Fréttablaðið - 23.06.2010, Side 34
18 23. júní 2010 MIÐVIKUDAGUR
timamot@frettabladid.is
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli og
útfarir má senda á netfangið
timamot@frettabladid.is.
Auglýsingar á að senda á
auglysingar@frettabladid.is eða hringja í síma
512 5000.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
Sigurgeir Sigurdórsson
Hrísateigi 14,
lést laugardaginn 19. júní. Útför hans fer fram frá
Laugarneskirkju fimmtudaginn 24. júní kl. 13.
Kristín Guðbjörnsdóttir
Sigrún Sigurgeirsdóttir Jón G. Sigurðsson
Sólveig Sigurgeirsdóttir Helgi Þ. Jónsson
Þuríður Erla Sigurgeirsdóttir Ágúst Eiríksson
Ingunn Sigurgeirsdóttir
Svanhvít Sigurgeirsdóttir
Kristín Sigurgeirsdóttir Sigfús A. Gunnarsson
Kristinn Sigurgeirsson Sigfríður Ragna Bragadóttir
Guðmundur Sigurgeirsson
afabörn og langafabörn.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
Guðbrandur Sveinsson
Unhól, Þykkvabæ,
lést á dvalar- og hjúkrunarheimilinu Lundi,
Hellu, þriðjudaginn 15. júní. Útförin fer fram frá
Þykkvabæjarkirkju laugardaginn 26. júní, kl. 14.00.
Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir, en þeim sem
vildu minnast hans er bent á Krabbameinsfélagið í
Rangárvallasýslu.
Sigurfinna Pálmarsdóttir
Pálína Svanhvít Guðbrandsdóttir Birgir Óskarsson
Pálmar Hörður Guðbrandsson Jóna Elísabet Sverrisdóttir
Heiðrún Björk Guðbrandsdóttir Kristján Ólafur Hilmarsson
Sigríður Guðbrandsdóttir Valtýr Georgsson
Sveinn Guðbrandsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Móðir okkar, amma, langamma
og systir,
Ásta Ólafsdóttir Beck
Snorrabraut 56 B, Reykjavík,
andaðist á Vífilsstöðum 21. júní.
Ása Beck
Ólöf Una Beck
Ulf Beck
Magnús Jökulsson
Þórunn Magnúsdóttir
Gyða Ólafsdóttir
AARON SPELLING LÉST ÞENNAN DAG
ÁRIÐ 2006.
„Þegar við gerðum Dynasty þá
voru fötin aðalatriðið. Ég held
að fötin hafi haft áhrif á allar
konur í heiminum. Ég fékk svo
mörg bréf að ég held að við
höfum gert hönnuðinn að millj-
ónamæringi.“
Aaron Spelling (1923-2006) var
amerískur kvikmynda- og þátta-
gerðarmaður.
Alþjóðlega ólympíudeginum verður
fagnað í dag. Dagurinn var fyrst hald-
inn fyrir þremur árum en á síðasta
ári tóku um fjórar milljónir manna í
fimm heimsálfum þátt í honum.
„Alþjóðlegi ólympíudagurinn er
haldinn í tilefni af því að alþjóðlega
ólympíunefndin var stofnuð 23. júní
árið 1894,“ segir Þórarinn Alvar
Þórarinsson, verkefnastjóri hjá
Íþrótta- og ólympíusambandi Íslands.
„Þetta er því sérstakur dagur í sögu
íþrótta.“
Forsaga dagsins er sú að árið 1987
stofnaði Alþjóða ólympíunefndin til
Ólympíudagshlaupsins. „Mig minn-
ir að við hérna á Íslandi höfum byrj-
að að hlaupa fljótlega upp úr því. Svo
datt botninn eitthvað aðeins úr því,“
segir Þórarinn og bætir við að mið-
næturhlaup sé þó enn partur af dag-
skránni. „Fyrir þremur árum síðan
breytti Alþjóða ólympíuhreyfingin
aðeins um takt og byrjaði að kalla
þetta Alþjóða ólympíudaginn.“
Markmið Alþjóðlega ólympíudags-
ins er að bjóða fólki að koma saman og
hreyfa sig og kynnast nýjum íþrótta-
greinum, ólympískum hugsjónum og
gildum. „Ólympísku gildin eru ávallt
að gera sitt besta, sýna vináttu og virð-
ingu,“ segir Þórarinn.
Dagskrá dagsins hefst í Egilshöll
klukkan eitt. „Þar verða íþróttaþrauta-
brautir en það eru stöðvar með alls
konar íþróttum og æfingum. Ólymp-
íufarar verða á staðnum og í lok dag-
skrárinnar klukkan þrjú verður reynt
að setja Íslandsmet í að mynda ólympíu-
hringina með eins mörgu fólki og hægt
er,“ upplýsir Þórarinn en metið eiga um
fimm hundruð börn í Digranesskóla
sem sett var árið 2001. „Við ætlum að
sjá hvort við getum gert betur og hvetj-
um sem flesta til að koma og taka þátt.
