Fréttablaðið - 23.06.2010, Síða 42
26 23. júní 2010 MIÐVIKUDAGUR
FÓTBOLTI Enska landsliðið þarf að
vinna Slóvena í dag til að komast í
16 liða úrslitin á HM en afar hæpið
er að jafntefli muni duga Englend-
ingum til að komast áfram.
Ef franska landsliðið hefði ekki
boðið upp á farsa sem Soleil-sirk-
usinn væri stoltur af væri enska
landsliðið líklega enn meira í
sviðsljósinu. Sögur um rifrildi og
ósætti innan liðsins ganga fjöllum
hærra og Wayne Rooney þurfti að
biðjast afsökunar á því að móðga
enska stuðningsmenn.
John Terry gagnrýndi svo
Capello fyrir að nota ekki Joe Cole
meira og þurfti að biðja þjálfara
og liðsfélaga afsökunar líka.
„Það er engin krísa innan liðs-
ins. Við funduðum um leikinn með
Capello vegna leiksins gegn Alsír,
þetta var ekkert annað,“ segir
Frank Lampard um meintan krísu-
fund Englendinga á sunnudag.
Hann segir að enginn leik-
maður liðsins hafi staðist vænt-
ingar á mótinu. „Við höfum allir
verið undir pari,“ sagði Lamp-
ard sem hefur líklega aldrei spil-
að golf þar sem það þykir ein-
mitt gott að vera undir pari.
“Við verðum að vera
hreinskilnir,
enginn hefur
staðið sig í
samræmi við
vænting-
arnar. Þú
ert bara
ei ns og
góður og
síðasti leik-
ur og sá
mikilvæg-
asti er sá
næsti.”
- hþh
England þarf sigur í dag:
Ekki í samræmi
við væntingar
FÓTBOLTI Ef Serbar vinna Ástrala
í D-riðli fer sigurvegarinn úr leik
Gana og Þýskalands með þeim
áfram í 16-liða úrslitin. Gana
dugir jafntefli en það er síðasta
von Afríkuríkis um að komast
áfram. Ástralía kemst áfram ef
það vinnur Serbíu og Þýskaland
tapar.
Joachim Löw, þjálfari Þýska-
lands, trylltist þegar liðið hans tap-
aði fyrir Serbum. Það vann Ástrala
4-0 í fyrsta leiknum. „Við áttum
í miklum vandræðum en örlögin
eru í okkar höndum og markatalan
okkar er góð,“ sagði Löw.
„Við þurfum bara eitt stig gegn
Þjóðverjum. Við höfum enn ekki
tapað á mótinu og erum bjartsýn-
ir á að komast áfram,“ sagði Mil-
ovan Rajevac, þjálfari Gana. - hþh
Þýskaland þarf sigur:
Örlögin eru í
okkar höndum
REIÐUR Joachim Löw í leiknum gegn
Serbíu sem tapaðist 1-0. FRÉTTABLAÐIÐ/AFP
Freistaðu gæfunnar í símanúmerinu 907-3030 og leggðu góðu málefni lið.
Hvert símtal kostar 3000 kr. Söfnunarféð rennur óskert til Barnaspítala hringsins,
Mæðrastyrksnefndar, SOS Barnaþorpa, Blátt áfram, Umhyggju og Barnaheilla
í Vestmannaeyjum.
Heppnir aðilar eiga kost á að taka þátt í golfmótinu, fá áritaða treyju
frá Hermanni Hreiðars og Eiði Smára, birgðir af Soccerade eða áskrift
að Stöð 2 sport.
Hringdu í 907-3030 og vertu þátttakandi í Herminator.
HERMINATOR
Langar þig á Herminator góðgerðarmótið í golfi næsta laugardag?
FÓTBOLTI Úrúgvæ og Mexíkó unnu
sér í gær sæti í 16 liða úrslitum
HM í Suður-Afríku en þessi lið
urðu í efstu tveimur sætum A-rið-
ils. Úrúgvæ vann riðilinn örugg-
lega þökk sé 1-0 sigri á Mexíkó
í gær og fékk reyndar ekki á sig
mark í allri riðlakeppninni.
