Fréttablaðið - 23.06.2010, Side 13
MIÐVIKUDAGUR 23. júní 2010 13
SKREYTTUR ÁHUGAMAÐUR Hann
var vel skreyttur fótboltum og öðru
glingri, þessi eldheiti áhugamaður um
íþróttina sem fylgdist með sjónvarps-
útsendingu í Brasilíu. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
VIÐSKIPTI Verslunarkeðjan Ice-
land heldur sæti sínu sem 13.
stærsta einkafyrirtæki Bret-
lands á nýjum lista Deloitte yfir
100 stærstu einkafyrirtæki Bret-
lands. Fjallað er um listann í
Sunday Times og Wales Online en
höfuðstöðvar Iceland eru í Flints-
hire í Wales.
Methagnaður varð af rekstri
Iceland á síðasta reikningsári
keðjunnar sem lauk í lok mars
síðastliðnum. Veltan jókst um 9
prósent á árinu og nam tæpum
2,3 milljörðum punda.
Iceland er að mestu í eigu
íslenskra aðila. Þar af heldur
skilanefnd Landsbankans á 67
prósenta hlut og Glitnir á 10 pró-
senta hlut. Hagnaðurinn jókst um
12 prósent og nam 135,4 millj-
ónum punda fyrir skatta eða um
25,5 milljörðum kr.
100 stærstu á Bretlandi:
Iceland er í
þrettánda sæti
Skallaði framtennur lausar
Karlmaður hefur verið dæmdur í
þrjátíu daga skilorðsbundið fangelsi
fyrir líkamsárás á árinu 2008. Hann
skallaði og sló mann eftir orðaskak
á Prikinu með þeim afleiðingum að
framtennurnar í þeim síðarnefnda
losnuðu. Hann fær 400 þúsund í
skaðabætur.
DÓMSMÁL
SAMFÉLAGSMÁL Íbúar við Kjarr-
móa í Reykjanesbæ hafa bundist
samtökum um nágrannavörslu í
samstarfi við bæjarfélagið. Munu
íbúarnir fylgjast með húsum
nágranna sinna þegar þeir eru að
heiman og gæta eigna.
Nágrannavarsla er nú skipu-
lögð við sex götur í Reykjanesbæ
en áður hafa íbúar við Þórsvelli,
Birkiteig, Sjafnarvelli, Fífudal og
Lágseylu hafið slíkt samstarf.
Reykjanesbær hefur boðið
íbúum sínum upp á nágranna-
vörslu frá því síðasta sumar. Um
er að ræða samstarfsverkefni
Umhverfissviðs bæjarins og for-
varnadeildar lögreglunnar á Suð-
urnesjum. - mþl
Íbúar við Kjarrmóa:
Nágrannavarsla
í Reykjanesbæ
STEYTA HNEFA Íbúar Kjarrmóa ræða
nágrannavörsluna við lögreglumann.
Ekið á kindur á Vestfjörðum
Tvö lömb drápust þegar þau lentu
fyrir mótorhjóli í Mjóafirði á föstudag.
Ökumaður hjólsins meiddist lítillega.
Alls drápust níu kindur og lömb í
umferðinni á Vestfjörðum í síðustu
viku.
LÖGREGLUFRÉTTIR
HEILBRIGÐISMÁL Steinn Jónsson, for-
maður Læknafélags Reykjavíkur,
segir í grein í Fréttablaðinu í dag
neikvæðar og villandi upplýsingar
einkenna umræðu um laun lækna í
fjölmiðlum undanfarið.
Til dæmis sé fullyrt að laun
lækna hafi lækkað minna en laun
annarra heilbrigðisstétta. Einnig
hafi verið vakin athygli á því að
laun lækna á landsbyggðinni hafi
lækkað minnst. Skýringin sé hins
vegar sú að stór hluti launa lækna
byggist á yfirvinnu, og hún sé mest
úti á landi. Þá gleymist að árið 2009
hafi læknar gefið eftir samnings-
bundna hækkun upp á 9,6 prósent.
Í grein í Læknablaðinu segir
auk þess Birna Jónsdóttir, formað-
ur Læknafélags Íslands, Álfheiði
Ingadóttur heilbrigðisráðherra
hafa gefið í skyn að laun lækna
séu almennt á bilinu 2-3 milljónir á
mánuði. „Staðreyndin er hins vegar
sú að laun lækna í 100% starfi hjá
ríkinu eru í kringum ein milljón
króna.“ Tíu prósent lækna hafi hins
vegar tekjur hærri en 1,5 milljón-
ir á mánuði og aðeins rúmur tugur
lækna sé með tekjur yfir tveimur
milljónum.
- gb / sjá síðu 14
Formaður Læknafélags Reykavíkur mótmælir umfjöllun um laun lækna:
Neikvæð og villandi umræða
FRÁ BORGARSPÍTALANUM Laun lækna
eru að stórum hluta byggð á mikilli
yfirvinnu. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA
DÓMSMÁL Lögreglustjórinn á
Húsavík hefur ákært tvo menn
fyrir grófa líkamsárás. Þeim
er gefið að sök að hafa aðfara-
nótt sunnudagsins 9. ágúst 2009,
á Þórshöfn, slegið mann hnefa-
höggum og sparkað í hann liggj-
andi. Tennur brotnuðu í fórnar-
lambinu, það fékk glóðarauga og
áverka á hnakka.
Gerð er krafa um að árásar-
mennirnir rúmlega 450 þúsund í
skaðabætur. Mennirnir neituðu
sök við þingfestingu og fer aðal-
meðferð fram síðar. - jss
Árásarmenn neituðu sök:
Kýldu mann og
brutu tennur