Fréttablaðið - 10.07.2010, Blaðsíða 10

Fréttablaðið - 10.07.2010, Blaðsíða 10
10 10. júlí 2010 LAUGARDAGUR ákvörðuð með sátt af þessu tagi en málinu sé ekki lokið. „Þetta er áfangi máls sem lýtur að því að annar aðili samráðs hefur viðurkennt brot sín, greiðir sektir og gerir breytingar,“ segir Páll og tekur fram að önnur atriði þurfi að rannsaka frekar. Spurður hvort Skipti séu ekki að viðurkenna meiriháttar brot með því að fallast á svona háa sekt segir Páll að hver og einn verði að leggja sína merk- ingu í fjárhæð sektarinnar, en hún segi sína sögu. Ekki náðist í Brynjólf Bjarnason, forstjóra Samskipta, vegna málsins. sunna@frettabladid.is Bræðraborgarstíg 9 Sígilt meistaraverk eftir Ólaf Jóhann Sigurðsson, einn fremsta rithöfund þjóðarinnar, í nýjum og glæsilegum búningi með undurfögrum myndum af fuglum í náttúru Íslands eftir Jón Baldur Hlíðberg. „Þessi stutta en frábæra barnasaga er slíkur feginsfengur, að manni hlýnar um hjartarætur ... ljómandi gimsteinn.“ – Tíminn, 1962. GEISLADISKU R MEÐ FRÁBÆ RUM LESTRI ÓLAFÍU HRA NNAR JÓNSDÓTTU R Á SÖGUN NI FYLGIR MEÐ ÓKEYPIS! „Ljómandi gimsteinn“ D Y N A M O R E Y K JA V ÍK DÓMSMÁL Fimm menn á þrítugs- aldri hafa verið dæmdir, í Hér- aðsdómi Reykjaness, í fangelsi fyrir hrottalega líkamsárás. Tveir þeirra voru dæmdir í átján mán- aða fangelsi. Þrír voru dæmdir í tólf mánaða fangelsi þar af níu mánuði á skilorði. Mennirnir voru dæmdir til að greiða fórnarlamb- inu rúmlega 800 þúsund krónur í skaðabætur. Árásin átti sér stað á nýárs- morgun á síðasta ári. Menn- irnir fimm höfðu verið í gleð- skap saman, en fóru svo heim til mannsins sem þeir töldu sig eiga sökótt við. Þeir gripu með sér barefli, bæði rör og borðfætur úr málmi. Þegar maðurinn opn- aði dyrnar réðust fjórir mann- anna umsvifalaust á hann með hnefum og bareflum. Sá fimmti bættist svo í hópinn og tók þátt í misþyrmingunum. Mennirnir héldu áfram að berja manninn og sparka í hann þar til að leikur- inn barst út á svalir. Þá henti einn árásarmannanna honum niður af svölunum, sem var um fjögurra metra fall. Maðurinn náði að skríða upp í íbúð sína við illan leik. Nágranni sem sá til hans alblóðugs hringdi á lögreglu. Maðurinn hlaut bein- brot, opið sár á höfði og fleiri áverka við árásina. - jss HÉRAÐSDÓMUR REYKJANESS Dæmdi í máli ofbeldismannanna. Fimm karlmenn dæmdir í fangelsi eftir hrottalega líkamsárás: Hentu manni fram af svölum Notaðu öfluga og ókeypis leit á Vísi til að finna allt sem þú þarft að vita um útilegur, tjöld, svefnpoka, vindsængur, prímusa, kassagítara, grillsósur – eða bara eitthvað allt annað. Leitaðu að efni úr Fréttablaðinu og af Vísi. Það eina sem þarf er leitarorð. Vísir er með það. „Útilega“ ...ég sá það á Vísi VIÐSKIPTI Skipti hf. féllst á að greiða 400 milljóna króna sekt fyrir umfangsmikið ólögmætt samráð við Hátækni við sölu á farsím- um. Tæknivörur, eitt dótturfélag Skipta, og Hátækni höfðu samráð um heildsöluverð á farsímum sem upp komst við húsleit sem fram- kvæmd var af Samkeppniseftir- litinu í húsnæði Skipta og dóttur- félögum þess, Símanum hf. og Tæknivörum ehf. hinn 21. apríl síðastliðinn. Hátækni og Tæknivörur eru helstu keppinautar í innflutningi og heildsölu á farsímum og tengd- um búnaði. Auk Tæknivara og Símans á Skipti meðal annars Já.is, Skjá- inn og Mílu. Stjórnin hefur fall- ist á að selja allan eignarhlut sinn í Tæknivörum og skuldbundið sig til að grípa ekki til aðgerða sem raskað geta samkeppni á farsíma- markaði. Samkeppniseftirlitið gerði einnig húsleit hjá Hátækni ehf. og móður- félagi þess, Olíuverslun Íslands hf., hinn 7. maí síðastliðinn á grundvelli gagna sem fundust hjá Skiptum. Þetta hafi verið framkvæmt vegna gruns um ólögmætt samráð milli Hátækni og Tæknivara á heildsölu- markaði fyrir sölu á farsímum. Í framhaldinu sneru Skipti og Tæknivörur sér til Samkeppnis- eftirlitsins og óskuðu eftir því að veita liðsinni við málið. Á þeim grundvelli hafi Samkeppniseftir- litið nýtt heimild samkeppnislaga og gert sátt við fyrirtækið sem var gert að greiða 400 milljónir króna í sekt. Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins, segir sekt- ina vera þá hæstu sem hefur verið 400 milljóna sekt fyrir ólög- legt samráð Tæknivörur, dótturfélaga Skipta hf., hafði ólöglegt samráð við Hátækni um farsímaverð. Sektin er sú hæsta sem ákvörðuð hefur verið með sátt. BRYNJÓLFUR BJARNASON PÁLL GUNNAR PÁLSSON Hæstu sektir sem íslenskum fyrir- tækjum hefur verið gert að borga fyrir brot á samkeppnislögum. Olíufélögin: 1,5 milljarðar Hagar: 315 milljónir Eimskip: 230 milljónir Lyf og heilsa: 100 milljónir Iceland Express: 130 milljónir (fellt úr gildi í Héraðsdómi) Hæstu sektirnar HÚSAKYNNI SÍMANS Forstjóri Samkeppniseftirlitsins segir sektina vera þá hæstu sem hefur verið ákvörðuð með sátt af þessu tagi en málinu sé ekki lokið. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM 1. Hvaða lið situr í toppsæti Pepsi-deildarinnar í fótbolta? 2. Hvaða tónlistarmaður er að hefja leiklistarnám í Danmörku í haust? 3. Hvar voru hátt í 100 manns að mótmæla í gærdag? SVÖRIN ERU Á SÍÐU 50 MENNING Húsaleigukostnaður Sin- fóníuhljómsveitar Íslands nærri tvöfaldast þegar sveitin flytur úr Háskólabíói yfir í Hörpuna á næsta ári. Á síðasta ári greiddi sveitin 73 milljónir króna í leigu fyrir Háskólabíó. Leigan fyrir Hörpuna er 55 milljónum króna hærri. Alls mun sveitin því greiða 128 milljónir króna í leigu á næsta ári. Ríki og Reykjavíkurborg skipta á milli sín þessum reikn- ingi. Flutningur Sinfóníu í Hörpu: Húsaleigan nær tvöfaldast VEISTU SVARIÐ?
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.