Fréttablaðið - 23.06.2010, Síða 8
8 23. júní 2010 MIÐVIKUDAGUR
1 Hvaða umdeilda hátíð var
haldin á Akureyri síðustu helgi?
2 Hvar var Elín Sólborg Eyjólfs-
dóttir kjörin sumarstúlka?
3 Hvaða óvenjulegu afmælis-
gjöf fékk María Sigurðardóttir
frá Hvammstanga á dögunum?
SVÖRIN ERU Á SÍÐU 30
Laugavegi 172-174 · 590 5000 · hekla.is · hekla@hekla.isÞjónustuver og þjónustumóttökur: Opið frá 8-17 alla virka daga · Pantanasími 590 5030 · thjonusta@hekla.is. Netspjall á www.hekla.is.
Vaxtalaust 100% þjónustulánSumarið er tíminn
fyrir Mitsubishi
Mitsubishi eigendum finnst gaman að ferðast. Þeir njóta líka góðs af áratugareynslu Sverris og félaga á
Mitsubishi þjónustuverkstæðinu. Þú getur fengið vaxtalaust 100% lán ef eitthvað þarf að gera við bílinn
þinn, með sveigjanlegum greiðslum til allt að tólf mánaða*. Láttu okkur gera betur við bílinn þinn.
Val um upprunalega eða ódýrari varahluti Sérstök hraðþjónusta í boði Ókeypis forgreining
*Lán geta numið að hámarki 500 þús, að lágmarki 60 þús. Lántökugjald: 3%.
Þjónustulán
0% vextir
EFNAHAGSMÁL „Ég held að þetta
sé að mörgu leyti rétt hugsun og
mér fellur hún vel. Að til viðbótar
innlánstryggingakerfi sem á að
fjármagna sig sjálft með iðgjöld-
um innlánsstofnana, sé lagt í
einhvern stöð-
ugleikasjóð.
Þannig er kerfið
sjálft látið bera
hluta kostnað-
arins sem áföll
í fjármálakerf-
inu hafa þegar
valdið. Þannig
að þetta verður
örugglega skoð-
að hér, allavega
stendur minn
hugur til þess,“
segir Steingrím-
ur J. Sigfússon
fjármálaráð-
herra, spurður
um hugmyndir
sem settar hafa
verið fram um
sértækan tekju-
skatt á banka.
Ríkisstjórnir
Bretlands, Frakklands og Þýska-
lands tilkynntu sameiginlega í
gær að þær ætli að leggja slík-
an skatt á bankastofnanir til að
vernda skattgreiðendur frá þeim
kostnaði sem fylgir fjármála-
kreppum.
Fjármálaráðherra
líst vel á bankaskatt
Ríkisstjórnir Bretlands, Frakklands og Þýskalands tilkynntu í gær að þær ætli
að leggja sérstakan skatt á bankastofnanir. Steingrímur J. Sigfússon fjármála-
ráðherra segir hug sinn standa til þess að það verði skoðað hér á landi.
Ríkisstjórnir Bretlands, Frakklands og Þýskalands tilkynntu sameiginlega í
gær að þær hygðust leggja sérstakan skatt á bankastofnanir til að vernda
skattgreiðendur frá þeim kostnaði sem fylgir fjármálakreppum.
Í yfirlýsingunni segir að markmið þjóðanna þriggja sé að tryggja að
fjármálastofnanir leggi sanngjarnan hluta af mörkum til ríkisins sem end-
urspegli áhættuna sem þær valda fjármálakerfinu. Að auki á skatturinn að
hvetja banka til að breyta efnahagsreikningum sínum þannig að áhætta
minnki. Stærð skattsins skal fara eftir hagnaði hvers banka fyrir sig.
Í Þýskalandi er vinna við frumvarp þegar hafin en í Bretlandi og Frakklandi
er vinna skemmra á veg komin.
Svíar urðu fyrstir í heiminum til að leggja á sérstakan bankaskatt í
fyrra en í kjölfarið hefur slík skattlagning verið til umræðu víðast hvar í
heiminum.
