Samtíðin - 01.11.1971, Blaðsíða 31
SAMTlÐIN
27
Japanar byggja neðanjarðarborgir
BANDARlKJAMENN eru frægir fyrir
að hafa reist háhýsi eða svonefnda skýja-
kljúfa í stórborgum sínum. Bygging þeirra
er tilraun til að nýta rándýrar lóðir sem
bezt og sporna jafnframt við hóflausri
þenslu horganna út um allar jarðir. Nú
eru Japanar í óða önn að leysa þéttbýlis-
eða þrengslavandamál sín með því að reisa
verzlunarhverfi neðan jarðar í stórljorgum
sínum. I höfuðhorginni, Tokíó, eru þeir
nýbúnir að byg'gja svonefnt Yaesu-verzl-
unarhverfi undir torginu framan við nýju
aðaljárnbrautarstöðina, og hefur sú fram-
kvæmd vakið athygli skipulagsfræðinga
um heim allan.
Japanar eru forgangsþjóð í ýmsum verk-
legum framkvæmdum, enda harðduglegir
og samhentir. Þeir hafa á skömmum tíma
byggt verzlanahverfi neðan jarðar í flest-
um milljónaborgum sínum. Hið fyrsta var
fullgert i Osaka árið 1963. Það reyndist
svo vinsæl framkvæmd, að aðrar borgir
gerðu slíkt hið sama. Nú hafa verið hyggð
einna, tveggja og þriggja hæða búðahverfi
neðan jarðar í Osaka, Nagoya, Yokohama
og Tokíó. Ef eitthvað er að veðri, eins og
oft er í Japan, þarf fjöldi fólks ekki leng-
ur að fara út undir bert loft, þó að það
eigi erindi i búðir.
í þessum neðanjarðar-búðahverfum er
ágæt loftræsting. Þar ríkir kyrrð og ró,
og fólk getur gengið þar um óáreitt af
bílaumferð og menguðu andrúmslofti.
Framkvæmum fljótt og vel:
SKÖ-, GUMMl- og SKÓLATÖSKU-
VIÐGERÐIR.
Skóverkstæði HAFÞÖRS,
GarSastrœti 13 (inngangur úr Fischerssundi).
Þarna eru allir óhultir fyrir umferðarslys-
um, lausir við rigningu, snjókomu og
hvassviðri að vetrarlagi og steikjandi sól-
arhita að sumarlagi. Yaesu-búðahverfið í
Tokíó er 40.000 fermetrar að flatarmáh.
Þar eru 350 verzlanir, en auk þeirra marg-
ir litlir veitingastaðir og matstofur. Gatan
eftir hverfinu er 20 m breið. Þar er bjart
á daginn, og þeir 500.000 viðskiptavinir,
sem verzla þarna daglega, njóta þar þægi-
legrar, lágværrar tónlistar, sem ómar um
hverfið.
Uppi á torginu sjást engin önnur merki
um verzlunarhverfið undir því en nokkrir
smekklegir loftræstingarturnar, eins kon-
ar reykháfar. Niðri í búðahverfinu eru
sjálfvirk slökkvitæki og brunaboðar auk
slökkvistöðvar til frekara öryggis, ef eldur
skyldi verða þar laus.
Þegar þetta var ritað, var verið að
lcggja jarðgöng mikil undir búðahverfinu,
3 hæðir niðri í jörðinni. Eftir þeim verður
lögð akbraut milli járnbrautarstöðvarinn-
ar og l'lugvallar borgarinnar. I sambandi
við þessa bílabraut verður bílatorg 2 hæðir
niðri í jörðunni, en þangað ganga lyftur
og rennistigar.
Með þessum nýstárlegu framkvæmdum
og geysimiklum viðbótarframkvæmdum
neðan jarðar ætla Japanar að leitast við
að ráða bót á þrengslunum í stórborgum
sínum. Þeir eiga ekki annars kost.
— Endumýjum gömlu sængurnar —
— Seljum sængur og kodda —
DIIN- OG FIÐURHREINSUNIN
Vat.nsstíg 3 — Sími 18740