Fréttablaðið - 23.06.2010, Side 4

Fréttablaðið - 23.06.2010, Side 4
4 23. júní 2010 MIÐVIKUDAGUR Pétur Blöndal alþingismaður sagði í fjölmiðlum í gær að hann hefði ekki vitað að hann væri í viðtali, þegar hann sagði við blaðamann Frétta- blaðsins að honum væri skapi næst að hætta á þingi. Af því tilefni skal getið að Pétur sagði við blaðamann að hann mætti „matreiða þetta [sam- tal] eins og þú vilt á þínu blaði“. Vegna fréttar um dóm yfir tveimur mönnum sem dæmdir voru fyrir rán og aðild að ráni á Barðaströnd á Seltjarnarnesi skal áréttað að annar mannanna, Axel Karl Gíslason, fór ekki inn í umrætt hús. Hins vegar taldi Hæstiréttur sannað að hann hefði skipulagt innbrot í húsið og tekið við þýfi. Hæstiréttur þyngdi dóminn yfir manninum um ár. TIL ÁRÉTTINGAR VEÐURSPÁ Alicante Basel Berlín Billund Frankfurt Friedrichshafen Gautaborg Kaupmannahöfn Las Palmas London Mallorca New York Orlando Ósló París San Francisco Stokkhólmur HEIMURINN Vindhraði er í m/s. Hitastig eru í °C. Gildistími korta er um hádegi. 26° 22° 21° 20° 25° 23° 19° 19° 22° 23° 24° 33° 34° 22° 25° 19° 18°Á MORGUN Hæg norðaustlæg eða breytileg átt. FÖSTUDAGUR Hæglætisveður. 14 13 15 15 14 10 10 9 13 10 11 4 6 6 5 6 5 4 6 5 9 4 16 11 10 8 15 12 12 14 14 10 20 FÍNASTA VEÐUR Það verður fínt veður suðvestan- lands í dag, bjart með köfl um og yfi rleitt hægur vind- ur og allt að 20°C. Í kvöld fer fram miðnæturhlaupið í Laugardal og má búast við kjörað- stæðum til að setja persónuleg met. Elísabet Margeirsdóttir veður- fréttamaður ALÞINGI Illa stödd heimili verða til umræðu þegar þing kemur saman á fimmtudag. Einnig kemur til greina að ræða um búvörur. Endan- leg dagskrá liggur ekki fyrir. Heimildir herma að þrátt fyrir góðan vilja náist ekki að klára tvö róttæk mál, frumvarp sem leyfir hópmálssókn- ir og annað sem styttir fyrningarfrest krafna. Lilja Mósesdóttir, formaður viðskiptanefnd- ar, segir að það hefði orðið mikil bót í máli fyrir skuldara að stytta fyrningartíma krafna í fjög- ur ár. „Það hefur hingað til verið hægt að end- urnýja kröfuna og hundelta fólk fram á grafar- bakkann,“ segir hún. Það sem standi helst í þingmönnum sé „ótti við eignarréttinn“ en sá ótti hafi einnig tafið lyklafrumvarpið svokallaða, um að skuldarar geti skilað íbúðum til lánveitenda. Fjármála- stofnanir hafa lagst gegn því frumvarpi. Helgi Hjörvar, formaður efnahags- og skatta- nefndar, segir vilja til þess að lögfesta hóp- málssóknina og að takmarka það hversu lengi er hægt að halda uppi kröfum gagnvart fólki. Málin séu nú stödd í allsherjarnefnd. Róbert Marshall, formaður allsherjarnefnd- ar, vill ekki staðfesta að málin tvö nái ekki í gegn. Það sé óljóst. „Það hefur staðið til að fá umsagnir um þau meðal annars frá réttar- fars nefnd. Við erum að reyna að koma til móts við þá sem eru skuldum vafnir og eru að semja við kröfuhafa. Það samræmist líka því almenna sjónarmiði að fólki sé gefið tækifæri til að spyrna við fótum og byrja að nýju.