Það verður stemning í kringum það.“
Seinni hluti dagskrárinnar er í
Laugardalnum. „Þá verður kynning á
hafnabolta og hjólaskíðum sem teng-
ist gönguskíðaíþróttinni. Svo verða
skylmingar í Skylmingamiðstöðinni
undir norðurenda stúkunnar á Laug-
ardalsvelli. Sýningarleikur verður í
sundknattleik í Laugardalslaug,“ segir
Þórarinn en dagskránni lýkur með mið-
næturhlaupinu klukkan tíu.
Að sögn Þórarins er áætlað að halda
daginn árlega. „Hann fer vonandi bara
stækkandi ár frá ári. ÍSÍ verður hundr-
að ára árið 2012 og þá verða Ólympíu-
leikarnir í London. Það stendur til að
reyna að byggja daginn upp fram að
því,“ segir Þórarinn en fjórar millj-
ónir frá um tvö hundruð þjóðum og
fimm heimsálfum tóku þátt í deginum í
fyrra. „Við erum að hvetja fólk á öllum
aldri og helst fjölskyldur til að koma og
taka þátt í deginum saman.“
martaf@frettabladid.is
ALÞJÓÐLEGI ÓLYMPÍUDAGURINN: HALDINN Á 116 ÁRA AFMÆLINU
Fjórar milljónir tóku þátt
VINÁTTA OG VIRÐING Þórarinn ásamt Elmari Bergþórssyni og krökkum frá íþróttanámskeiði Ármanns/Þróttar. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
Listasafn Einars Jónssonar var vígt fyrir 87 árum.
Með því eignuðust Íslendingar sitt fyrsta listasafn.
Einar valdi safninu stað á Skólavörðuhæð sem þá
var eyðiholt í útjaðri bæjarins. Safnið var fyrsta
byggingin á hæðinni.
Safnið er teiknað af Einari sjálfum og segja
má að byggingin sé því stærsta verk hans. Einar
Erlendsson húsameistari áritaði þó teikninguna.
Einar Jónsson bjó sér heimili í safninu, vann verk
sín þar og sýndi.
Forsagan að byggingu safnsins er sú að árið
1909 bauð Einar Jónsson íslensku þjóðinni öll verk
sín að gjöf með því skilyrði að reist yrði yfir þau
safnhús. Það var hins vegar ekki fyrr en árið 1914
sem Alþingi þáði gjöfina. Safnið var fjármagnað
með tíu þúsund krónum frá Alþingi og í landssöfn-
un söfnuðust tuttugu þúsund til viðbótar.
Í safninu eru í dag hátt á þriðja hundrað verk
sem spanna sextíu ára starfsferil Einars. Þar á
meðal eru útskorin æskuverk, höggmyndir, mál-
verk og teikningar. Í garðinum við safnið eru svo
26 bronsafsteypur af verkum listamannsins.
Heimild: www.skulptur.is
ÞETTA GERÐIST: 23. JÚNÍ 1923
Listasafn Einars Jónssonar vígt
MERKISATBURÐIR
1893 Danska snekkjan Dag-
mar kemur til Reykjavík-
ur með sveit sjóliðsfor-
ingjaefna. Meðal þeirra er
Carl Danaprins sem verð-
ur síðar konungur Norð-
manna, Hákon sjöundi.
1925 Skáksamband Íslands
stofnað.
1926 Varðskipið Óðinn kemur
til Reykjavíkur.
1930 Listsýning opnuð í skála
sem byggður hafði verið
á baklóð Alþingishússins.
1967 Willy Brandt, þáverandi
utanríkisráðherra Vestur-
Þýskalands, kemur til Ís-
lands.
1977 Þjóðveldisbærinn í Þjórs-
árdal formlega opnaður.
Tilraunalandið sem sett var upp í Nor-
ræna húsinu á Barnamenningarhátíðinni í
apríl verður á ferð um hverfi borgarinnar
í sumar. Börn á sumarnámskeiðum ÍTR fá
að njóta sýningarinnar hjá frístundamið-
stöðvum ÍTR.
Á farandsýningu Tilraunalandsins geta
börnin komið og kannað undirheima vís-
indanna og samkvæmt lýsingu sýning-
arinnar skapar hún hvetjandi og örvandi
andrúmsloft og gefur gestum nýja sýn á
náttúruvísindin og tækni. Tilraunaland-
ið sýnir náttúruvísindin í nýju samhengi
á skemmtilegan og fjörugan hátt með
áherslu á gagnvirkni og upplifun allra
skilningarvita.
Meðal tækja á farandsýningunni eru
kaplakubbar, sólarúrið, strimlaspegill, sól-
arrafhlaða með viftu og safablandara og
þá verður einnig hægt að ganga á línu. Til-
raunalandið er samstarfsverkefni Norræna
hússins og Háskóla Íslands.
Í dag verður sýningin við Austurbæjar-
skóla frá klukkan tíu til hálf fimm. Nánari
upplýsingar um staðsetningu farandsýn-
ingarinnar má finna á vef Reykjavíkur-
borgar, www.reykjavik.is - mmf
Á ferð um borgina í sumar
UNDIRHEIMAR VÍSINDA Tilraunalandið verður á ferð
um borgina í sumar. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA