Samtíðin - 01.11.1971, Page 33
SAMTÍÐIN
29
SAMTÍÐIN óskar afmælisbörnum mánaðarins allra heilla
£tjwHuAfíá farir nóvember 1971
VATNSBERINN: 21. janúar—19. febrúar
Farðu þér hægt í viðskiptum og metnaðar-
málum fram til 6. nóv. Það mun velta á ýmsu i
ástamálum 6.—15. nóv. Gættu ýtrustu sparsemi
10. og 13., og varastu árekstra 25. og 27. nóv.
FISKARNIR: 20. febrúar—20. marz
Útlitið í viðskiptum verður gott 6., 7., 14. og
15. nóv., en farðu samt gætilega í þeim efnum
8. og 9. og eins í samskiptum þínum við yfir-
völd og fjölskyldu þina 10. og 13. Vertu við
ýmsu búin(n) 25. og 27. nóv., og hlustuðu þá
vel á, hvað sagt er kringum þig.
HRÚTURINN: 21. anarz—20. apríl
Kappkostaðu að fylgjast með tímanum. Störf
þin og fjármál verða í góðu lagi 6. og 7., en
gættu þin í þeim efnum 8. og 9. og eins 13. og
25., hvað viðskiptamálin snertir. Vertu sérlega
orðvar 3. og 10. nóv. Haltu kyrru fyrir i nóv-
ember.
NAUTIÐ: 21. apríl—21. maí
Reyndu að hagnast af breytingum, sem verða
i þessum mánuði. Varastu fljótræði í viðskipt-
um 3. og 5. nóv. Vertu varfærin(n), hvað sam-
eiginleg fjármál snertir, 8.—10. nóv. Ráðlegg-
ingar vina þinna geta orðið þér kostnaðarsam-
ar. Reyna mun á staðfestu þína í þessum mán-
uði.
TVfBURARNIR: 22. maí—21. júní
Viðskipti þín og sameign munu verða fyrir
breytingum í þessum mánuði. Þú hagnast á
þeim 6., 7., 14. og 15. nóv., en varastu ágreining
8.—9. og andspyrnu 10. og 13. Nauðsynlegt er að
sýna lipurð 25. og 27. nóv.
KRABBINN: 22. júní—23. júlí
Þiggðu hjálp vina þinna og nágranna í at-
vinnumálum 6. og 7. nóv. Þú munt finna bata í
þeim efnum 14. og 15. Vertu ákveðin(n) í fjár-
málunum 3. og 5. Farðu varlega i viðskiptum
10. og 13. Gættu heilsunnar vel 25. nóv., og var-
astu vélabrögð annarra 27.
LJÓNIÐ: 24. júlí—23. ágúst
Ástamálin og annað tómstundagaman verður
ánægjulegt 5.—7. nóv., en þú mátt búast við
vonbrigðum 8.—9. Ágreiningur kann að rísa
milli þín og fjölskyldu þinnar 3. og 5. Reynstu
fólkinu þínu holl(ur) 10. og 13. nóv. Gerðu allt,
sem þú getur, til að treysta stöðu þína í lifinu,
25. og 26. nóv.
MEYJAN: 24. ágTÍst—23. september
Reyndu að eyða ágreiningi innan fjölskyldu
þinnar einkum 10. og 13. nóv., þegar viðskipta-
málin reyna mjög á þolrif ykkar. Notaðu tæki-
færið, sem bíður þín á fjármálasviðinu 5., 6. og
18. nóv. Varastu sviksemi annarra 25. og 27.
VOGIN: 24. september—23. október
Forðastu hvatvísleg viðskipti við samstarfs-
fólk þitt eftir 6. nóv. Varastu vinnuslys 10. og
13. Einhver vonbrigði geta steðjað að þér 25.
nóv. Bjóddu ekki örðugleikunum heim.
SPORÐDREKINN: 24. október—22. nóv.
Farðu gætilega í fjármálum 8. og 9. nóv.
Varastu slys heima fyrir 3. og 5. Hafðu gætur
á börnum. Varastu ógætileg ástamál 10. og
13. Nytfærðu þér aðstoð samstarfsmanna og
vina við áform þín 18. nóv.
BOGMAÐURINN: 23. nóv.—21. úesember
Áhugamál þín munu rætast 6.-—7. og 14.—15.
nóv. Hafðu gott samstarf við meðeigendur, fjöl-
skyldu, vini og viðskiptavini, meðan þú nýtur
vinsælda. Forðastu misskilning i samstarfi 8.
og 9. Varastu slys á heimili þínu 10. og 13. nóv.
STEINGEITIN: 22. desember—20. janúar
Hagnýttu þér nýjungar í starfi þínu 6.—7. og
14. —15. nóv. Farðu varlega 10. og 13. Griptu
heppilegt tækifæri i starfi þínu 18. nóv. Forð-
astu að móðga yfirmenn þína 25. nóv.
★ Skófatnaður í fjölbreyttu úrvali.
★ Kaupið skóna þar, sem úrvalið er mest.
SKÓVERZLUN PÉTURS ANDRÉSS0NAR
Laugavegi 17 — Laugavegi 96 — Framnesvegi 2