“ - kóþ Alþingi kemur saman á fimmtudag og ætlar aðallega að fjalla um vanda heimilanna og skuldir: Tvö róttæk frumvörp verða látin bíða ■ Greiðsluaðlögun einstaklinga ■ Tímabundið úrræði einstaklinga sem eiga tvær fasteignir til heimilisnota ■ Tímabundin greiðsluaðlögun fasteignaveðkrafna á íbúðarhúsnæði ■ Umboðsmaður skuldara ■ Tekjuskattur (skattaleg meðferð á eftirgjöf skulda). Hugsanlegt: ■ Meðferð einkamála (hópmálssókn). ■ Gjaldþrotaskipti og fyrning kröfuréttinda. ■ Skilmálabreytingar veðtryggðra lánssamninga (bílalán). Dagskráin er ekki fastmótuð og gæti því breyst. Hvaða heimilismál verða á dagskrá? FJÖLMIÐLAR Sigrún Stefánsdóttir, dagskrárstjóri útvarps RÚV, hefur einnig verið ráðin sem dagskrár- stjóri sjónvarps og mun gegna báðum stöðum tímabundið. Eftir tæpa tvo mánuði í starfi sem dagskrárstjóri sjónvarps RÚV sagði Erna Kettler starfi sínu lausu af heilsufarsástæðum. Erna var valin úr hópi 37 umsækjenda í vor og tók við stöðunni í byrj- un maí. Hún hafði þá verið starfandi sem fulltrúi í inn- kaupadeild sjón- varpsins. Er na mu n síða n verða aðstoðarmaður dagskrárstjóra sjónvarps þegar hún verður heil heilsu. Páll Magn- ússon, útvarps- stjór i RÚ V, segir starf slíks aðstoðarmanns ekki hafa tíðkast á síðustu árum, en þó hljóti stað- an að hafa verið til á einhverjum tímapunkti. Hann tekur einnig fram að Sigrún hafi verið sú hæfasta til að gegna stöðu dagskrárstjóra af þeim sem hann hafði um að velja eftir að Erna sagði starfi sínu lausu. Þó hafi komið til greina að auglýsa stöð- una aftur. „Ef Sigrún hefði verið í hópi þeirra sem sóttu um í mars getur vel verið að ég hefði ráðið hana,“ segir Páll. „Ástæðan fyrir því að hún var ekki ráðin þá er einfald- lega vegna þess að hún sótti ekki um.“ Lára Magnúsardóttir sagnfræð- ingur var í hópi þeirra sem sóttu um stöðu dagskrárstjóra í vor og telur hún að það sé bæði eðlilegt og sjálfsagt að auglýsa starf af þessu tagi. „Mér finnst að það vanti skiln- ing í samfélaginu á því hvað þetta er mikilvægt og áhrifamikið starf,“ segir Lára. Hallur Hallsson blaðamaður er einnig úr hópi umsækjenda síðan í vor og tekur hann í sama streng. „Þessi þróun innan Ríkisút- varpsins er mjög varhugaverð,“ segir Hallur. „Gegnsæið er alveg horfið úr starfseminni og ég er alveg hættur að skilja hvert Páll Magnússon er að fara með stofn- unina. Þetta er ríki í ríkinu.“ Sigrún Stefánsdóttir segist ekki hafa sóst eftir starfinu en taka ráðningunni sem merki um viður- kenningu og traust útvarpsstjóra á hennar vinnu. „Ég er búin að starfa lengi hjá RÚV og Páll þekkir mín vinnu- brögð,“ segir hún. Ekki hefur verið tekin ákvörðun um hvernig stöðu dagskrárstjóra útvarps verður háttað í framtíð- inni en útvarpsstjóri tekur fram að sameining sé ekki í spilunum eins og er. sunna@frettabladid.is Sigrún fékk starfið án þess að sækja um Sigrún Stefánsdóttir hefur verið ráðin dagskrárstjóri sjónvarps RÚV án auglýs- ingar. Forveri hennar sagði starfinu lausu eftir tæpa tvo mánuði. Sigrún sótti ekki um starfið en útvarpsstjóri telur hana hæfari en 36 fyrri umsækjendur. STJÓRNSÝSLA Dómsmálaráðherr- ar Norðurlandanna funduðu í gær um fyrirbyggjandi aðgerð- ir gegn afbrotum barna og ung- menna. Ragna Árnadóttir dóms- málaráðherra sat fundinn sem fram fór í Dan- mörku. Ráðherr- arnir fjölluðu einnig um bar- áttuna gegn innbrotum á heimili og meðferð kyn- ferðisbrota- mála. Ákveð- ið var að beina því til nor- rænna ríkislögreglustjóra að skoða þörfina á aukinni sam- vinnu milli landanna á rannsókn og meðferð mála er varða inn- brot á heimili og þjófnaði, sem oft tengist alþjóðlegri glæpa- starfsemi. Ríkislögreglustjórun- um var falið að koma með tillög- ur til úrbóta. - kóp Dómsmálaráðherrar funda: Fyrirbyggja af- brot ungmenna RAGNA ÁRNADÓTTIR SLYS Tveir ferðamenn veltu bif- reið sinni á Snæfjallaströnd