Samtíðin - 01.11.1971, Page 11
SAMTlÐIN
7
spennuna á andlitinu í stað þess að herpa
það einhvers staðar. Bezta vörnin gegn
slapandi húð og hrukkum er heilsuvernd:
hollt mataræði, hreint loft, sólhöð, næg
hreyfing, nógur svefn, hvíld og hugarró.
Ef blóðrás okkar er of hæg, losnar blóðið
ekki við eiturefnin, sem safnast í það og
orsaka m. a. magnleysi og þreytu. Af þessu
orsakast lasleiki. Hann dregur úr heil-
brigðu starfi líkamans, og hvað húðinni
viðvíkur, dvínar starf fitukirtlanna, en
húðvefirnir þorna og skrælna. Ef þeir fá
ekki rétta næringu, missir húðin teygjuna,
hörundið hcrpist saman og hrukkur mynd-
ast, hvað sem aldri okkar líður. Þetta er
oft sjálfskaparvíti, er stafar af kæruleysi
og þekkingarskorti á heilsuvernd.
Jafnframt liollu mataræði og lifnaðar-
háttum má styrkja og fegra hörundið á
ýmsan liátt með hreinsunarefnum, smyrsl-
um o. s. frv. Þegar þú hefur þvegið þér í
framan úr volgu vatni með mildri sápu,
er ágætt að væta svamp í köldu vatni og
döggva hörundið með honum á víxl, t. d.
við eyrnasneplana. Það örvar blóðrásina
um allt andlitið. Láttu svampinn liggja
andartak á augunum til að hvila þau, og
kældu síðan með honum liörundið á and-
litinu, hálsinum og hnakkanum. Eftir að
þú hefur þurrkað það, skaltu örva það
með hressivökva (skin tonic). Síðan er
dagkrcmið borið á það.
+ Varalitun
MARGAR konur nota tvenns konar
varalit samtímis. Fvrst mála þær varirnar
með dökkum lit, en mála því næst yfir
hann með Íjósum. Nú segja snyrtisérfræð-
ingar Helenar Rubinstein, að við eigum að
mála hvora vör með sérstökum lit, ljósari
og dekkri eftir lögun munnsins.
Takmarkalaus hamingja
Ó. E. skrifar: Eg er 20 ára og hef í rúmt
ár verið ástfangin í manni, sem er 50 ára
gamall. Nýlega sagðist hann líka elska mig,
og þá varð ég svo hamingjusöm, að ég
get ekki lýst því með orðum. Þegar ég
trúði foreldrum mínum fyrir þessu, urðu
þeir vægast sagt óttaslegnir. Pabbi benti
mér á, að þessi maður hefði tvisvar verið
giftur og að eftir 20 ár yrði liann sjö-
tugur, en ég ekki nema fertug. Þá varð
ég ákaflega hrygg, og nú leita ég til þín,
Freyja mín, eins og svo margir aðrir, og
spyr þig: Hvað á ég að gera?
SVAR: Takmarkalaus liamingja er það
fágæt, að ég tel óráðlegt að láta hana sér
úr greipum ganga. Auk þess er unnusti
þinn enn á hezta aldri og á að minnsta
kosti 20 ágæt ár fram undan, cf hann lifir
við fulla heilsu. 70 ár cru í dag ekki hærri
aldur, hvað útlit og lífsorku snertir, en 50
ár voru talin áður fyrr, ef ekki lægri. Ég
mundi giftast þessiun manni í þínum spor-
um.
Vill fá hann aftur
B. skrifar: Eftir unaðsleg kynni í meir
en ár vildi pilturinn minn endilega, að
við hættum að liittast og kynntumst nýj-
um félögum til að prófa, hve ást okkar
væri heit, eins og hann komst að orði.
Hann sagðist svo ætla að koma aftur til
mín eftir mánuð og lofaði því hátíðlega,
af því hann sagðist elska mig.
Nú eru liðnir þrír mánuðir, síðan hann
sagði þetta, og hann er ókominn enn! Og
það, sem verra er: Hann cr alltaf með
sömu stúlkunni síðan. Ég er 16 ára, og
hann er 18 ára, og ég þjáist af að fá hann
ekki aftur. Hvað á ég að gera?
SVAR: Mér finnst þetta mjög leiðinlegt
þín vegna, og ég held, að pilturinn þinn
hal’i sýnt þér óheilindi. Ég mundi hiklaust
snúa baki við honum í þínum sporum, af
því ég held, að ekkert vit sé í að trevsta
honum. Dokaðu við og fylgstu með því,