Samtíðin - 01.11.1971, Blaðsíða 33

Samtíðin - 01.11.1971, Blaðsíða 33
SAMTÍÐIN 29 SAMTÍÐIN óskar afmælisbörnum mánaðarins allra heilla £tjwHuAfíá farir nóvember 1971 VATNSBERINN: 21. janúar—19. febrúar Farðu þér hægt í viðskiptum og metnaðar- málum fram til 6. nóv. Það mun velta á ýmsu i ástamálum 6.—15. nóv. Gættu ýtrustu sparsemi 10. og 13., og varastu árekstra 25. og 27. nóv. FISKARNIR: 20. febrúar—20. marz Útlitið í viðskiptum verður gott 6., 7., 14. og 15. nóv., en farðu samt gætilega í þeim efnum 8. og 9. og eins í samskiptum þínum við yfir- völd og fjölskyldu þina 10. og 13. Vertu við ýmsu búin(n) 25. og 27. nóv., og hlustuðu þá vel á, hvað sagt er kringum þig. HRÚTURINN: 21. anarz—20. apríl Kappkostaðu að fylgjast með tímanum. Störf þin og fjármál verða í góðu lagi 6. og 7., en gættu þin í þeim efnum 8. og 9. og eins 13. og 25., hvað viðskiptamálin snertir. Vertu sérlega orðvar 3. og 10. nóv. Haltu kyrru fyrir i nóv- ember. NAUTIÐ: 21. apríl—21. maí Reyndu að hagnast af breytingum, sem verða i þessum mánuði. Varastu fljótræði í viðskipt- um 3. og 5. nóv. Vertu varfærin(n), hvað sam- eiginleg fjármál snertir, 8.—10. nóv. Ráðlegg- ingar vina þinna geta orðið þér kostnaðarsam- ar. Reyna mun á staðfestu þína í þessum mán- uði. TVfBURARNIR: 22. maí—21. júní Viðskipti þín og sameign munu verða fyrir breytingum í þessum mánuði. Þú hagnast á þeim 6., 7., 14. og 15. nóv., en varastu ágreining 8.—9. og andspyrnu 10. og 13. Nauðsynlegt er að sýna lipurð 25. og 27. nóv. KRABBINN: 22. júní—23. júlí Þiggðu hjálp vina þinna og nágranna í at- vinnumálum 6. og 7. nóv. Þú munt finna bata í þeim efnum 14. og 15. Vertu ákveðin(n) í fjár- málunum 3. og 5. Farðu varlega i viðskiptum 10. og 13. Gættu heilsunnar vel 25. nóv., og var- astu vélabrögð annarra 27. LJÓNIÐ: 24. júlí—23. ágúst Ástamálin og annað tómstundagaman verður ánægjulegt 5.—7. nóv., en þú mátt búast við vonbrigðum 8.—9. Ágreiningur kann að rísa milli þín og fjölskyldu þinnar 3. og 5. Reynstu fólkinu þínu holl(ur) 10. og 13. nóv. Gerðu allt, sem þú getur, til að treysta stöðu þína í lifinu, 25. og 26. nóv. MEYJAN: 24. ágTÍst—23. september Reyndu að eyða ágreiningi innan fjölskyldu þinnar einkum 10. og 13. nóv., þegar viðskipta- málin reyna mjög á þolrif ykkar. Notaðu tæki- færið, sem bíður þín á fjármálasviðinu 5., 6. og 18. nóv. Varastu sviksemi annarra 25. og 27. VOGIN: 24. september—23. október Forðastu hvatvísleg viðskipti við samstarfs- fólk þitt eftir 6. nóv. Varastu vinnuslys 10. og 13. Einhver vonbrigði geta steðjað að þér 25. nóv. Bjóddu ekki örðugleikunum heim. SPORÐDREKINN: 24. október—22. nóv. Farðu gætilega í fjármálum 8. og 9. nóv. Varastu slys heima fyrir 3. og 5. Hafðu gætur á börnum. Varastu ógætileg ástamál 10. og 13. Nytfærðu þér aðstoð samstarfsmanna og vina við áform þín 18. nóv. BOGMAÐURINN: 23. nóv.—21. úesember Áhugamál þín munu rætast 6.-—7. og 14.—15. nóv. Hafðu gott samstarf við meðeigendur, fjöl- skyldu, vini og viðskiptavini, meðan þú nýtur vinsælda. Forðastu misskilning i samstarfi 8. og 9. Varastu slys á heimili þínu 10. og 13. nóv. STEINGEITIN: 22. desember—20. janúar Hagnýttu þér nýjungar í starfi þínu 6.—7. og 14. —15. nóv. Farðu varlega 10. og 13. Griptu heppilegt tækifæri i starfi þínu 18. nóv. Forð- astu að móðga yfirmenn þína 25. nóv. ★ Skófatnaður í fjölbreyttu úrvali. ★ Kaupið skóna þar, sem úrvalið er mest. SKÓVERZLUN PÉTURS ANDRÉSS0NAR Laugavegi 17 — Laugavegi 96 — Framnesvegi 2

x

Samtíðin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samtíðin
https://timarit.is/publication/647

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.