Fréttablaðið - 23.06.2010, Blaðsíða 11

Fréttablaðið - 23.06.2010, Blaðsíða 11
MIÐVIKUDAGUR 23. júní 2010 11 Innbyrðis deilur andstæð- inga hvalveiða á ársfundi Alþjóðahvalveiðiráðsins virðast ætla að koma í veg fyrir að samkomulag takist um málamiðlun, sem fæli í sér takmarkaðar hvalveið- ar. Andrúmsloft innan ráðs- ins hefur þó batnað. „Ég er ekki bjartsýnn á að sam- komulag náist á fundinum,“ segir Tómas H. Heiðar, aðalfulltrúi Íslands í Alþjóðahvalveiðiráðinu, sem staddur er á ársfundi ráðsins í Agadír í Marokkó. Á fundinum, sem hófst á mánu- dag og stendur fram á föstudag, var lögð fram málamiðlunartil- laga sem átti að koma á sáttum milli þeirra ríkja ráðsins sem eru andvíg hvalveiðum og hinna sem stunda hvalveiðar. Tillagan felur það í sér að aldarfjórðungs- bann við hvalveiðum verði í reynd numið úr gildi, en í staðinn verði vernd hvala áfram tryggð með því að veita þeim þremur ríkjum, sem enn veiða hvali þrátt fyrir bannið, það er Íslandi, Noregi og Japan, leyfi til að veiða hvali í takmörk- uðu magni samkvæmt kvótaút- hlutun árlega frá ráðinu. „Fundurinn hefur hins vegar snúist upp í innbyrðis deilur milli andstæðinga hvalveiða,“ segir Tómas. „Sum þessara ríkja eru ekki reiðubúin til að fallast á neina málamiðlun sem fæli í sér aðrar hvalveiðar en frumbyggja- veiðar.“ Þar fara fremst í flokki Ástralía, Brasilía og önnur Suður- Ameríkuríki, ásamt Bretlandi og fleiri Evrópusambandsríkjum. „Við áttum frekar von á að athyglin á fundinum myndi bein- ast að hvalveiðiríkjunum þremur og andstöðu þeirra við hugsanlegt viðskiptabann,“ segir Tómas, og á þar við hugmynd, sem höfð var innan sviga í texta málamiðlunar- tillögunnar, um að takmörkuðum hvalveiðum myndi fylgja afdrátt- arlaust bann við því að selja hval- kjöt milli landa. Hvalveiðiríkin þrjú hafa verið andvíg þessari tillögu. „Fyrir útflutningslandið Ísland væri alls ekki hægt að fallast á takmarkan- ir á viðskiptum með sjávarafurð- ir sem aflað er með sjálfbærum hætti,” segir Tómas. Fyrirfram var óvíst hvort þessi tillaga myndi ná fram að ganga á fundinum. Á það hefur hins vegar ekki enn reynt, vegna fyrrgreinds ágreinings milli andstæðinga hvalveiða um kvótaveiðarnar. Tómas segir hins vegar að fram- tíðarhorfur hvalveiðiráðsins hafi skánað mjög, en fyrir fundinn var almennt álitið að framtíð ráðsins væri í húfi á þessum fundi. Sam- komulag þyrfti að takast, annars væri hætta á því að ráðið myndi hreinlega leysast upp eða verða nánast marklaus stofnun. „Það er almennt mat manna að andrúmsloftið innan ráðsins hafi batnað mjög undanfarið ár. Ríki, sem eru á öndverðum meiði, hafa farið að vinna meira saman. Það hafa verið hreinskiptin samskipti, aukin gagnkvæm virðing og betri skilningur á afstöðu hver annars. Þetta vekur vonir um að ráðið geti starfað áfram á næstu árum, þótt samkomulag takist ekki um þessa málamiðlun.“ © GRAPHIC NEWS 289 69 562 12,393 6,056 5,519 52 8,621 1,131 26 7 2,794 3,934 Framtíð hvalveiða rædd Allar hvalveiðar verði undir eftirliti Alþjóða- hvalveiðiráðsins í tíu ár. Hvalveiðilönd fallist á kvótaúthlutun ráðsins og taki ekki einhliða ákvarðanir um veiðar samkvæmt ákvæðum um vísindaveiðar eða annað slíkt. Hvalveiðiríki fái árlegar veiðiheimildir til ársins 2020. Alls verði leyft að veiða nærri 12.000 hvali. Eftirlitskerfi verði sett upp, m.a. eftirlitsmenn um borð í skipum, erfðaefnisskrá yfir veidda hvali og sýnishorn verði tekin á mörkuðum til að stöðva ólöglegar veiðar. Hvalveiðar verði eingöngu heimilar þeim þremur löndum sem nú þegar stunda þær, nefnilega Japan, Ísland og Noregur. Ekki verði þó hróflað við veiðum frumbyggja. Undanfarinn aldarfjórðung hafa hvalveiðar verið bannaðar. Frumbyggjar fimm ríkja hafa þó haft heimild til að veiða hvali, auk þess sem fimm ríki hafa veitt hvali í vísindaskyni eða í krafti fyrirvara sem þau hafa gert við bannið. Þrjú þeirra, Ísland, Noregur og Japan, veiða enn hvali. VÍSINDAVEIÐAR Japan Noregur Ísland Suður-Kórea* VEIÐAR SKV. FYRIRV. Noregur Rússland* Japan Ísland VEIÐAR FRUMBYGGJA Grænland Rússland (Síbería) Bandaríkin (Alaska) St. Vincent og Grenad. Kanada MEGINATRIÐI MÁLAMIÐLUNARTILLÖGU *Suður-Kórea og Rússland hættu hvalveiðum 1986 Heimild: Alþjóðahvalveiðiráðið Mynd: AP Litlar líkur á sátt í hvalveiðiráðinu Hver er framtíð hvalveiðibannsins? Guðsteinn Bjarnason gudsteinn@frettabladid.is Á ÁRSFUNDINUM Í AGADÍR Tómas H. Heiðar, aðalfulltrúi Íslands í Alþjóðahval- veiðiráðinu, ásamt Ástu Einarsdóttur frá utanríkisráðuneytinu. NORDICPHOTOS/AFP Viðskiptavinir okkar í vildarþjónustu Arion banka fá sinn eigin þjónusturáðgjafa sem setur sig inn í þeirra mál. Persónuleg þjónusta sem miðast við þarfir hvers og eins. Við ætlum að gera betur

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.