í gær. Þyrla Landhelgisgæslunn- ar flutti annan ferðamanninn, sem reyndist vera með höfuð- og bakáverka, á slysadeild Landspít- alans. Í fyrstu var talið að meiðsli mannsins væru minni háttar en nánari rannsókn leiddi í ljós að áverkarnir voru það alvarlegir að maðurinn þarf að leggjast inn á spítala í einhvern tíma. Hinn maðurinn slapp ómeiddur. - sv Landhelgisgæslan kölluð út: Fleiri ferða- menn slasast BRASILÍA Alls höfðu 38 manns týnt lífi og um þúsund var saknað í gærkvöld í Brasilíu eftir gríðar- leg flóð sem þar hafa geisað síð- ustu daga. Yfir hundrað þúsund manns hafa þurft að flýja heimili sín vegna flóðanna. Sjónarvottar segja að heilu þorpin á svæðinu séu horfin og tjónið sé gífurlegt. Á síðasta ári létust hátt í 50 manns í flóðum á sömu svæðum. - sv Gríðarleg flóð í Brasilíu: Hátt í fjörutíu manns látnir HÖRMUNGARÁSTAND Gríðarleg flóð hafa orðið mörgum að bana í Brasilíu. PÁLL MAGNÚSSON ERNA KETTLER NÝR DAGSKRÁRSTJÓRI RÚV Sigrún Stefánsdóttir var ráðin sem dagskrárstjóri sjón- varps án þess að staðan hafi verið auglýst. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Hendrik Sigurðsson hendrik@frettabladid.is, Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Laila Awad laila@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is ALLT SÍMI 512-5402: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Henný Árnadóttir henny@365.is, Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5016: Sigríður Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynurs@365.is, Bjarni Þór Sigurðsson bthor@365.is, Benedikt Freyr Jónsson benediktj@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is, Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is GENGIÐ 22.06.2010 GJALDMIÐLAR KAUP SALA HEIMILD: Seðlabanki Íslands 201,7976 GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR 127,4 128 187,66 188,58 156,43 157,31 21,019 21,141 19,723 19,839 16,397 16,493 1,4046 1,4128 187,37 188,49 Bandaríkjadalur Sterlingspund Evra Dönsk króna Norsk króna Sænsk króna Japanskt jen SDR Nýr Nicorette plástur fæst nú 25 mg og hálfgagnsær Nýt t! Nicorette® nikótínlyf eru fáanleg án lyfseðils og eru notuð til að auðvelda reykingafólki að venja sig af tóbaki með því að draga úr nikótínþörf og fráhvarfseinkennum. Skammtar eru einstaklingsbundnir eftir því hve mikið er reykt. Nota má forðaplásturinn einan og sér eða samtímis 2mg Nicorette lyfjatyggigúmmíi eða Nicorette innsogslyfi. Hámarksdagskammtur er 1 stk forðaplástur og annað hvort 24 stk lyfjatyggigúmm eða 12 hylki af innsogslyfi.Til að ná sem bestum árangri skal fylgja leiðbeiningum í fylgiseðli. Leitið til læknis eða lyfjafræðings ef þörf er á frekari upplýsingum um lyfin. Þeir sem fengið hafa ofnæmi fyrir nikótíni eða öðrum innihaldsefnum lyfsins, nýlegt hjartaáfall, óstöðuga versnandi hjartaöng, alvarlegar hjartsláttartruflanir, ómeðhöndlaðan háþrýsting eða nýlegt heilablóðfall eiga ekki að nota Nicorette. Börn yngri en 15 ára mega ekki nota Nicorette. Þungaðar konur og konur með barn á brjósti skulu eingöngu nota Nicorette í samráði við heilbrigðisstarfsfólk. Lesið allan fylgiseðilinn vandlega áður en byrjað er að nota lyfið. Markaðsleyfishafi: McNeil Denmark ApS. Umboð á Íslandi: Vistor hf., Hörgatún 2, 210 Garðabæ. Nicorette Invisi 25 mg Er að hærri styrkleika en fyrri forðaplástrar frá Nicorette

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.