Fréttablaðið - 23.06.2010, Qupperneq 19
MIÐVIKUDAGUR 23. júní 2010 3
„Okkur fannst kominn tími til að
bjóða Íslendingum á besta aldri í
sömu ferðir og hafa verið uppseld-
ar hjá okkur ár eftir ár hjá erlend-
um ferðamönnum, og gefa þeim
tækifæri á að upplifa land sitt
og náttúru með augum erlendra
jafnaldra sinna sem heimsótt og
heillast hafa af landinu í gengum
tíðina,“ segir Hildur Jónsdóttir hjá
Vita um skemmtilega og fræðandi
hringferð sem farin verður um
Ísland 22. júlí. Innifalin er íslensk
leiðsögn, gisting í sex nætur á
hótelum, þriggja rétta kvöldverð-
ir, sameiginlegur morgunverður
fyrir ferðir, bátsferð á Jökuls ár-
lóni, Steinasafn Petru, Laufás,
Víðimýrarkirkja og kvöldvökur.
„Íslendingar eru óvanir skipu-
lögðum hringferðum um land sitt
og munu örugglega uppgötva það
á alveg nýjan hátt. Það þekki ég
eftir að hafa verið leiðsögumað-
ur til margra ára með erlenda
ferðamenn um Ísland þar sem ég
fékk góða sýn á landið með augum
ferðamannsins. Við Íslendingar
ferðumst oft frá einum stað til ann-
ars án þess að stoppa og förum á
mis við svo margt fallegt og spenn-
andi á leiðinni, en með augum
gestsins verður upplifunin ný og
öðruvísi; maður gefur sér tíma til
að staldra við og horfa í kringum
sig, og skilur að Ísland er alls ekki
veðurháð því töfrarnir eru alltaf
jafn heillandi þegar landið breytir
um svip hverju sinni.“
thordis@frettabladid.is
Séð með auga gestsins
Nú gefst Íslendingum á besta aldri tækifæri á að fara skemmtilega og fræðandi hringferð um Ísland, en
ferðin er sú allra vinsælasta meðal erlendra ferðamanna um landið, að sögn Hildar Jónsdóttur hjá Vita.
Hildur Jónsdóttir hjá Vita kynntist landi
sínu upp á nýtt sem fararstjóri með
erlenda ferðamenn um Ísland.
Steinasafn Petru á Stöðvarfirði er spennandi áfangastaður þar sem stórbrotnar gersemar náttúrunnar eru geymdar á fögrum stað.
FRÉTTABLAÐIÐ/SVAVAR
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/A
R
N
ÞÓ
R
Listigarður
Garðplöntusýningarsvæði og blóma-skúlptúrar.
Markaður og dagskrá á sviði
Íþróttahús
Blómasýning á afskornum blómum og potta-
plöntum. Fyrirtæki kynna starfsemi sína.
Salurinn í grunnskólanum
Fræðslufyrirlestrar um garðyrkju.
Barnaheimar BYKO
Á barnasvæðinu verður boðið upp á ýmsa
skemmtun fyrir börnin sem tengist sól og sumri.
Hveragarðurinn
Í Hveragarðinum er boðið upp á leir- og hvera-
fótaböð. Egg soðin í bullandi hverum og land-
námshænur á vappi.
125 ára afmælishátíð GÍ
Smágarðar
Sýning á smágörðum úr smágarðasamkeppni
Félags íslenskra landslagsarkitekta og
Hveragerðisbæjar frá 2009.
Landslagsarkitektar kynna starfsemi sína.
Blómaskreytingar
Frumlegar skreytingar frá félagi blómaskreyta.
Garðasúpa
Íbúar á eftirtöldum stöðum bjóða gestum og
gangandi upp á súpu. Í Bröttuhlíð 4, Lyngheiði 1,
Kambahrauni 10, Grænumörk 1, Laufskógum 40
og Hraunbæ 20. Allir velkomnir!
Strætó
Strætóferðir frá bílastæði að sýningasvæði,
laugardag og sunnudag frá kl. 13-17
A
D
G
B
E
H
C
F
I
J
S
LYNG
RÐ
UR
I
I
I
H
I
I
A
G
F
C
D
E
B
J
J
J
J
J
J
Ö
MÖR
Sýningarsvæði og uppákomur
A
R
Hvalaskoðun er vinsæl skemmt-
un ferðamanna og hægt að
skreppa í hvalaskoðunarsiglingu
víða um land, meðal annars frá
Húsavík.
Boðið hefur verið upp á hvalaskoð-
un frá Húsavík allt frá árinu 1995
þegar Norðursigling hóf að sigla
með ferðamenn út á Skjálfandaflóa
til að skyggnast eftir hvölum.
Fyrirtækið hefur gert upp gamla
íslenska eikarbáta og þann 15. júní
síðastliðinn var báturinn Garðar
sjósettur eftir veru í slipp með nýtt
mastur. Vinnu við bátinn er þó ekki
lokið og sigldi hann einn hring um
höfnina áður en hann lagðist aftur
að bryggju en áætlað er að sigla
með ferðamenn á honum í sumar.
Eins er von á skonnortunni Hildi
fljótlega til Húsavíkur og geta þá
ferðamenn horft eftir hvölum af
þilfari hennar.
Algengustu tegundirnar sem
sjást í hvalaskoðunarferðum frá
Húsavík eru hrefna og hnúfubakur
en eins geta ferðamenn notið fugla-
lífsins sem þrífst á eyjunum Lund-
ey og Flatey á Skjálfandaflóa.
Sjá nánar á vefsíðunni www.
nordursigling.is. - rat
Hvalaskoðun og
fjörugt fuglalíf
Hvalaskoðun getur verið stórkostleg upplifun.
Siglt með ferðamenn til hvalaskoðunar
frá Húsavík. MYND/E.ÓL