Bankaskatti komið á í Evrópu
STEINGRÍMUR J.
SIGFÚSSON
MAGNÚS ORRI
SCHRAM
Magnús Orri Schram, þing-
maður Samfylkingarinnar, setti
fram hugmyndir um sérstakan
bankaskatt í ræðustól Alþingis
hinn 10. júní síðastliðinn en þær
vöktu töluverða athygli.
„Við núverandi stöðu ríkisfjár-
mála finnst mér að þeir sem séu
mest aflögufærir eigi að leggja
meira til. Þannig hef ég nálgast
umræðuna hvað varðar skatt-
lagningu einstaklinga og fjár-
magnstekjuskatt og mér finnst
það sama eiga að gilda um fyrir-
tæki. Hin röksemdin er sú að ég
tel að stór hluti af þeim vanda-
málum sem við eigum að glíma
við í dag megi rekja til banka-
starfsemi og þess vegna tel ég
auðvelt að færa rök fyrir því að
þeir eigi að leggja sérstaklega
inn í endurreisnina,“ sagði Magn-
ús Orri í samtali við Fréttablað-
ið og bætti því við að hugmyndir
sínar hefðu fallið í góðan jarðveg
innan þingflokks Samfylkingar-
innar.
Starfshópur á vegum fjármála-
ráðuneytisins vinnur um þessar
mundir að tillögum í skattamál-
um. Starfshópnum er ætlað að
skila áfangaskýrslu eigi síðar en
15. júlí. Steingrímur J. Sigfússon
segir öruggt að starfshópurinn
muni fara yfir þessa hugmynd
eins og aðrar. magnusl@frettabladid.is
DÓMSMÁL Hæstiréttur hefur
sýknað húðflúrara af kynferðis-
broti gegn stúlku og broti gegn
barnaverndarlögum. Jafnframt
var einkaréttarkröfu stúlkunn-
ar vísað frá héraðsdómi, þar
sem maðurinn var sýknaður
af sakargiftum um brot gegn
henni.
Stúlkan kom ásamt vinkonu
sinni og kærasta á stofuna til
húðflúrarans til að fá sér húð-
flúr. Eftir það bar hún á hann
áðurgreindar sakir.
Hæstiréttur taldi framburð
vitnanna óljósan og mjög á
reiki. Yrði sakfelling ekki reist
á honum. Húðflúrarinn neitaði
staðfastlega öllum sakargiftum.
- jss
Einkaréttarkröfu vísað frá:
Húðflúrari var
sýknaður af
kynferðisbroti
LÖGREGLUMÁL Lögreglan á höfuð-
borgarsvæðinu fann eitt kíló af
hassi í bifreið í Árbæ í Reykjavík
um hádegisbil í fyrradag.
Umráðamaður bílsins, karl-
maður um þrítugt, var handtek-
inn. Hann hefur áður komið við
sögu hjá lögreglu. Í kjölfarið var
framkvæmd húsleit í íbúð í fjöl-
býlishúsi á höfuðborgarsvæð-
inu en í henni fundust nokkrir
tugir kannabisplantna. Á sama
stað var einnig lagt hald á fáeina
muni sem grunur leikur á að séu
þýfi.
Lögreglan minnir á fíkniefna-
símann 800-5005. Í hann má
hringja nafnlaust til að koma á
framfæri upplýsingum um fíkni-
efnamál. - jss
Karlmaður handtekinn:
Fundu kíló af
hassi í bifreið
HASS Kíló af hassi reyndist vera í bifreið
sem lögregla stöðvaði í fyrradag.
Fjórir sóttu um
Fjórir sækja um starf hæstaréttardóm-
ara. Þau eru Sigríður Ingvarsdóttir
héraðsdómari, Sigrún Guðmunds-
dóttir héraðsdómari, Viðar Már
Matthíasson, settur hæstaréttardóm-
ari, og Þorgeir Örlygsson, dómari
við EFTA-dómstólinn í Lúxemborg.
Skipað verður í embættið í ágúst.
HÆSTIRÉTTUR
VEISTU SVARIÐ?