Fréttablaðið - 10.07.2010, Blaðsíða 62

Fréttablaðið - 10.07.2010, Blaðsíða 62
34 10. júlí 2010 LAUGARDAGUR menning@frettabladid.is Á hverjum miðvikudegi í júlí og ágúst verða haldnir orgeltónleikar í Kristskirkju í Landakoti í Reykjavík. Tónleikarnir verða haldnir klukkan 12 til 12.30 og koma ýmsir organistar og tónlistar- menn til með að spila þar í sumar. Listamenn sem munu koma fram í tónleika- röðinni eru til að mynda Hilmar Örn Agnarsson, Tómas Eggertsson, Eyþór F. Wechner, Sólveig Einarsdóttir, Christian Fischer, Friðrik Stefáns- son, Eygló Rúnarsdóttir og Örn Falkner. Aðgangur að tónleikaröðinni er ókeypis og er öllum frjálst að mæta. Unnendur orgelleiks og fagurrar tónlistar ættu því að gera fundið eitthvað við sitt hæfi komandi miðvikudaga í sumar. Tónleikaröð í Kristskirkju DÓMKIRKJA KRISTS KONUNGS Hádegistónleikar verða alla miðvikudaga í júlí og ágúst Gallery Villa kl. 18 Gallery Villa Reykjavíkur opnar dyr sínar um helgina og býður þér og þínum að koma og njóta það sem eftir lifir mánað- ar. Sýningarnar verða opnar til 31. júlí og opnunarvikan 9. - 16. júlí er viðburðavika, sneisafull af frábærri og fjölbreyttri dag- skrá. Nánari upplýsingar um hin fjölmörgu gallerí sem taka þátt má finna á villa- reykjavik.com. > Ekki missa af Sinfóníuhljómsveit unga fólksins (Ungfónía) frumflytur trompetkonsert eftir Hafliða Hallgrímsson á sunnudaginn á þjóðlagahátíðinni á Siglu- firði kl. 14.00, auk þess sem tónleikarnir verða endurfluttir í Neskirkju á mánudagskvöldið kl. 20.00. Konsertinn er sam- inn sérstaklega fyrir Sinfóníu- hljómsveit unga fólksins og trompetleikarann Jóhann Má Nardeau, sem er einn af fáum trompetnemendum við Parísar Konservatoríið. Listahátíðin LungA hefst á mánudaginn. Á hátíðinni má finna listasmiðjur, kvöldskemmtanir, tónleika- veislur og uppskeruhátíð svo eitthvað sé nefnt. Mánudaginn 12. júlí hefst hin árlega listahátíð LungA sem hald- in er á Seyðisfirði. Hátíðin hefst með opnunarathöfn þar munu leið- beinendur og LungAráð kynna sig ásamt ýmsum listauppákomum. Einnig mun söngkonan Lay Low spila fyrir gesti. Þetta er tíunda árið sem hátíðin er haldin og því má ætla að mikl- um áfanga sé náð í huga aðstand- enda. Hún var haldin árið 2000 í fyrsta sinn í þeirri mynd sem hún er í dag. Þá tóku um 20 ungmenni þátt í listasmiðjunum. Í ár eru um 98 ungmenni á aldrinum 16 til 25 ára sem skráð eru í smiðjurnar. Í ár koma einnig 30 ungmenni að utan, tólf frá Danmörku, tólf frá Finnlandi og átta frá Noregi. „Ég held þetta verði æðislegt! Við erum öll mætt tímalega í fyrsta sinn fyrir hátíðina og náum að vera smá tíma saman áður en hún byrjar. Við hlökkum alla- vega rosalega til,“ segir Björt Sig- finnsdóttir, einn af stofnendum listahátíðarinnar LungA. Fram- kvæmdaráð telur um átta manns auk framkvæmdastjórans, Aðal- heiðar Borgþórsdóttur, sem geng- ur undir nafninu mamma-LungA. Að auki verða um 20 sjálfboðalið- ar frá Veraldarvinum sem sjá um gæslu á hátíðinni. Auk listasmiðja yfir daginn eru uppákomur öll kvöld sem opnar eru almenningi. Um helgina er mikil dagskrá sem um 3.000-4.000 manns hafa sótt síðustu ár. „Á laugardag- inn verður Pop Up markaður, lista- opnanir og við frumsýnum LungA- bókina sem gefin verður út í tilefni afmælisins,“ segir Björt. „Auk þess erum við með tónleikaveislur alla helgina en aðalafmælistónleikarn- ir eru á laugardaginn frá klukkan 16 til eitt eftir miðnætti þar sem spilað er á tveimur sviðum. Sleg- ið verður upp grillveislu þar sem veitingar verða til sölu auk þess sem gestir hafa tök á því að mæta með sinn eigin mat og grilla.“ linda@frettabladid.is LUNGA HALDIN Í TÍUNDA SKIPTI FRAMKVÆMDARÁÐ LUNGA Allt er nú að verða tilbúið á Seyðisfirði fyrir hina árlegu listahátíð LungA. FJÖLBREYTT DAGSKRÁ Tískusýningar eru meðal þess sem er á dagskrá LungA. Kílómetrar eru vega- lengdin frá Reykjavík til Seyðisfjarðar. HEIMILD: VEGAGERÐIN 680 Bókaútgá fan Opna · Sk ipho l t i 50b · 105 Reyk j av í k · s ím i 578 9080 · www.opna . i s H V ÍT A H Ú S IÐ / S ÍA FJÖLLIN LAÐA OG LOKKA „Pétur er einn af orðlögðustu ferðagörpum sinnar tíðar.“ Páll Ásgeir Ásgeirsson Fjöll á Fróni er þriðja fjallabók Péturs, áður skrifaði hann Fólk á fjöllum og Íslensk fjöll í félagi við Ara Trausta Guðmundsson. Í þessari bók kynnumst við Pétri nánar í ítarlegu viðtali Páls Ásgeirs Ásgeirssonar. Pétur Þorleifsson er frumkvöðull í fjallaferðum. Hér lýsir hann göngu á 103 fjöll, há sem lág, löngum göngum og stuttum - fyrir alla fjölskylduna. Hverri göngulýsingu fylgir greinargott kort.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.