Suður-Afríka vann á sama tíma
2-1 sigur á Frökkum og hlaut fjög-
ur stig, rétt eins og Mexíkó sem
komst áfram á betra markahlut-
falli. Niðurlæging franska lands-
liðsins fullkomnaðist í tapi liðsins
í gær en ekki er nema áratugur
síðan að Frakkar voru ríkjandi
heims- og Evrópumeistarar.
„Ég upplifi mikla sorg, ekki bara
fyrir mig heldur fyrir hönd
frönsku þjóðarinnar,“
sagði landsliðsþjálfari
Frakka, Raymond Domen-
ech. Hann hefur verið afar
umdeildur í starfi síðustu
ár og ekki síst í Suður-
Afríku þar sem honum
lenti upp á kant við
eigin leikmenn.
M a rg i r þei r ra
fengu að kenna á
því í gær og var
fyrirliðabandið
til að mynda tekið
af Patrice Evra
og hann frystur á
bekknum.
„Ég tók í hendur leikmanna
því við höfum upplifað margt
erfitt saman. Við þurfum þó
að taka tapinu með sæmd
og markið sem við skoruð-
um sýndi að við höfum tekið
framfaraskref,“ bætti Domen-
ech við. Markið sem Florent
Malouda skoraði í gær var
eina mark Frakka í allri
keppninni.
Laurent Blanc tekur nú
við þjálfun franska landsliðsins
og ljóst að hann á ærið verk fyrir
höndum.
„Ég óska honum og franska
landsliðinu alls hins besta. Ég verð
helsti stuðingsmaður þess í fram-
tíðinni.“
Malouda bað frönsku þjóðina
afsökunar. „Hegðun okkar var
ekki til fyrirmyndar. Ég vil fyrir
hönd leikmanna biðja alla stuðn-
ingsmenn afsökunar.“
Þrátt fyrir sigur heimamanna
ríkti mikil sorg meðal stuðnings-
manna eftir leik en það gerðist nú
í fyrsta sinn í sögu HM að lið gest-
gjafanna komst ekki áfram upp úr
riðlakeppninni. - esá
Úrúgvæ og Mexíkó komust áfram upp úr A-riðli en Suður-Afríka kvaddi með stæl:
Niðurlæging þeirra frönsku fullkomnuðA-RIÐILL
Frakkland - Suður-Afríka 1-2
0-1 Katlego Abel Mphela (37.), 0-2 Bongani
Khumalo (20.), 1-2 Florent Malouda (70.)
Mexíkó - Úrúgvæ 0-1
0-1 Luis Suarez (43.)
LOKASTAÐAN
Úrúgvæ 3 2 1 0 4-0 7
Mexíkó 3 1 1 1 3-2 4
Suður-Afríka 3 1 1 1 3-5 4
Frakkland 3 0 1 2 1-4 1
B-RIÐILL
Nígería - Suður-Kórea 2-2
1-0 Kalu Uche (12.), 1-1 Jung-Soo Lee (38.), 1-2
Chu Young Park (48.), 2-2 Yakubu, víti (69.).
Grikkland - Argentína 0-2
0-1 Martin Demichelis (77.), 0-2 M. Palermo (89.).
LOKASTAÐAN
Argentína 3 3 0 0 7-1 9
Suður-Kórea 3 1 1 1 5-6 4
Grikkland 3 1 0 2 2-5 3
Nígería 3 0 1 2 3-5 1
16 LIÐA ÚRSLIT
Úrúgvæ - S-Kórea laugardag kl. 14.00
Argentína - Mexíkó sunnudag kl. 18.30
LEIKIR DAGSINS
C-riðill: Slóvenía - England kl. 14.00
C-riðill: Bandaríkin - Alsír kl. 14.00
D-riðill: Gana - Þýskaland kl. 18.30
D-riðill: Ástralía - Serbía kl. 18.30
ÚRSLIT
DOMENECH
Landsliðsþjálfarinn umdeildi
lætur nú af störfum eftir sex
ár sem þjálfari Frakka.
