Fréttablaðið - 23.06.2010, Page 25
MIÐVIKUDAGUR 23. JÚNÍ 2010 5sumar og börn ● fréttablaðið ●
● SUMARLEGT, HOLLT OG SEÐJANDI Eftir hressilegan
leik úti í garði koma krakkarnir gjarnan sársvangir inn. Þá er
sniðugt að skella í ískaldan og hollan skyrhristing.
Ávaxtasjeik fyrir 4 til 5 svanga krakka
Stór dós af hreinu skyri
1 stk. banani
1 bolli af jarðarberjum
½ bolli bláber
1 bolli ísmolar
smá sletta af ávaxtasafa
Allt sett í blandara og blandað vel eða þar til sjeikinn er orðinn
silkimjúkur. Hellið í glös og setjið litrík rör í sjeikinn.
æti í litla munna. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
k og vini
kar og frískandi gulrætur eru hollar.
akað og ilmandi kryddbrauð.
Látið renna vel af túnfiskinum á sigti.
Blandið öllu saman og smakkið til með
kryddinu, stundum set ég smá tómatsósu
til að fá mýkt í bragðið. Þessi uppskrift
passar vel fyrir börn og mér finnst gott að
kaupa langskorið brauð og setja salat á
milli tveggja sneiða og skera út að vild.
Hið klassíska kryddbrauð
3 dl heilhveiti
3 dl haframjöl
3 dl hrásykur/hunang eða 2 dl aga-
vesýróp
2 tsk. matarsódi
2 tsk. kanill
1 tsk. kakó
½ tsk. negull
½ tsk. engifer
2½ dl mjólk (e.t.v. aðeins meira ef
notað er agavesýróp)
Allt hrært saman, sett í smurt, aflangt
form og bakað við 180°C í um 1 klst.
Þetta brauð er vinsælt hjá börnum. Þessi
uppskrift er ekki mín en ég stílfærði hana
og baka því Sólkötlu finnst þetta dásam-
lega gott brauð, eins og hún segir sjálf.
VILDARÁSKRIFT AÐ STÖÐ 2 INNIHELDUR: AUK STIGVAXANDI AFSLÁTTAR. 512 5100 STOD2.IS VERSLANIR VODAFONE VERSLANIR OG ÞJÓNUSTUVER SÍMANS 800 7000
TRUE BLOOD
BLÓÐ ER ÞYKKARA EN VATN
...OG BRAGÐBETRA
KL. 22:20
GOSSIP GIRL
UNG, RÍK, SPILLT
OG DEKRUÐ
KL. 20:05
SJÓÐHEITIR ÞÆTTIR
SNÚA AFTUR Í KVÖLD
● SPENNANDI BORÐHALD ÚTI VIÐ Ferð-
ir á leikvöll eru alltaf spennandi og skemmtileg-
ar í hugum barnanna. Ferðina má gera
enn meira spennandi með því að taka
nesti með. Samlokur smurðar með osti
og gúrku eru klassískar í nestisboxið eða
með smurosti og eggjum. Hentugt er að
grípa með drykki í fernum en með smá
fyrirhyggju má hita kakó til að hafa með
á brúsa eða blanda djús í flösku til að taka
með. Til að kóróna borðhaldið á leikvellinum mætti svo pakka niður
dúk á borðið og láta krakkana skreyta borðið með steinum og blómum
sem þau finna í nágrenninu.