Fréttablaðið


Fréttablaðið - 10.07.2010, Qupperneq 4

Fréttablaðið - 10.07.2010, Qupperneq 4
4 10. júlí 2010 LAUGARDAGUR Vilja ekki lengja hringveginn FLJÓTDALSHÉRAÐ Bæjarstjórn Fljóts- dalshéraðs segir að þjóðveg eitt eigi ávalt að skilgreina sem stystu leið milli landshluta og ekki eigi að slaka þar á öryggiskröfum. Bæjarstjórnin hafnar þar með ályktun bæjar- ráðs Fjarðabyggðar um að Hringvegur 1 verði framvegis skilgreindur um Suðurfjarðaveg og Fagradal. Héraðsbúar segjast þó sammála bæjarráði Fjarðabyggðar um að góður vegur um Fagradal og heilsársþjónusta á honum sé mjög mikilvægt fyrir samgöngur á Mið- Austurlandi og að gerð Fáskrúðsfjarðarganga og lagning samfellds bundins slitlags á Suðurfjarðaveg hafi verið góð samgöngubót. „Það á þó ekki að koma í veg fyrir að önnur byggðarlög á Austurlandi og hinn almenni ferðamaður geti notið sambærilegra sam- göngubóta og styttingu vegalengda,“ segir bæjarstjórnin og skora á samgönguyfirvöld að vinna áfram að uppbyggingu á þjóð- veginum um Skriðdal og Breiðdalsheiði og vegabótum á Axarvegi. Kátt í Kjós KJÓS Á Laugardaginn kemur fer fram hátíðin „Kátt í Kjós“ í fjórða sinn. Að því er segir á kjos.is vilja Kjósverjar gefa öllum tækifæri á að koma í heimsókn og skoða sveitina og það sem falleg náttúran og íbúar hafa upp á að bjóða. Markmiðið sé meðal annars að vekja athygli á atvinnustarfsemi í Kjósinni. Meðal annars verður sveitamarkaður, húsdýrasýning, gamlar heimildarmyndir verða sýndar og frítt verður að veiða í Meðalfellsvatni. Sömuleiðis verður frítt í golf í Hvammsvík og afsláttur af veiðileyfum þar. Þá verður hægt að kynna sér lífrænan landbúnað og taka þátt í Íslandsmeistaramótinu Poulsen í heyrúlluskreytingum. Umhverfis landið Nýja sundlaugin molnar HOFSÓS Nýja sundlaugin á Hofsósi, sem fjármögnuð var af Lilju Pálmadóttur og Steinunni Jónsdóttur, er talsvert gölluð, að því er Sigurjón Þórðarson, áheyrnar- fulltrúi í byggðaráði Skagafjarðar, segir. Á síðasta fundi byggðaráðsins sagði Sigurjón að á þeim skamma tíma sem sundlaugin hafi verið opin hafi komið í ljós ýmsir gallar. Meðal annars séu blöndunartæki biluð, kantar á veggjum farnir að molna og hurðir og innréttingar þoli illa raka. „Ég hef orðið þess áskynja að margir hafa hug á að leggja leið sína í rómaða sundlaug og er miður ef að við þeim tekur nýtt mannvirki, sem augljóslega þarf að sníða af ákveðna ágalla,“ sagði Sigurjón í greinar- gerð og byggðaráð lagði áherslu á að úrbótum yrði hraðað. Ráðuneyti ógildir ákvörðun um vegstæði MÝRDALSHREPPUR Ákvörðun sem sveitarstjórn Mýrdalshrepps tók um nýtt vegstæði þjóðvegar eitt í gegn um Vík hefur verið ógilduð af samönguráðuneyt- inu. Ástæðan er vanhæfi eins sveitarstjórnarfulltrúans sem tók þátt í afgreiðslu málsins. Það er Þórhildur Jónsdóttir sem á jarðirnar Ketilstaði I og II. Veglínan liggur meðal annars um þessar jarðir. Talsverðar deilur hafa verið um það hvar nýtt vegstæði eigi að vera. Hópskóli lagður niður GRINDAVÍK Bæjarráð Grindavíkur hefur ákveðið að leggja niður stofnunina Hópsskóla og færa alla starfsemi skólans undir Grunnskóla Grindavíkur. Að því er kemur fram á vef bæjarins er þó áfram gert ráð fyrir að yngstu bekkjunum verði kennt í húsnæði Hópsskóla. Skólastjóranum þar verður sagt upp en aðrir starfsmenn halda áfram. Meirihluti bæjarráðs segir að beinn sparnaður af þessu verði 7,7 milljónir króna. „Ljóst er að leita þarf allra leiða til að skera niður í bæjarfélaginu og það er markmið meirihlutans að sá niðurskurður bitni sem minnst á grunnþjónustu til bæjarbúa,“ segir á grindavik.is. VEÐURSPÁ Alicante Basel Berlín Billund Frankfurt Friedrichshafen Gautaborg Kaupmannahöfn Las Palmas London Mallorca New York Orlando Ósló París San Francisco Stokkhólmur HEIMURINN Vindhraði er í m/s. Hitastig eru í °C. Gildistími korta er um hádegi. 