NORDIC PHOTOS/AFP
FÓTBOLTI Argentína tryggði sér
sigur í B-riðli HM í Suður-Afríku
í gær með 2-0 sigri á Grikklandi.
Liðið hlaut fullt hús stiga í B-riðli
en Suður-Kóreu dugði 2-2 jafntefli
gegn Nígeríu til að ná öðru sæti
riðilsins og fylgja þeim argent-
ínsku í 16 liða úrslitin.
Diego Maradona landsliðsþjálf-
ari gerði sjö breytingar á byrjun-
arliði Argentínu enda liðið búið að
tryggja sér sæti í 16 liða úrslit-
unum og var þar að auki nán-
ast öruggt með sigur í riðlinum.
Grikkir eygðu hins vegar enn von
og ætluðu greinilega að stóla á að
markalaust jafntefli myndi duga
til að koma liðinu áfram.
Argentína stjórnaði leiknum
strax frá fyrstu mínútu en náði
ekki að brjóta varnarmúr Grikkja
á bak aftur fyrr en um stundar-
fjórðungur var eftir af leiknum.
Martin Demicheles var þar að
verki með þrumuskoti úr vítateign-
um í kjölfar hornspyrnu. Gamla
brýnið og varamaðurinn Martin
Palermo bætti svo síðara markinu
við skömmu fyrir leikslok er hann
fylgdi eftir skoti Lionel Messi sem
var varið.
Messi tókst þrátt fyrir yfirburði
Argentínu í B-riðli ekki að skora
en hann átti til að mynda þrumu-
skot í stöng í leiknum í gær. Hann
var fyrirliði í fjarveru Javier Mas-
cherano sem var hvíldur í gær.
Þetta var þó engin flugelda-
sýning hjá lærisveinum Marad-
ona sem ber þó að hrósa fyrir þol-
inmæði gegn afar óspennandi og
varnarsinnuðu liði fyrrum Evr-
ópumeistara Grikklands.
Leikur Nígeríu og Suður-Kóreu
var hins vegar mjög fjörlegur.
Nígería komst yfir en Suður-Kórea
svaraði með tveimur mörkum áður
en Yakubu skoraði jöfnunarmark
Nígeríumanna úr vítaspyrnu,
tveimur mínútum eftir að hann
hafði skotið framhjá fyrir opnu
marki af mjög stuttu færi.
Nígeríumenn fengu þó tækifæri
til að bæta fleiri mörkum við en
allt kom fyrir ekki og stigið sem
þeir fengu í gær var það eina í
keppninni. Þeir eru því úr leik
ásamt Grikkjum.
Suður-Kórea er nú komið áfram
upp úr riðlakeppninni í annað
skipti í sögu þjóðarinnar. Fyrra
skiptið var árið 2002 þegar
keppnin var haldin þar í landi og
þá fóru Suður-Kóreumenn alla
leið í undanúrslit. Liðið mætir
sterku liði Úrúgvæ í 16 liða úrslit-
unum á laugardaginn.
Argentínumenn fer á fullri
siglingu og sjóðheitt inn í 16 liða
úrslitin þar sem þeir mæta Mex-
íkó á sunnudaginn kemur.
eirikur@frettabladid.is
Argentína á fullri siglingu
Argentína vann sinn þriðja leik í röð á HM í gær er liðið vann Grikki, 2-0. Diego
Maradona og lærisveinar hans hlutu því fullt hús stiga í riðlakeppninni og fara
því sjóðandi heitir í 16 liða úrslitin. Suður-Kórea komst einnig áfram úr B-riðli.
KLÁRUÐU GRIKKINA Landsliðsþjálfarinn Diego Maradona og fyrirliðinn Lionel Messi
eftir leikinn í gær. NORDIC PHOTOS/AFP