land næstu þrjár
vikurnar. Sum fara á sveitabæi
og vinna þar en önnur hafa feng-
ið ýmsa vinnu í bæjunum þar sem
þau verða.“ Alexía segir flest ung-
mennanna vera á leið á slóðir for-
feðra sinna, sem skipti mörg þeirra
miklu máli. Í lok ferðarinnar verð-
ur svo farið í vikuferðalag um land-
ið og helstu náttúruperlurnar skoð-
aðar.
„Þetta er fallegt verkefni, og það
er fallegt hvað Íslendingar taka vel
í þetta. Íslendingar eru svo stoltir af
uppruna sínum og það var svo auð-
velt að hringja í fólk og segjast vera
með frænku þeirra frá Kanada, það
voru allir boðnir og búnir að opna
heimili sín og gera allt fyrir þau.
Sama hvert maður hringdi. Í sumum
tilvikum leið mér bara eins og ég
hefði verið að gefa fólki gjöf, með
því að búa til þessa tengingu. Þá
hafði fólk alveg misst tengslin við
þetta fólk sem fór vestur. Þar var
mikil gleði að fá tenginguna aftur.“
thorunn@frettabladid.is
Vestur-Íslendingar á
slóðum forfeðranna
Tólf ungmenni frá Kanada og Bandaríkjunum dvelja nú á Íslandi til að kynn-
ast landi og þjóð. Fólkið er allt afkomendur Vestur-Íslendinga og mun búa og
starfa hjá íslenskum ættmennum víðs vegar um landið næstu vikurnar.
HJÓLATÚR UM MIÐBORGINA Ungmennin hafa undanfarið dvalið í Reykjavík og fóru meðal annars í hjólatúr um borgina með
leiðsögumanni á mánudag. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Snorraverkefninu er ætlað að veita ungu fólki frá Bandaríkjunum og Kanada,
sem á rætur að rekja til Íslands, tækifæri til að heimsækja Ísland. Verkefnið
hefur verið starfrækt á hverju sumri frá árinu 1999. Það er samstarfsverk-
efni Norræna félagsins og Þjóðræknisfélags Íslendinga. Hægt er að fræðast
frekar um verkefnið á slóðinni snorri.is.
Hvað er Snorraverkefnið?
NEYTENDUR Kristján Möller sam-
gönguráðherra opnaði í gær
reiknivél á netinu þar sem neyt-
endur geta borið saman verð á
fjarskiptaþjón-
ustu. Póst- og
fjarskiptastofn-
un stendur að
reiknivélinni.
Þar er hægt
að gera saman-
burð á verði á
algengustu inn-
anlandsnotkun
á heimasíma
og farsíma,
auk niðurhals á gögnum erlend-
is frá með ADSL-tengingum.
Póst- og fjarskiptastofnun hefur
unnið að þróun reiknivélarinn-
ar í samvinnu við fjarskipta-
fyrirtækin og hagsmunaaðila í
neytendamálum. Neytendur geta
ekki sannreynt símreikninga
sína, aðeins gert samanburð á
algengri þjónustu. Slóðin er ein-
föld: reiknivel.is. - kóp
Þjónusta við neytendur:
Reiknivél um
fjarskiptaverð
KRISTJÁN L.
MÖLLER
EFNAHAGSMÁL „Það hefur reynst þrautinni þyngri
að púsla saman þessari samráðsnefnd,“ segir
Maríanna Jónasdóttir, formaður starfshóps fjár-
málaráðuneytis, sem leggja á fram tillögur að
breytingum á skattkerfinu.
Starfshópurinn var settur á laggirnar í apríl og
á að skila af sér fyrstu áfangaskýrslu eftir þrjár
vikur. Maríanna segir hópinn hafa snemma gert
sér grein fyrir því að tíminn sé naumur. Í fyrstu
áfangaskýrslu verði grófar línur lagðar. Bein til-
lögugerð bíði skýrslu sem skila á fyrir árslok.
Líkt og fram kom í Fréttablaðinu í gær hefur
starfshópurinn aldrei fundað með þeim fulltrú-
um sem tilnefndir voru í samráðsnefnd sem vinna
á með starfshópnum. Maríanna segir ástæðuna
þá að ekki er búið að fullskipa í nefndina. Enn
vanti upp á að jafna hlut kynja í henni. „Við erum
að vinna í þessu og hvetja menn til að skila inn
tilnefningum. Þingflokkarnir hafa verið lengst
á eftir. Það verður reynt til þrautar að hringja í
fyrramálið [í dag] en planið er að halda fund á
föstudag,“ segir Maríanna sem var stödd á fundi
ríkisfjármálanefndar OECD í París í Frakklandi
þegar Fréttablaðið heyrði í henni í gær. Nefndin
fylgist með skattamálum innan OECD-ríkjanna en
það er eitt hlutverka starfshópsins. - jab
Erfiðlega gengur að púsla saman samráðsnefnd á vegum fjármálaráðuneytis:
Nefndin skilar punktum í júlí
FORMAÐURINN Boðað hefur verið til fyrsta fundar starfshóps
fjármálaráðuneytis og samráðsnefndar hennar á föstudag,
segir Maríanna Jónasdóttir. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
SPURNING DAGSINS