29° 35° 36° 25° 37° 33° 27° 27° 24° 27° 25° 29° 35° 24° 34° 23° 24°Á MORGUN Hæg norðaustlæg eða breytileg átt. MÁNUDAGUR Hæg suðlæg átt. 10 10 11 12 12 12 12 13 14 8 12 3 7 5 3 2 2 3 4 7 3 5 14 13 13 12 12 12 12 12 12 11 SKIN OG SKÚRIR Bjartast verður norðvestantil á landinu í dag en um sunnanvert land má búast við rigningu með köfl - um. Á morgun létt- ir heldur til syðra en þá eru líkur á vætu austanlands. Vindur verður áfram mjög hægur og hitinn svipaður. Elísabet Margeirsdóttir veður- fréttamaður DANMÖRK Danir hafa miklu minni áhuga á því að verða stjórnendur en fólk í öðrum löndum, samkvæmt niðurstöðum nýrrar rannsóknar. Alþjóðlega vinnumiðlunin Rand- stad lét gera rannsóknina og var hún gerð í 25 löndum. Hún leiddi í ljós að aðeins fjögur prósent danskra launþega sögðust stefna að því að fá stöðuhækkun, en 68 prósent sögð- ust ekki hafa neinn áhuga á því. Töl- urnar voru aðeins hærri í Noregi og Svíþjóð, en í þessum þremur lönd- um hafði fólk langminnstan áhuga á stöðuhækkunum. Fulltrúar Randstad í Danmörku hafa sagt líklegar útskýringar á þessu vera að Skandinavar séu yfir- leitt með hærri laun og í öruggari vinnu en aðrar þjóðir. Þeir hafi því ekki sömu þörf fyrir stöðuhækkun og fólk í löndum þar sem eru lægri laun, meira atvinnuleysi og verra velferðarkerfi. Samtök launþega í Danmörku hafa þó lýst yfir áhyggjum af þessu og sagt niðurstöðuna sýna að Danir séu hræddir við að taka áhættu. Engin framþróun verði í samfélag- inu ef allir hugsi með þessum hætti og ætli bara að fylgja straumnum. - þeb Rannsókn sýnir að Skandinavar hafi minnstan áhuga á stöðuhækkunum: Skandinavar vilja ekki stjórna KAUPMANNAHÖFN Stærstur hluti Dana á vinnumarkaði segist engan áhuga hafa á stöðuhækkunum og stjórnunarstöð- um. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR VÍNARBORG Bandaríska vélin sem flutti njósnarana tíu nýlent í Vín. BANDARÍKIN Bandarísk og rússn- esk stjórnvöld skiptu í gær á föngum á flugvellinum í Vínar- borg í Austurríki. Tíu rússnesk- ir njósnarar, sem höfðu játað á sig njósnir í Bandaríkjunum, voru látnir lausir í skiptum fyrir fjóra rússneska fanga sem höfðu verið dæmdir fyrir njósnir í þágu Bandaríkjanna. Flugvélum, annarri frá Rúss- landi og hinni frá Bandaríkjun- um, var lagt hlið við hlið á flug- vellinum um hádegisbil í gær. Síðan var skipt á fólki og flugvél- arnar hófu sig á loft. Rússar og Bandaríkjamenn: Njósnaraskipti á flugvelli SVISS Flugvél sem aðeins not- ast við sólarorku var flogið í 26 klukkustundir og lenti í Sviss í gærmorgun. Um var að ræða til- raunaflug sem reyndist lengsta flug sólarorkuflugvélar. Vélin náði rúmum 28 þúsund fetum, sem er einnig hæsta hæð sem sólarorkuvél hefur náð. Hún flaug líka alla nóttina en það hefur slík vél aldrei gert áður. Sólarorkunni var safnað á raf- geyma yfir daginn svo hún ent- ist yfir nóttina þegar engin sól skein. munum. - þeb Flaug í 26 klukkustundir: Tímamót í flugi sólarorkuvéla DÓMSMÁL Karlmaður á fertugs- aldri hefur verið dæmdur í níu mánaða fangelsi, þar af sex mán- uði á skilorði, fyrir að stinga annan mann með dúkahnífi í lærið og skera framan af fingrinum á honum. Maðurinn fékk djúpan sex sentimetra langan skurð á lærið. Atvikið átti sér stað í apríl 2009. Fórnarlambið hafði frumkvæði að því að mennirnir hittust á tiltekn- um stað í Reykjavík til að ræða deilumál. Ekki bar þeim saman fyrir dómi um hvað ágreiningur þeirra snerist en um var að ræða skuldamál. Árásarmaðurinn var dæmdur til að greiða hinum 200 þúsund krónur í skaðabætur. - jss Hnífamaður í fangelsi: Skar framan af fingri manns AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Hendrik Sigurðsson hendrik@frettabladid.is, Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Laila Awad laila@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is ALLT SÍMI 512-5402: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Henný Árnadóttir henny@365.is, Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5016: Sigríður Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynurs@365.is, Bjarni Þór Sigurðsson bthor@365.is, Benedikt Freyr Jónsson benediktj@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is, Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is GENGIÐ 09.07.2010 GJALDMIÐLAR KAUP SALA HEIMILD: Seðlabanki Íslands 201,7072 GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR 124,25 124,85 188,53 189,45 157,35 158,23 21,102 21,226 19,499 19,613 16,565 16,663 1,403 1,4112 185,82 186,92 Bandaríkjadalur Sterlingspund Evra Dönsk króna Norsk króna Sænsk króna Japanskt jen SDR
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.